Þú ert hér:
Forsíða » Sjúkrasvið » Fæðingadeild » Fæðingadeild HSu


Fæðingadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

 

 

 

 

 

 

 

 

Fæðingadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi er fæðingadeild Sunnlendinga.

Hér geta allar konur fætt eigi þær eðlilega meðgöngu að baki og ef fæðingu ber eðlilega að. Á fæðingadeildinni starfa reyndar ljósmæður sem leggja sig fram um að skapa heimilislegt andrúmsloft en gæta þó á sama tíma fyllsta öryggis móður og barns.

 

Fæðingadeild HSu hefur fjölþætt hlutverk. Þar er ekki einungis tekið á móti börnum, heldur er fæðingadeildin miðstöð fyrir meðgönguvernd, göngudeildarþjónustu við barnshafandi fjölskyldur og sængurlegu eftir fæðingu.  Að auki sjá ljósmæður deildarinnar um fæðingarundirbúningsnámskeið fyrir verðandi foreldra. Markmið deildarinnar er að hlúa að fjölskyldum í barneignarferlinu eins og kostur er, sem næst þeirra heimahögum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fæðingadeildin er til húsa á annarri hæð gamla sjúkrahússins. Þar er mæðraverndarstofa og 2 sængurlegustofur ásamt setustofu og baðherbergi. Vaktherbergi ljósmæðra er þar einnig, sem og umönnunarrými fyrir ungbörnin. Fæðingastofan er staðsett annarsstaðar á sömu hæð í hléi frá utanaðkomandi truflun. Út frá fæðingastofunni er baðherbergi þar sem er gott hornbaðkar sem er mikið notað til verkjameðferðar í fæðingu og margar konur kjósa að fæða þar einnig. Reyndar var fæðingadeildin á Selfossi fyrsta fæðingadeild landsins sem tók upp vatnsböð í fæðingu, 1994, og gerði konum kleyft að fæða í vatni inni á sjúkrahúsi.

Verðandi foreldrum er velkomið að skoða deildina í samráði við ljósmóður á vakt, en ráðlegt er að hringja áður ef vera kynni að ljósmóðir væri upptekin. Síminn er: 480 5164

 

 

Hella Hveragerði Hvolsvöllur Kirkjubæjarklaustur Laugarás Selfoss Vík í Mýrdal Þorlákshöfn Sjúkraflutningar Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Símaskrá Starfsmenn Swedish English Polish Thai