Þann 14. nóvember 2018 mættu vaskar konur frá Kvenfélagi Þorlákshafnar, þær Svava og Fjóla, á heilsugæsluna í Þorlákshöfn og afhentu formlega 200 þúsund króna peningagjöf.
Peningagjöfin hefur þegar nýtt til að endurnýja búnað og aðstöðu ungbarnaeftirlitsins í Þorlákshöfn
og til kaupa á nýrri ungbarnavigt og lengdarmæli.
Allar kvenfélagskonur í Kvenfélagi Þorlákshafnar fá hugheilar þakkir fyrir alla gjafmildina, endalausa góðvild og velvilja í garð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.