Heilbrigðisstofnun Suðurlands bauð öllum oddvitum framboða á Suðurlandi til hádegisfundar á Selfossi í dag. Ánægjulegt var að sjá hvað mætingin var góð, en fulltrúar mættu frá all flestum framboðsflokkum á Suðurlandi. Tólf fulltrúar frá átta framboðum sátu fundinn með framkvæmdastjórn og skoðuðu í lok fundar aðstæður á bráðamóttöku og göngudeild á Selfossi.
Tilgangur heimsóknarinnar var að eiga samtalsfund og fara yfir stöðu mála í rekstri og þjónustu hjá HSU ásamt því að kynna sýn og stefnu fyrir heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi. Á fundinum var kynnt fyrir frambjóðendum áherslur stofnunarinnar í þjónustunni við sjúklinga og íbúa, áskoranirnar sem glímt er við og framtíðarsýn stjórnenda. Herdís Gunnarsdóttir forstjóri HSU fór yfir málin ásamt Hirti Kristjánssyni framkvæmdastjóra lækninga. Boðið var upp á umræður og spurningar í framhaldinu og til svara var framkvæmdastjórn HSU. Ánægjulegt var að geta átt samtal með þessum fulltrúum og sköpuðust gagnlegar og faglegar umræður á fundinum.
Framkvæmdastjórn HSU þótti vel til takast og þakkar öllum þeim frambjóðendum sem sáu sér fært að koma í heimsókn á HSU.
Fundargestir voru:
Guðmundur Sighvatsson frá Alþýðufylkingunni
Páll Valur Björnsson og Eyrún B. Magnúsdóttir frá Bjartri framtíð
Halldór Gunnarsson frá Flokki Fólksins
Ásgerður Kristín Gylfadóttir frá Framsóknarflokknum
Smári MacCarthy og Oktavía Hrund Jónsdóttir frá Pírötum
Oddný G. Harðardóttir og Arna Ír Gunnarsdóttir frá Samfylkingunni
Ari Trausti Guðmundsson og Heiða Guðný Ásgeirsdóttir frá Vinstri grænum
Jóna Sólveig Elínardóttir frá Viðreisn
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU.