Fimmtudaginn 18. september 2014 var formleg opnun á endurbættu og stækkuðu húsnæði heilsugæslu Rangárþings, Hellu. Í janúar 2014 var heilsugæslan lokuð og öll starfsemi flutt á Hvolsvöll og hafist handa við að endurbæta húsnæðið og stækka, því jafnframt var rýmið sem Lyf og heilsa var í áður, tekið undir starfsemi heilsugæslunnar. Endurbætt húsnæði heilsugæslunnar gjörbreytir öllu starfsumhverfi stöðvarinnar og bætir mjög aðstöðu starfsmanna og skjólstæðinga hennar.
Fjöldi gesta mætti á opnunina og fengu tækifæri á að skoða húsnæðið. Magnús Skúlason, fráfarandi forstjóri HSu hélt ræðu og tók á móti gjöfum til heilsugæslu Rangárþings í tilefni þessaara tímamóta.
Rauði Kross Rangárvallasýslu gaf „Lukas 2“ sjálfvirkt hjartahnoðtæki að verðmæti 2. miljónir króna til notkunar í sjúkrabíla Rangárþings. Var tækið gefið í minningu Einars Erlendssonar sjúkraflutningamanns Rangárþings, en hann varð bráðkvaddur fyrr á þessu ári.
Kvenfélag Oddakirkju gaf eyrnaskolunartæki að verðmæti 70 þúsund krónur.
Eru gefendum færðar sérstakar þakkir fyrir hlýhug til starfseminnar.
Myndirnar tók Sólveig Stolzenwald, starfsmaður HSu í Rangárþingi.