Tannverndarvikan 2013 verður 28. jan. til 2. feb. og verður áhersla lögð á hollustu VATNS. Það er Embætti landlæknis sem stendur fyrir tannverndarvikunni.
Í umræddri viku er fyrirhugað að vekja athygli á kostum þess að velja vatn fram yfir aðra óhollari drykki og skapa jafnframt umræðu um mikilvægi þess að fólk hafi greiðan aðgang að hreinu og góðu drykkjarvatni.
Af þessu tilefni munu leik-, grunn- og framhaldsskólar fá tækifæri til að taka þátt í hugmyndakeppni um mynd sem tengist þessari yfirskrift og verður ein verðlaunamyndanna nýtt í gerð nýs skiltis sem embættið
hyggst gefa út nk. haust. Skilafrestur er til 22. mars 2013 og í kjölfarið
munu sigurvegarar á öllum þremur skólastigum fá veglega vatnsvél í
verðlaun, auk þess sem viðkomandi nemendur/bekkur og skóli mun fá viðurkenningarskjal frá Embætti landlæknis.
Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband embættið, en nánari upplýsingar um vikuna og fræðsluefni um vatn verður aðgengilegt á vef embættisins www.landlaeknir.is í upphafi tannverndarvikunnar.
Hér má sjá nánar tilkynningar frá Embætti landlæknis vegna tannverndarvikunnar: