Á dögunum lét Guðlaug Oddgeirsdóttir af störfum sökum aldurs. Hún starfaði sem móttöku- og læknaritari við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Hvolsvelli, í tæp 18 ár.
Nýverið var henni haldið kveðjuhóf með sameiginlegum morgunverði samstarfsfólks í Rangárþingi og afhent þakkargjöf um leið og henni voru þökkuð vel unnin störf og færðar óskir um velfarnað í komandi framtíð.