Sigríður Björg Ingólfsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunarstjóri á Heilsugæslunni í Hveragerði. Hún hefur gengt því starfi undanfarið ár í fjarvist Guðnýjar Gísladóttur sem nú hefur látið af störfum sem hjúkrunarstjóri. Guðný vinnur enn á heilsugæslustöðinni sem almennur hjúkrunarfræðingur í hlutastarfi og eru henni þökkuð góð störf sem hjúkrunarstjóri við heilsugæsluna.
Sigríður Björg hefur starfað við HSu frá árinu 2004, en hún lauk BS námi í hjúkrunarfræði frá HAK árið 2005. Sigríður hefur lengst af unnið á heilsugæslustöðinni í Hveragerði auk þess sem hún leysti af hjúkrunarstjóra á heilsugæslustöðinni í Þorlákshöfn árið 2008-2010. Einnig starfaði hún í tæp 3 ár á heilsugæslu Selfoss.
Sigríði er óskað velfarnaðar í starfinu.