Guðlaug Einarsdóttir ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin verkefnastjóri á skrifstofu forstjóra HSU frá 1. mars 2015. Hún hefur víðtæka klíníska reynslu og hefur m.a. starfað í Danmörku og á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Um sex ára skeið starfaði hún sem formaður Ljósmæðrafélags Íslands. Hún hefur því reynslu sem heilbrigðisstarfsmaður, stjórnandi félagasamtaka og ýmissa verkefna. Guðlaug hefur auk heilbrigðismenntunar sinnar lokið diplómanámi í opinberri stjórnsýslu og MPM námi í verkefnastjórnun og hlotið alþjóðlega IPMA Level C vottun í verkefnastjórnun.
Guðlaug hefur því margþætta reynslu og menntun og jafnframt brennandi áhuga á þverfaglegri samvinnu í heilbrigðisþjónustu. Kraftar hennar munu því nýtast afar vel í liðsheild HSU við að stýra stefnumiðuðum verkefnum fyrir framkvæmdastjórn HSU.