
Herdís Gunnarsdóttir forstjóri HSU, Pétur Skaprhéðinsson læknir, Gylfi Haraldsson læknir og Hjörtur Kristjánsson lækningaforstjóri HSU.
Alls létu af störfum sökum aldurs, 12 starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á árinu 2016. Samanlagður starfsaldur þessara einstaklinga eru 302 ár þannig að segja má að þessir starfsmenn hafi þjónað stofnuninni af miklu trygglyndi til fjölda ára. Starfsmennirnir voru kvaddir í þremur kveðjuhófum, það fyrsta í Aratungu 11. janúar því næst í Vestmannaeyjum þann 24. janúar og að lokum á Selfossi þann 30. janúar.
Þau sem létu af störfum eru:
Elsa Bachmann – Þvottahúsi Selfossi
Eygló Sigurlaug Gunnlaugsdóttir – Ræstingu Selfossi
Gylfi Haraldsson – Laugarási
Hjördís Helgadóttir – Ljósheimum Selfossi
Hugrún Ásta Elíasdóttir – Þvottahúsi Selfossi
Marianne Ósk B. Nielsen – heilsugæslunni Hveragerði
Pétur Z. Skarphéðinsson – Laugarási
Sigríður Ólafsdóttir – Rannsókn Selfossi
Sigurbjörg Jónsdóttir – Lyflækningadeild Selfossi
Þuríður K. Kristleifsdóttir – Rannsókn Vestmannaeyjum
Þóra Valdís Valgeirsdóttir – Ljósheimum Selfossi
Þyrí Ólafsdóttir – Sjúkradeild Vestmannaeyjum
Heilbrigðisstofnun Suðurlands þakkar þessum starfsmönnum fyrir vel unnin störf og trygglyndi í þágu stofnunarinnar sem og velfarnaðar um ókomin ár.

Starfsmenn sem hættu á Selfossi. Fv. Eygló Gunnlaugsd., Sigríður Ólafsdóttir, Elsa Backmann, Marianne B. Nielsen, Hugrún Elíasdóttir og Hjördís Helgadóttir. Á myndina vantar tvær.

Þyrí Ólafsdóttir Eyjum ásamt Önnu Maríu Snorrad. framkvæmdastjóra hjúkrunar og Hirti Kristjánssyni framkvæmdastjóra lækninga.