Ekkert tilfelli hefur greinst á Suðurlandi.
Bólusetningarátak á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu vegna mislinga hefur gengið mjög vel. Von er á meira bóluefni til landsins í vikunni.
Áfram verður bólusetning í boði á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu fyrir forgangshópa en þeir eru:
Þeir einstaklingar sem útsettir hafa verið fyrir mislingasmiti ásamt þeirra nánasta umgangshópi.
Allir sem eru óbólusettir og fæddir á bilinu 1. janúar 1970 – 1. september 2018 (6 mánaða – 49 ára)
Sem stendur er bóluefni dreift samkvæmt ákvörðun sóttvarnarlæknis og ekkert komið til dreifingar á Suðurlandi vegna forgangsröðunar annað. Það er því ekki hægt að bólusetja neina á Suðurlandi sem stendur nema þau börn sem búið var að bóka í reglubundna bólusetningu. Um leið og breyting verður á þessu fyrirkomulagi verður það tilkynnt.