Þú ert hér:
Forsíða » Læknisþjónusta » Bráða- og slysamóttaka


Bráðamóttaka er starfrækt á HSu með sólarhringsvakt læknis og hjúkrunarfræðings. 

 

 

 Bráðamóttakan er opin allan sólarhringinn og sími móttökunnar er 480 5112.   

 

Daglega leita á bilinu 20-70 manns á móttökuna, ásamt því að fjölda manns er sinnt með ráðgjöf í síma.

 

Yfirlæknir Bráðamóttöku er Arnar Þór Guðmundsson og hjúkrunarstjóri er Guðrún Kormáksdóttir.

 

 

Bráðamóttakan var opnuð 1. febrúar 2011 og er staðsett á fyrstu hæð gömlu byggingar. 

Þar starfar læknir og hjúkrunarfræðingur allan sólahringinn. 

Á móttökuna koma inn bráða veikindi og slys

Fjöldi koma eru  20-70 manns á dag (með vaktþjónustu lækna frá 16-18 og 10-12 um helgar).

Helstu vandamál sem fólk leitar út af eru m.a.:

Bráðaveikindi (hár hiti hjá litlum börnum eða eldra fólki)

Sár (sem þarf að meta hvort þurfi að sauma)

Stoðkerfisvandamál (tognanir eða brot)

Andþyngsli

Brjóstverkir

Endurkomur í gifsskiptingu

Reglulegar lyfjagjafir (oftast í sýklalyfjagjafir) sem hjúkrunarfræðingarnir eru að sinna. 

 

Skammverurúm

Á Bráðamóttökunni eru tvö rúm sem notuð eru í skammtíma veikindum.  Þarna getur fólk legið í allt að sólahring.  Oft er hér um fullorðið fólk að ræða sem þarf  að fylgjast með og þarf t.d. vökvagjöf vegna langvarandi veikinda en getur farið heim eftir það.  Einnig ef þarf að fylgjast með fólki eftir t.d. höfuðhögg, verki sem verið er að reyna finna út af hverju stafa o.s.frv. 

 

Bráðasíminn sem hjúkrunarfræðingur er með allan sólahringinn þar sem fólk hringir og er að ráðfæra sig um hin ýmsu vandamál. 

 

Starfsfólk

Heimilislæknar og hjúkrunarfræðingar hand- og lyflæknisdeildar sinna Bráðamóttökunni.

Hella Hveragerði Hvolsvöllur Kirkjubæjarklaustur Laugarás Selfoss Vík í Mýrdal Þorlákshöfn Sjúkraflutningar Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Símaskrá Starfsmenn Swedish English Polish Thai