Í ljósi fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu breytast heimsóknarreglur á HSU frá og með 12. nóvember 2021.
Breytingarnar fela í sér takmörkun á komum gesta og eru heimsóknir til sjúklinga á HSU ekki heimilar nema með sérstöku leyfi forsvarsmanna viðkomandi deildar.
Heimsóknir á hjúkrunardeildir eru heimilaðar í samráði við starfsfólk deildar.
Grímuskylda er í gildi hjá heimsóknargestum á meðan heimsókn varir.
Grímuskylda er á HSU. Allir 6 ára og eldri bera maska í viðtali, rannsóknum og öðrum erindagjörðum inni á stofnanir HSU. ATH að buff er ekki tekið gilt.