Á haustdögum lét Erna Sigurjónsdóttir af störfum sökum aldurs. Hún starfaði sem læknaritari við Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi, í rúm 28 ár.
Nýverið var henni haldið kveðjuhóf ásamt samstarfskonum sínum og afhent þakkargjöf um leið og henni var þökkuð vel unnin störf og færðar óskir um velfarnað í komandi framtíð.