Aron Hinriksson forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi kom í heimsókn á aðalskrifstofu HSU í dag. Meðferðis hafði hann þrjá fulla kassa af leikföngum sem hann hafði fengið frá Heildsölunni Skor í Hafnafirði. Leikföngin hafði Aron hugsað sér sem verðlaun til barna sem þurfa að koma í heimsókn á einhverja heilsugæsluna okkar, bráða- og slysamóttökuna á Selfossi og í Vestmannaeyjum eða aðrar deildir stofnunarinnar. Hann þekkir af eigin raun sem faðir hvað slíkar heimsóknir geta stundum verið litlu fólki erfiðar. Það léttir oft heimsóknina ef verðlaun eru í boði og einnig er það gaman fyrir heilbrigðisstarfsfólkið að geta verðlaunað alla ungu dugnaðarforkana í lok heimsóknar á HSU.
Gjöfin er að andvirði 250.000 kr. og eru Aroni og öðrum starfsmönnum Hvítasunnukirkjunnar færðar kærar þakkir fyrir gjöfina og þann góða hug sem að baki býr.