Aðalfundur Vinafélags Ljósheima og Fossheima verður haldinn sunnudaginn 10. apríl 2016 á hjúkrunardeild Fossheima v/Árveg kl. 14:00.
Á dagskránni verður venjuleg aðalfundarstörf .
Einsöngur í flutningi Höllu Marinósdóttur.
Að venju kaffiveitingar í boði félagsins.
Ársskýrsla fyrir árið 2015 mun liggja frammi á aðalfundinum.
Einnig er hægt að nálgast skýrsluna á heimasíðu HSU.
Allir velkomnir.
Stjórn Vinafélags Ljósheima og Fossheima