
F.v. Þórunn Halldórsdóttir, sjúkraliði, Þorbjörg Júlíusdóttir, móttökuritari og Rósa Sigurjónsdóttir, sjúkraliði. Á myndina vantar Sigrúnu Óskarsdóttur, sjúkraliða)
Opinn starfsmannafundur með framkvæmdastjórn var haldinn í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 17. nóvember 2015. Á fundinn mættu um 40 manns. Hjörtur Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga fór yfir hvað hefur áunnist frá sameiningu stofnanna og hver eru helstu verkefnin framundan. Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri fór yfir stöðuna í rekstri HSU og í fundarins verður boðið upp á umræður með öllum í framkvæmdastjórn.
Að fundi loknum var boðið upp á glæsilegt kveðjukaffi fyrir fjóra starfsmenn hjá HSU í Vestmannaeyjum sem hafa látið af störfum á árinu sökum töku lífeyris, en þær hafa alls starfað 89 ár við stofnunina. Þær eru:
Rósa Sigurjónsdóttir, sjúkraliði
Sigrún Óskarsdóttir, sjúkraliði
Þorbjörg Júlíusdóttir, móttökuritari
Þórunn Halldórsdóttir, sjúkraliði