Þann 1. október sl. lét Guðný Helgadóttir af störfum sökum aldurs eftir tuttugu farsæl ár hjá heilsugæslu HSU í Vík.
Guðný starfaði alla tíð sem lækna- og móttökuritari auk þess að sinna einnig afgreiðslu í lyfsölu á heilsugæslunni.
Nýlega var haldið kveðjuhóf fyrir hana í Vík og henni þökkuð einstaklega samviskusöm og óeigingjörn störf við stofnunina í gegnum tíðina. Þá var henni einnig afhent þakkargjöf og færðar góðar óskir um velfarnað í komandi framtíð.