Fara beint í efnið

Ljósmæðra- og fæðingarþjónusta

Bráðasími ljósmæðra á Selfossi: 432 2200

Ljósmæður á HSU hafa fjölþætt verksvið.  

Þær annast almenna mæðravernd, einnig eftirlit með meðgöngutengdum vandamálum í samráði við Landspítala. Þær veita símaráðgjöf til barnshafandi kvenna og skimun fyrir leghálskrabbameini. 

Ljósmæður sinna mæðravernd á öllum heilsugæslustöðvum HSU. 
Tekið er á móti börnum allan sólarhringinn og sængurkonum og börnum þeirra er sinnt í sængurlegu.

Fæðingardeild HSU á Selfossi er fæðingadeild sunnlendinga.
Hér geta allar konur fætt eigi þær eðlilega meðgöngu að baki og ef fæðingu ber eðlilega að.

Á fæðingadeildinni starfa reyndar ljósmæður sem leggja sig fram um að skapa heimilislegt andrúmsloft en gæta þó á sama tíma fyllsta öryggis móður og barns.