Þú ert hér:
Forsíða » Stoðþjónusta » Læknaritarar


Læknaritarar

 

Hér er að finna upplýsingar um störf læknaritara Við erum staðsettar á heilsugæslunni á 1. hæð til vinstri. Þar sinnum við allri læknaritaravinnu fyrir bæði heilsugæslustöðina og deildir sjúkrahússins sem eru: Fæðinga– og kvensjúkdómadeild, handlæknisdeild, lyflækningadeild, röntgendeild, hjúkrunardeildirnar Fossheima og Ljósheima, auk þess vinnum við fyrir Fangelsið á Litla-Hrauni.

 

Hvað er læknaritari ?

Læknaritari er löggilt heilbrigðisstétt – viðurkennd af Heilbrigðisráðuneytinu.
Læknaritari hefur næga faglega þekkingu til að skrá hvers konar læknisfræðilegar skýrslur varðandi sjúkdóma eða slys á fólki.
Læknaritari er samstarfsmaður lækna í öllum sérgreinum læknisfræðinnar við að útbúa læknisfræðilegar skýrslur sem eru ómetanlegar heimildir varðandi sjúkdóma einstakra sjúklinga og fyrir vísindastörf varðandi sjúkdóma og slys.
Læknaritari er mikilvægur hlekkur í keðju heilbrigðisstarfsfólks við sjúkrahús, heilsugæslustöðvar, læknastofur og vísindastofnanir innan læknisfræðinnar.
Læknaritari þarf að hafa staðgóða þekkingu á líffærafræði, sjúkdómafræði, læknisfræðiheitum, lyfjafræði, læknisfræðilegum aðgerðum og rannsóknum.
Læknaritari hefur faglega þekkingu og siðfræði að leiðarljósi.
Læknaritari þarf að þekkja til heilbrigðis- og tryggingalöggjafarinnar, vita um helstu sjúkdóma í nútíma samfélagi svo og þekktar forvarnir.

 

 
Hólmfríður Einarsdóttir
yfirlæknaritari
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Anna Björg Þorláksdóttir
 
Erna Sigurjónsdóttir
 
Guðfinna Ólafsdóttir
 
Ingunn Ú. Sigurjónsdóttir
 
Steinunn Hrafnkelsdóttir
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Sigríður Björk Sigurðardóttir
Hella Hveragerði Hvolsvöllur Kirkjubæjarklaustur Laugarás Selfoss Vík í Mýrdal Þorlákshöfn Sjúkraflutningar Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Símaskrá Starfsmenn Swedish English Polish Thai