Þú ert hér:
Forsíða » Heilsugæslan Selfossi » Unglingamóttaka


Móttakan er opin unglingum / ungu fólki á aldrinum 13 – 20 ára.

Móttakan er opin á föstudögum kl. 15 – 16 á heilsugæslunni á Selfossi. Ekki þarf að panta tíma og þjónustan er gjaldfrí.
Á unglingamóttökunni vinna Rut Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur
rut@hsu.is og Eygló Aradóttir læknir. Síminn er 480 5100 á opnunartíma móttökunnar. Hægt er að senda fyrirspurnir í netpósti, sem reynt verður að svara eftir föngum.

Reynt er að sinna þörfum þeirra sem eiga við tilfinningaleg vandamál að stríða, kvíða, depurð, áfengis- og vímumál, einelti, kynsjúkdóma eða vilja ræða getnaðarvarnir og kynlífsvandamál. Fyrst og fremst vonumst við til að móttakan mæti þörfum þeirra, sem ekki hafa talið sig geta nýtt þjónustu heilsugæslustöðvarinnar með hefðbundnum hætti vegna opnunartímans og fyrirhafnar við að panta tíma.

Móttakan er ekki ætluð fyrir vottorðabeiðnir eða pestavandamál. Þeim skal beint til heimilislæknis.
Markmið með unglingamóttöku er að vinna að bættum lífsgæðum og aðstæðum unglinga og ungs fólks með því að:
 

·         hvetja með fræðslu til bættrar sjálfsmyndar, sjálfsöryggis og stuðla að jákvæðu félagsumhverfi unglinga

·         bæta geðheilbrigði með aukinni þjónustu til þeirra sem eiga við tilfinningaleg vandamál að stríða, kvíða, depurð og einelti

·         draga úr reykingum ungs fólks, áfengis-og vímuefnaneyslu

·         draga úr ótímabærum þungunum ungra kvenna með því að gera getnaðarvarnir aðgengilegri ásamt fræðslu um siðfræði kynlífs og barneigna,

·         draga úr afleiðingum kynsjúkdóma s.s. ófrjósemi ü ungt fólk og unglingar í Árborg þekki og nýti sér aðgengi heilbrigðis- og félagsþjónustu Árborgar


Vakin er athygli unglinga í neyð á veffangi
Rauðakrosshússins í Reykjavík:
Hjálparsími Rauðakrossins: 1717   Er lífið erfitt – segðu okkur – við hlustum

Tenglar:

Sálræn skyndihjálp fyrir unglinga: http://www.redcross.is/efbara

Unglingavefur Doctor.is: http://www.doktor.is/hvadermalid/

Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir: http://www.fkb.is

Bæklingur um kynsjúkdóma: Sannleikurinn er sagna bestur

Hella Hveragerði Hvolsvöllur Kirkjubæjarklaustur Laugarás Selfoss Vík í Mýrdal Þorlákshöfn Sjúkraflutningar Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Símaskrá Starfsmenn Swedish English Polish Thai