Hjúkrunarmóttakan er opin alla virka daga kl. 8:00 – 12:00 og 13:00-15:00. Pantið tíma í síma 432-2900.
Í bráðatilfellum er hægt að leita á stöðina án þess að gera boð á undan sér.
Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöðinni starfa við:
- ung-og smábarnavernd
- mæðravernd
- heilsuvernd
- heimahjúkrun
- skólahjúkrun
- hjúkrunarmóttöku
Hjúkrunarmóttakan er opin alla virka daga kl. 8:00 – 12:00 og 13:00-15:00
Hægt er að bóka tíma hjá móttökuritara í síma 432-2900.
Í hjúkrunarmóttöku er meðal annars veitt eftirfarandi þjónusta:
- viðtöl við hjúkrunarfræðing
- símaráðgjöf
- sáraskiptingar
- bólusetningar og sprautugjafir
- skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
- mælingar á blóðþrýstingi
- lungnaþolspróf (öndunarmælingar)
- hjartalínurit
- einfaldar blóð- og þvagrannsóknir
- skimun fyrir leghálskrabbameini (ljósmóðir)