Þú ert hér:
Forsíða » Stoðþjónusta » Endurhæfing



Gunnhildur Vilhjálmsdóttir er yfirsjúkraþjálfari á endurhæfingadeild
Við HSu er starfandi 1 sjúkraþjálfari í fullri stöðu.  Sinnir hann öldrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum í 20% stöðu á hvorri deild, og skurð- og lyflæknissviði í 60% stöðu.  Á öldrunardeildinni metur og þjálfar/meðhöndlar sjúkraþjálfari ýmsa þætti eftir því sem ástæða er til, hvort heldur sem er í einstaklings- eða hópmeðferð. 
Sjúkraþjálfarinn vinnur ásamt öðrum starfsstéttum að því að:
meta, viðhalda og bæta líkamlega og andlega færni þeirra sem þar dvelja
meta þörfina á hjálpartækjum koma í veg fyrir einangrun með því að auka félagsleg samskipti innan deildar sem utan auka virkni einstaklinganna og hjálpa þeim að finna og nýta sér þá dægradvöl sem þeir hafa gagn og ánægju af gera einstaklingana hæfa til að dvelja utan sjúkrahúss og endurhæfa þá sem koma til tímabundinnar dvalar þannig að þeir komist í sitt fyrra umhverfi, hugsanlega að undangenginni heimilisathugun.
Á legudeildinni við Árveg er fyrst og fremst um einstaklingsmeðferð sjúkraþjálfara að ræða.
Á skurðlæknissviði er bæði er um að ræða mat og meðferð fyrir aðgerðir eftir því sem þörf er á, auk þess sem sjúkraþjálfari sér um þjálfun eftir aðgerðir hvort sem þær eru gerðar innan sjúkrahússins eða utan. 
Lyflæknissviði HSu er einnig sinnt af sjúkraþjálfara í formi einstaklingsmeðferðar eftir þörfum. 

Á báðum sviðum metur sjúkraþjálfarinn í samvinnu við annað fagfólk á deildinni þörfina á hjálpartækjum eða annarri hjálp eftir útskrift af deildinni.  Auk þess er metið hvort þörf er á áframhaldandi meðferð eftir útskrift af deildinni.
Sjúkraþjálfari mun sinna sængurkonum á deildinni ásamt starfsfólki sængurkvennagangs, meðferð og fræðslu. 
Auk þessa tekur sjúkraþjálfari þátt í fræðslu og verklegri þjálfun starfsfólks stofnunarinnar.

Hella Hveragerði Hvolsvöllur Kirkjubæjarklaustur Laugarás Selfoss Vík í Mýrdal Þorlákshöfn Sjúkraflutningar Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Símaskrá Starfsmenn Swedish English Polish Thai