Þú ert hér: Forsíða > Lausar stöður >

Árið 2007 voru rúmlega 500 manns á launaskrá hjá HSu en stofnunin þjónar um 20 þúsund íbúum Suðurlands auk fjölda ferðamanna og íbúa sumarhúsa á svæðinu.

Stöðugildi lækna voru 25, tæplega 50 stöðugildi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Þá eru 16 stöðugildi sjúkraflutningamanna. Í eldhúsi, þvottahúsi og við ræstingu eru um 25 stöðugildi.  Lækna- og móttökuritara  um 25.
Við stofnunina starfa einnig geislafræðingar, lífeindafræðingar, sjúkraþjálfari og iðjuþjálfi í alls um 10 stöðugildum.
Á skrifstofu eru 6 stöðugildi og við stofnunina starfa einnig iðnaðarmenn sem sjá um viðhald fasteigna.
Við réttargeðdeildina eru rúmlega 30 stöðugildi en þar starfa m.a. geðlæknir, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfari og öryggisgæslumenn auk staðarhaldara og starfsfólks í eldhúsi.

HSu samanstendur af 8 heilsugæslustöðvum, sjúkrahúsi á Selfossi og réttargeðdeild en auk þess þjónustar stofnunin fangelsið á Litla Hrauni.

Umsóknareyðuðblað

Lausar stöður - smelltu til að skoða.