Heilsueflandi heimsóknir
Heilsugæslustöð Selfoss býður öldruðum skjólstæðingum svæðisins upp á heilsueflandi heimsóknir. Þessar heimsóknir felast í því að íbúum 80 ára og eldri sem ekki njóta heimahjúkrunar er boðið upp á heimsókn hjúkrunarfræðings. Í heimsókninni er rætt um t.d heilsufar og heilbrigði, vellíðan,öryggi,lífsgæði,samvistir við aðra,tómstundir.o.fl. Hjúkrunarfræðingar vilja gjarnan heyra hvað þessum hópi skjólstæðinga liggur á hjarta um reynslu þeirra og hugmyndir.
Tilgangur heilsueflandi heimsókna
- Að viðhalda heilbrigði og sjálfstæði sem lengst.
- Að stuðla að sjálfstæði og auka öryggiskennd.
- Að veita ráðgjöf og upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði.
- Framkvæmd heimsóknarinnar
Hjúkrunarfræðingar munu punkta niður upplýsingar á blað á meðan á heimsókninni stendur og eru þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Fullrar þagmælsku er gætt. Eftir að skjólstæðingur hefur fengið bréf sent heim þar sem boðið er upp á slíka heimsókn, mun verða haft samband að ca. viku liðinni og tími fundinn sem hentar fyrir heimsóknina. Öllum er að sjálfsögðu heimilt að afþakka heimsókn.