Heilbrigðisstofnun Suðurlands https://www.hsu.is www.hsu.is Fri, 15 Jun 2018 16:12:40 +0000 is hourly 1 https://wordpress.org/?v=4.9.6 Hvað er Heilsuvera ? https://www.hsu.is/hvad-er-heilsuvera/ Fri, 15 Jun 2018 16:10:39 +0000 https://www.hsu.is/?p=22862 Read More]]>

Heilsuvera er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar. Með Heilsuveru er leitast við að auka aðgengi almennings að upplýsingum um sín mál innan heilbrigðisþjónustunnar og jafnframt að koma á framfæri áreiðanlegri þekkingu um þroska, heilsu og áhrifaþætti heilbrigðis. Inn á „Mínum síðum“ er öruggt vefsvæði þar sem hægt er að eiga í samskiptum við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og nálgast gögn úr sjúkraskrá.

 

Með aðgangi að Heilsuveru geta einstaklingar nú fengið yfirsýn yfir lyfjanotkun sína, sótt rafrænt um endurnýjun lyfseðla, séð stöðu lyfseðla í lyfseðlagátt, séð ofnæmi sem hefur verið skráð í sjúkraskrá, séð framkvæmdar bólusetningar, átt örugg rafræn samskipti við heilbrigðisstarfsmenn og bókað tíma rafrænt á heilsugæslustöð. Auk þess er hægt að fá aðgang að upplýsingum eigin barna að 16. ára aldri, en aldurstakmarki var breytt úr 15. ára í 16. ára aldur í febrúar 2017.

 

Markmið með Heilsuveru

  • Veita almenningi rafrænan og öruggan aðgang að eigin heilbrigðisupplýsingum.
  • Auka þjónustu við almenning í heilbrigðiskerfinu þannig að einstaklingar geti nálgast eigin heilbrigðisupplýsingar án tafar, hvar og hvenær sem er, óháð því á hvaða heilbrigðisstofnun, heilsugæslustöð eða starfsstofu sérfræðings upplýsingarnar voru skráðar.
  • Gera einstaklingum kleift að eiga í öruggum rafrænum samskiptum við lækna, hjúkrunarfræðinga og aðra heilbrigðisstarfsmenn.
  • Hafa rafrænt eftirlit með áhættuhópum þar sem einstaklingar skrá eigin mælingar og fá fræðslu og ráðgjöf.
  • Veita áreiðanlegar upplýsingar um heilsu og áhrifaþætti heilbrigðis.

 

Aðgangur að Heilsuveru
Til þess að fá aðgang að eigin heilbrigðisupplýsingum í Heilsuveru þarf rafræn skilríki. Rafræn skilríki eru bæði fáanleg á snjallkortum og í farsímum. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu um rafræn skilríki, https://www.skilriki.is/

Til að skrá sig inn í Heilsuveru ferð þú inn á https://www.heilsuvera.is/ 

Til þess að fá aðgang að rafrænum tímabókunum á heilsugæslustöð og endurnýjun lyfjaseðla þarf að vera skráður á heilsugæslustöðina.

Hvet ég  þig lesandi góður, til að kynna þér og nýta heilbrigðisgáttina þína!

 

 

f.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir

Hjúkrunarstjóri Heilsugæslustöðinni Kirkjubæjarklaustri,

 

Heimildir: landlaeknir.is

 

]]>
Gjöf til HSU frá kvenfélögum Skeiða- og Gnúpverjahrepps https://www.hsu.is/gjof-til-hsu-fra-kvenfelogum-skeida-og-gnupverjahrepps/ Fri, 15 Jun 2018 14:24:04 +0000 https://www.hsu.is/?p=22858 Read More]]>

Á myndinni eru, frá vinstri, Harpa Dís Harðardóttir formaður Kvenfélags Skeiðahrepps, Bryndís Baldursdóttir gjaldkeri Kvenfélags Gnúpverja og Sigrún Símonardóttir formaður Kvenfélags Gnúpverja að afhenda Sigurjóni Kristinssyni yfirlækni og Rán Jósepsdóttur hjúkrunarstjóra tækið góða.

 

 

Kvenfélag Skeiðahrepps og Kvenfélag Gnúpverja komu færandi hendi á heilsugæsluna í Laugarási á vordögum og færðu stofnuninni sólarhringsblóðþrýstingsmæli að verðmæti 340.380. kr.

 

Þessi gjöf kemur sér afar vel og á eftir að nýtast vel til að fylgjast náið með blóðþrýstingi og er lykiltæki til að veita sem nákvæmasta og réttasta meðferð við blóðþrýstingsvandamálum. Tækið hefur þegar verið tekið í notkun og hefur strax sannað mikilvægi sitt við greiningu blóðþrýstingsvandamála uppsveitamanna.

 

Er báðum kvenfélögum færðar innilegar þakkir fyrir stuðninginn en kvenfélögin í sveitinni hafa stutt dyggilega við heilsugæsluna í Laugarási í áratugi og er það ómetanlegt.

 

]]>
Málþing HSU og HSA um fjarheilbrigðisþjónustu á Kirkjubæjarklaustri https://www.hsu.is/sameiginlegt-malthing-hsu-og-hsa-a-kirkjubaejarklaustri/ Tue, 05 Jun 2018 11:49:52 +0000 https://www.hsu.is/?p=22835 Read More]]>

Herdís Gunnarsdóttir forstjóri HSU

Mánudaginn 28. maí 2018 stóðu Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og Heilbrigðistofnun Austurlands (HSA) fyrir sameiginlegu málþingi á Kirkjubæjarklaustri.  Tilefnið var að fagna upphafi á notkun stofnanna á tækjabúnaði til fjarheilbrigðisþjónustu á 8 nýjum stöðum á Íslandi.

 

Tækjabúnaðurinn var keyptur fyrir styrkfé Velferðarráðuneytisins frá fyrirtækinu AMD Global Telemedicine.  Tækin sem HSU keypti verða staðsett í Laugarási, Hellu, Hvolsvelli og Vestmannaeyjum, en á Egilstöðum, Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupsstað fyrir austan.  Stefnt er á hjá HSU að fjölga þessum tækjum og að hver heilsugæsla hafi slíkt tæki til umráða.  Á heilsugæslu HSU á Klaustri er hefur verið unnið frumkvöðulsstarf í fjarheilbrigðisþjónustu á Íslandi og þar hefur verið tæki til fjarheilbrigðisþjónustu í fimm ár og gefist einstaklega vel. Tækið á Kirkjubæjarklaustri er til komið vegna frumkvæðis íbúa, Sigurðar Árnasonar læknis og Auðbjargar B. Bjarnadóttur hjúkrunarstjóra. Þótti því við hæfi að halda málþingið á Klaustri, enda studdu íbúar myndarlega við þessa mikilvægu viðbótarlausn í heilbrigðisþjónustu á staðnum. 

 

Áður en málþingið hófst bauð HSU uppá opið hús á heilsugæslustöðinni á Kirkjubæjarklaustri þar sem gestir gátu skoðað nýuppgert húsnæðið, fjarheilbrigðisþjónustutækið og þegið veitingar.

Málþingið sjálft var haldið í Icelandair Hótel Kirkjubæjarklaustri þar sem Herdís Gunnarsdóttir forstjóri HSU setti málþingið formlega.  Alls voru fimm fyrirlesarar á málþinginu; Auðbjörg Bjarnadóttir hjúkrunarstjóri Kirkjubæjarklaustri, Guðjón Hauksson forstjóri HSA, Hjörtur Kristjánsson framkvæmdastjóri HSU og loks frá AMD Global Telemedicine Eric Bacon forstjóri og Riley Normandin framkvæmdastjóri alþjóðaviðskiptadeildar fyrirtækisins. 

 

Málþingið varpar nú ákveðin tímamót í heilbrigðisþjónustu á Íslandi er að þar sem nú er loks farið af stað með nýtt form á sömu þjónustu og áður.  Væntingarnar eru miklar, ekki eingöngu til notkunar á nýrri tækni heldur einnig væntingar sem fólgnar eru í því að geta fært sérhæfða heilbrigðisþjónustu nær íbúum í dreifðum byggðum. Árangur af verkefnum á sviði fjarheilbrigðisþjónustu hefur oft skilað miklu hagræði, sem er m.a. fólgið í því að sjúkraflutningum hefur fækkað, ferðakostnaður skjólstæðinganna sem þurfa á sérfræðiþjónustu að halda hefur minnkað og skilað betri nýtingu sérfræðinga og fagfólks. Verkefni sem þetta er ekki hugsað til að leggja niður þjónustu eða spara. Fjarheilbrigðisþjónustan snýst um að nýta tíma og fjármuni á sem bestan hátt á sama tíma og þjónustan er færð nær íbúum með aukinni samvinnu fagaðila innan og milli stofnanna í heilbrigðisþjónustu.  Það sem er mikilvægast er að sjúklingur fáir skoðun og úrlausn í sínu héraði þegar þess er kostur.

 

Búnaðurinn sem HSA og HSU keyptu gengur með öðrum tölvubúnaði og hann má nýta á margan hátt og búið er að samtengja tækin við rafræna sjúkraskrárkerfið Sögu.  Fjarheilbrigðistækjunum fylgja ýmis tæki m.a. til að mynda í eyru, augu, munn, húð.  Að auki fylgja  hjartsláttarrit, blóðþrýstingsmælir, mettunarmælir, hjartalínurit og öndunarmælir.  Tæknin býður uppá þrívíddarskoðun, þar sem hægt er að skoða hreyfingu sjúklings og fleira.  Samhliða almennri heilsugæsluþjónustu og þjónustu sérgreinalækna má einnig nýta búnaðinn til bráðaþjónustu, sálfræðiþjónustu, fjareftirlit með sjúklingum, heimahjúkrunar og fjarþjálfunar.  Svona tæki gætu mögulega verið til staðar t.d. í skólum og á fjölsóttum ferðamannastöðum eða litlum þéttbýlisstöðum þar sem engin heilbrigðis- eða læknisþjónusta er venjulega til staðar. 

 

Þróunin heldur áfram og er nú unnið að því að koma búnaðinum fyrir á þessum nýju stöðum á Íslandi.  Þjálfum starfsmanna er hafin og fullur hugur í heilbrigðisstarfsfólki og stjórnendum HSA og HSU að leggja sitt að mörkum við að jafna aðgengi íbúa á landsbyggðinni að heilbrigðisþjónustu.

 

 

 

 

 

]]>
Heilbrigðisstofnun Suðurlands og þjóðgarðurinn á Þingvöllum (HSU) undirrita samning https://www.hsu.is/thjodgardurinn-a-thingvollum-og-heilbrigdisstofnun-sudurlands-hsu-gera-samning/ Fri, 01 Jun 2018 14:51:15 +0000 https://www.hsu.is/?p=22824 Read More]]>

Herdís Gunnarsdóttir forstjóri HSU og Einar Á.E.Sæmundsen Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum undirrita samninginn.

Í dag 1. júní 2018 var undirritaður samningur um bætt viðbragð neyðaraðstoðar í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Verkefnið felur í sér að HSU staðsetur sérútbúinn viðbragðsbíl ásamt sjúkraflutningamanni á dagvakt í þjóðgarðinum. Sjúkraflutningamaður mun sinna útköllum innan þjóðgarðsins er varða öryggis- og viðbragðsmál, þar á meðal útköll vegna slysa, sjúkdóma eða önnur atvik sem koma geta upp í þjóðgarðinum. Viðvera þjónustunnar miðast við dagvakt alla daga en sá tími er fjölfarnasti tími ferðamanna á Þingvöllum.
Fyrir utan að sinna neyðaraðstoð þegar hennar er þörf verður einnig aukin kennsla til starfsmanna þjóðgarðsins í skyndihjálp. Að auki mun HSU koma að gerð öryggis og viðbragðsáætlunar fyrir þjóðgarðinn í samstarfi við Almannavarnardeild lögreglunnar og Lögreglustjórann á Suðurlandi.
Samningurinn er hugsaður til framtíðar en er gerður til reynslu fyrir sumarið 2018 og gildir frá 1.júní 2018 til 1. október 2018.
Samningurinn var undirritaður við Gestastofuna á Haki kl. 12.30 í dag.

 

 

]]>
Gáttatif – atrial fibrillation https://www.hsu.is/gattatif-atrial-fibrillation/ Thu, 31 May 2018 15:19:41 +0000 https://www.hsu.is/?p=22810 Read More]]> Gáttatif er rafleiðnitruflun í leiðslukerfi hjartans. Í hjartanu er innra leiðslukerfi sem stjórnar hjartsláttartíðni og takti. Þegar hjartað slær, færist boðspenna frá toppi hjartans til botns þess og veldur því að hjartað dregst saman og dælir blóði út til líkamans. Þegar hjartað slær eðlilega er hjartsláttartíðni þess undir stjórn Sinus hnútar (gangráður), sem er staðsettur í hægri gátt hjartans. Sinus hnúturinn er gerður úr sérhæfðum hjartavöðvafrumum sem mynda boðspennu. Sinus hnúturinn stjórnar svokölluðum sinus takti sem er eðlilegi taktur hjartans. Boðspenna frá sinus hnút færist hratt um gáttir hjartans og veldur því að þær dragast saman og dæla blóði niður í slegla. Á milli gátta og slegla hjartans er veggur úr þéttum vef sem stöðvar leiðni þar á milli, og þarf boðspennan því að fara í gegnum sérstakar frumur í AV-hnút/torleiðnihnút til þess að komast niður í slegla og valda samdrætti þeirra.

Þegar gáttatif á sér stað hefjast rafboð hjartans ekki í sinus hnútnum, heldur berast tíð, óregluleg rafboð frá mismunandi stöðum í gáttinni. Aðeins hluti af  rafboðum frá gáttunum berast til slegla og framkalla samdrátt og því verður púlsinn óreglulegur og geta hjartans til þess að dæla verður minni.

 

 

Helstu einkenni:

  • Þreyta, úthaldsleysi
  • Hraður óreglulegur hjartsláttur
  • Hjartsláttaróþægindi
  • Andnauð, mæði
  • Brjóstverkir, þyngsli fyrir brjósti
  • Svimi og jafnvel yfirlið
  • Sviti, ógleði

Það geta komið ýmsir fylgikvillar í kjölfar gáttatifs, en gáttatifið sjálft er þó yfirleitt ekki hættulegur taktur. Gáttatif veldur því að sleglar hjartans slá of hratt og til lengri tíma getur það mögulega veikt hjartavöðvann. Ef dælugeta í vinstri gátt skerðist getur verið hætta á myndun blóðsega. Áhætta á blóðsegamyndun getur verið breytileg milli einstaklinga og er gert mat á áhættu hjá hverjum og einum og tekin ákvörðun um blóðþynningarmeðferð.

 

Helstu orsakir og áhættuþættir:

  • Hjartasjúkdómar
    • Kransæðasjúkdómar, háþrýstingur, hjartabilun, hjartalokusjúkdómur, sjúkdómur í hjartavöðva
  • Sykursýki
  • Langvinnir lungnasjúkdómar
  • Alvarleg veikindi eða sýkingar
  • Offita
  • Kæfisvefn
  • Ættarsaga eða erfðir
  • Aldur yfir 60 ára.

 

 

f.h. Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Bryndís Erlingsdóttir, hjúkrunarfræðingur Heilsugæslutöðvar Selfoss

]]>
Sumaropnun Heilsugæslunnar í Rangárþingi https://www.hsu.is/sumaropnun-heilsugaeslunnar-i-rangarthingi/ Thu, 31 May 2018 13:41:40 +0000 https://www.hsu.is/?p=22802

]]>
Stjórnendadagar HSU https://www.hsu.is/stjornendadagar-hsu/ Sat, 26 May 2018 12:39:54 +0000 https://www.hsu.is/?p=22798 Read More]]> Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands hélt stjórnendadaga fyrir alla millistjórnendur stofnunarinnar á Natura Hótel Reykjavík dagana 23. til 24. maí 2018. Um 30 stjórnendur sóttu dagana en tilgangur slíkra daga er að styrkja liðsheildina og miðla þekkingu og fróðleik á sviði stjórnunar og rekstrar. Leitast var við að ýta undir hugmyndaauðgi, leita leiða til að nýta kraftana enn betur til að efla þjónustuna og gera stofnunina að betri vinnustað.

Til leiks mættu nokkrir frábærir fyrirlesarar með fróðleiksmola og styttri vinnustofur. Fengu stjórnendur m.a. kynningu á nýjum persónuverndarlögum sem taka gildi um þessar mundir og hvaða breytingar þau muni hafa í för með sér um meðferð persónugreinanlegra gagna hjá fyrirtækjum og stofnunum.  Einnig var farið yfir mikilvægi góðra samskipta og var samskiptasáttmáli LSH var kynntur og farið yfir alla þá miklu vinnu sem þar lá að baki og góð ráð gefin verði farið í slíka vinnu á HSU.  Einnig var rætt um þrískipta ábyrgð stjórnandans við faglega stjórnun, rekstur og mannauðsmál.  Sóun og virði í heilbrigðiskerfinu var rædd og hvernig hugmyndafræði Lean getur hjálpað til við að bæta ferla við stjórnun og skipulag og komið þannig í veg fyrir sóun á tíma, fjármunum og öðrum auðlindum.  Farið var yfir áskoranir og tækifæri HSU í því umhverfi þar sem þjónustan vex gífurlega hratt og fjármagn fylgir ekki komufjölda sjúklinga. Jafnframt var kynnt niðurstaða könnunar sem gerð var meðal starfsmanna HSU um ánægju og líðan í starfi, en athygli vakti að ríflega 84% starfsmanna eru ánægðir eða mjög ánægðir í starfi hjá HSU, sem telst nokkuð gott. Stjórnendadagarnir enduðu á skemmtilegum fyrirlestri í léttari kantinum um það hvernig skapa eigi sterkari liðsheild. 

Allt frábærir fyrirlestrar sem skilja eftir fróðleik og góðar hugmyndir. Stjórnendadagarnir þóttust takast einstaklega vel, en þetta er í fimmta sinn sem þeir eru haldnir eftir sameiningu.  Við þökkum öllum þátttakendum fyrir þeirra framlag.

 

 

 

 

]]>
Eden hugmyndafræðin á Fossheimum og Ljósheimum https://www.hsu.is/eden-hugmyndafraedin-a-fossheimum-og-ljosheimum/ Wed, 16 May 2018 14:34:16 +0000 https://www.hsu.is/?p=22784 Read More]]>

 

Á síðustu árum hafa ýmsir fræðimenn og frumkvöðlar mótað nýja hugmyndfræði og leiðir til þess að mæta sem best þörfum einstaklinga á hjúkrunarheimilum.  Einn þessara fræðimanna var dr. William Thomas, læknir á bandarísku hjúkrunarheimili.   Eftir að hafa rannsakað líðan fólks á hjúkrunarheimilum, komst hann að þeirri niðurstöðu að einmanaleiki, leiði og vanmáttarkennd  voru oft meginástæður vanlíðunar hjá íbúum.  Út frá þeirri vitneskju þróaði hann hugmyndafræði sem miðaði að því að draga úr þessum einkennum hjá íbúum og stuðla að því að þeir nytu sem best hins daglega lífs.

Megináherslur Eden hugmyndafræðinar eru  að íbúar haldi sjálfræði sínu og virðingu í sínu daglega lífi. Áhersla er lögð á að starfsfólk þekki siði og venjur íbúans áður en hann flytur á hjúkrunarheimilið og að íbúinn fái tækifæri til þess að viðhalda þeim eins og mögulegt er.  Á þennan hátt er litið á hjúkrunarheimilið sem heimili þeirra einstaklinga sem þar búa en ekki sem stofnun. 

Hjúkrunarheimilið Fossheimar og Ljósheimar hafa undanfarin ár lagt áherslu á hugmyndfræði Edenstefnunnar í sinni starfsemi.  Það hefur verið  gert með reglulegri fræðslu til starfsfólks hjúkrunarheimilanna og var meðal annars fengin  aðstoð  frá Eden samtökum á Íslandi sem héldu  þriggja daga námskeið fyrir allt starfsfólk nú í haust.

Á Fossheimum og Ljósheimum er lögð áhersla á lítil og heimilisleg rými fyrir íbúanna  þar sem reynt er að hafa umhverfið eins  rólegt og notalegt og kostur er.  Hver íbúi hefur  sitt  persónulega rými, sína persónulegu muni á sínu herbergi og eigin  bað- og salernisaðstöðu. Mikil áhersla er lögð á virðingu fyrir persónu hvers einstaklings og lífsögu hans.  Markmiðið er einnig að krydda  hversdaginn með ýmiskonar viðburðum, stórum og smáum þar sem allir eru þátttakendur, bæði starfsmenn og íbúar.  Börn, dýr og plöntur eru þekktar hjalparhellur í Eden hugmyndafræðinni vegna áhrifa þeirra á andlega líðan. Við fáum reglulega börn í heimsókn til okkar auk þess sem gott samstarf er við unglingadeild  tónlistarskóla Suðurlands og Fjölbrautaskóla Suðurlands. Lifandi plöntur eru víða á hjúkrunarheimilinu og einnig fiskabúr sem nýtur mikillar hylli.  

Eden hugmyndafræðin er daglegt ferðalag sem stöðugt verður að hlúa að. Það gerum við með því að vera meðvituð um störf okkar og samskipti hverja stund.

 

 

f.h. heilbrigðisstofnunar Suðurlands

Guðlaug Einarsdóttir deildarstjóri Foss- og Ljósheima

Sólveig Hrönn Gunnarsdóttir aðstoðardeildarstjóri Foss- og Ljósheima

]]>
Stúlka f. 20.03.2018 https://www.hsu.is/stulka-f-20-03-2018/ Wed, 09 May 2018 17:19:00 +0000 https://www.hsu.is/?p=22780 Móðir: Kristþóra Gísladóttir

Faðir: Guðbrandur Daníelsson

Heimili: Heiðmörk 32

Ljósmóðir: Halla Björg Lárusdóttir

Þyngd: 3890 gr

Lengd: 52 cm

]]>
Föstudagspistill forstjóra https://www.hsu.is/fostudagspistill-forstjora-20/ Fri, 04 May 2018 22:37:42 +0000 https://www.hsu.is/?p=22769 Read More]]> 4. maí 2018

 

Kæra samstarfsfólk.

 

 

Nú þegar fjórðungur er liðinn af árinu er ljóst að rekstur ársins 2018 verður áskorun fyrir okkur.  Hingað til höfum við haldið að okkur höndum með þær nauðsynlegu viðbætur sem þarf að setja inn í þjónustuna og mönnun hjá okkur. Verulegar viðbætur voru settar inn í rekstrarfé stofnunarinnar á árinu 2017 en þó ekki í samræmi við nauðsynlegar viðbætur til að manna grunnþjónustuna að fullu.  Ég hef lagt áherslu á að þau reiknilíkön sem notuð eru til að áætla okkar rekstarfé séu réttmæt og áreiðanleg og taki sem best mið að þeim raunveruleika sem við búum við í grunnheilbrigðisþjónustu á Suðurlandi. Nauðsynlegt er að endurskoða reiknilíkön þannig að þau þjóni tilgangi sínum.  Ör vöxtur í fjölgun íbúa og þjónustu við ferðamenn í umdæminu okkar setur miklar kröfur á okkur um að uppfylla skyldur okkar samkvæmt lögum, en fyrir hlutfallslega minna fé.

 

Uppgjör síðasta árs sýnir gífurlega aukningu í allri okkar starfsemi.  Fordæmalaus aukning er í þjónustunni,  bæði í heilsugæslu, samdægursmóttökum, rúmanýtingu sjúkrarýma, biðtíma eftir hjúkrunarrýmum, aukningu í heimahjúkrun, fjölda sjúkraflutninga og komum á bráða- og slysamóttöku. Sem dæmi má nefna að frá ári sameiningar HSU, á fjögurra ára tímabili, frá árbyrjun 2014 til og með árinu 2017 hefur komum á slysa og bráðmóttöku á Selfossi fjölgað um 44%, sjúkraflutningar í umdæminu hafa aukist um 37%, og fjöldi vitjana í heimahjúkrun hafa aukist um 84% í Vestmannaeyjum, 109% í Þorlákshöfn og 91% í Laugarási.

 

Í dag var framkvæmdastjórn HSU boðuð til fundar hjá Velferðarnefnd Alþingis til að ræða þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun 2019-2023.  Á fundinum var nefndarmönnum afhent tölfræðileg gögn og upplýsingar um starfsemina og farið yfir þjónustuna, tækifærin og stærstu áskoranirnar í rekstri HSU. Á fundinum fór fram gott samtal um fjölbreytta starfsemi HSU, fjölgun íbúa, vöxt á öllum sviðum starfseminnar í rekstri heilsugæslu, bráðþjónustu, utanspítalaþjónustu, sjúkrahúsþjónustu og rekstur hjúkrunarrýma, eflingu sérfræðiþjónustu, kjör og starfsumhverfi heilbrigðisstétta.  Einnig var rætt um þann góða árangur sem náðst hefur hjá HSU að laða til sín gott og öflugt starfsfólk og þá sérstöðu að hjá okkur skuli nánast allar stöður vera fullskipaðar.  Það er ekki sjálfsagt í umhverfi þar sem mikil vöntun er víða á heilbrigðisstarfsfólki og vakti athygli þingmanna í nefndinni. Eins var farið yfir að núverandi tillaga í fjármálaáætlun uppfyllir ekki þarfir HSU fyrir rekstrarfé til að mæta framangreindri aukningu í þjónustunni. Við þökkum fyrir góða áheyrn sem við fengum í Velferðarnefnd og þann áhuga sem þingmenn sýndu starfseminni.

 

Góða helgi,

Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU.

 

 

 

]]>