Miðvikudaginn 17. desember komu félagar úr Lionsklúbbnum Dynk í Skeiða-og Gnúpverjahreppi, færandi hendi til heilsugæslunnar í Laugarási. Þeir færðu heilsugæslunni 150.000 kr. Féð rennur í gjafasjóð heilsugæslunnar sem verður nýttur til tækjakaupa. Linonsklúbburinn Dynkur fær hjartans þakkir fyrir.
Föstudaginn 19. desember kom Oddný Jósepsdóttir og færði heilsugæslunni gjafir í tilefni afmælis síns í september s.l.. Það var stafræn myndavél og bók um snemmtæka íhlutun í málþroska barna. Við kunnum þessu fólki þakkir fyrir hlýhug í okkar garð.