Konur frá kvenfélaginu í Hveragerði heimsóttu heilsugæsluna í Hveragerði fyrr á þessu ári. Þær færðu heilsugæslunni peningagjöf, sem notaðir voru til að endurnýja leikföng fyrir börn og til kaupa á skiptiborði til að hafa inni á salerni stöðvarinnar. Einnig var keyptur súrefnismettunarmælir og nemar til að mæla súrefnismettun hjá ungabörnum.
Hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Hveragerði veitti peningunum viðtöku og færir Kvenfélaginu innilegar þakkir fyrir rausnaskapinn og þann góða hug sem að baki býr.