Þann 4. apríl 2018 voru sjö starfsmenn kvaddir sem létu af störfum sökum aldurs á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á árinu 2017. Samanlagður starfsaldur þessara einstaklinga við stofnunina eru 154 ár, en innan hópsins eru einstaklingar sem hafa starfað hjá stofnunni í 30-40 ár. Þau hafa því starfað hjá HSU nær allan sinn starfsferil sem er einstakt.
Þau sem létu af störfum eru:
- Ásta Skúladóttir, móttökuritari á heilsugæslunni í Laugarási, starfaði hjá HSU í 6 ár.
- Bóthildur Steinþórsdóttir, ljósmóðir Selfossi, starfaði hjá HSU í 18 ár.
- Helgi Hauksson, læknir á heilsugæslunni í Þorlákshöfn, starfaði hjá HSU í 38 ár.
- Ingunn Úlfars Sigurjónsdóttir, læknaritari á Selfossi, starfaði hjá HSU í 40 ár.
- Svanlaug Eiríksdóttir, starfsmaður í þvottahúsi Selfossi, starfaði hjá HSU í 9 ár.
- Þorbjörg Ársælsdóttir, launafulltrúi á skrifstofu Selfossi, starfaði hjá HSU í 34 ár.
- Þorkell Guðbrandsson, læknir á lyflækningadeild Selfossi, starfaði hjá HSU í 9 ár.
Við hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands þökkum þeim öllum fyrir vel unnin störf, gott samstarf í gegnum árin og trúmennsku í þágu heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi. Við óskum þeim farsældar og velfarnaðar í framtíðinni.
Tveir starfsmenn sem störfuðu í Vestmannaeyjum hættu einnig á árinu 2017 sökum aldurs og verður þeim haldið sérstakt kveðjuhóf í Vestmannaeyjum bráðlega.