Sérstakar kringumstæður eru í samfélaginu vegna COVID-19 faraldursins.
Ýmsum aðgerðum er beitt til draga úr hraða og fjölda smita og til að vernda áhættuhópa.
Þeim tilmælum er eindregið beint til skjólstæðinga HSU að:
- Koma ekki með aðstandendur með sér á biðstofur og í bókaða tíma nema nauðsyn krefji.
- Staldra sem styðst við á biðstofum, þ.e.a.s. að fara inn á stofnun og biðstofu einungis stuttu áður en tími á að hefjast og halda 2ja m. bilið.
- Grímuskylda. Allir 6 ára og eldri bera maska í viðtali, rannsóknum og öðrum erindagjörðum inni á stofnanir HSU. ATH að buff er ekki tekið gilt.
- Óska eftir að viðtalstíma sé breytt í símatíma eða myndsímtal ef þú telur að hægt sé að afgreiða erindið í gegnum síma.
- Nota heilsuvera.is – mínar síður- fyrir stuttar fyrirspurnir til heilbrigðisstarfsfólks sem og lyfjaendurnýjanir.
Ef þú þarft ráðgjöf hjúkrunarfræðinga vegna COVID-19 þá eru nokkrar leiðir:
– Vaktsíminn 1700
– Símtal á þína heilsugæslu á dagvinnutíma
– Samskipti á „Mínum síðum“ á heilsuvera.is
– Netspjall á heilsuvera.is – 8:00-22:00
Ávallt er að finna nýjustu upplýsingar á www.covid.is
Hvetjum alla til að sinna einstaklingsbundnum sóttvörnum.
Með samstöðu og hjálpsemi komumst við saman yfir þetta verkefni.