Markmið skólaheilsugæslu er að stuðla að því að börn fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu andlegu, líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á.
Heilsugæsla skólabarna er framhald af ung- og smábarnavernd.
Skólaheilsugæslan leitast við að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra.
Starfsfólk skólaheilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við foreldra / forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda.
Farið er með slíkar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Reglubundnar skoðanir og bólsetningar
1. bekkur Sjónpróf, heyrnarpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling
4. bekkur Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling
7. bekkur Sjónpróf, hæðarmæling, þyngdarmæling og athugun á litaskyni. Bólusett gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta)
9. bekkur Sjónpróf, heyrnarpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling. Mældur blóðþrýstingur.
Bólusett gegn mænusótt, barnaveiki og stífkrampa (tvær sprautur)
Nemendur í öðrum árgöngum eru skoðaðir ef ástæða þykir til.
Skólaheilsugæsla fylgist einnig með því að börn hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli Landlæknis segja til um. Ef börn hafa ekki fengið fullnægjandi bólusetningar verður haft samband við foreldra áður en bætt er úr því.
Tannvernd
Flúorskolun fer fram í skólanum hjá 1., 7. og 10. bekk tvisvar í mánuði
Svefn, nesti og skjólfatnaður
Reglulegur og nægjanlegur svefn er mikilvægur fyrir heilsu og þroska barna. Börn þurfa að sofa 10-12 klst. á nóttu. Skóladagur nemenda er langur, mikilvægt er að borða reglulega og hafa með sér hollt og gott nesti. Einnig er nauðsynlegt að nemendur séu í góðum skjólfatnaði og með húfu og vettlinga.
Slys og veikindi
Veitt er fyrsta hjálp í skólanum og minniháttar slysum sinnt. Þurfi nemendur að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar / forráðamenn fara með barninu. Mikilvægt er að skólinn hafi öll símanúmer sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt í skólanum.
Ef barn er með greindan alvarlegan sjúkdóm sem getur stefnt heilsu / lífi þess í bráða hættu er nauðsynlegt að skólaheilsugæsla viti af því. Hér er átt við sjúkdóma eins og t.d. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki og blæðingarsjúkdóma.
Lyfjagjafir
Samkvæmt fyrirmælum Landlæknisembættisins eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma. Þar kemur meðal annars fram að skólabörn skulu ekki fá önnur lyf í skólanum en þau sem hafa verið ávísuð af lækni. Í engum tilvikum getur barn borið ábyrgð á lyfjatökunni, ábyrgðin er foreldra. Börn skulu ekki hafa nein lyf undir höndum í skólanum nema í algjörum undantekningartilvikum. Slíkar lyfjagjafir geta t.d. verið insúlíngjafir sem barnið sér sjálft alfarið um.
Foreldrar / forráðamenn þeirra barna sem þurfa að taka lyf á skólatíma skulu hafa samband við skólaheilsugæslu sem skipuleggur lyfjagjafir á skólatíma.
Lús
Lúsin kíkir alltaf reglulega í heimsókn yfir skólaárið og því mikilvægt að foreldrar kembi hár barna sinna reglulega, t.d. vikulega.
Skólahjúkrunarfræðingur í Flóaskóla og Sunnulækjarskólar er: Ólöf Dagmar Úlfarsdóttir
Skólahjúkrunarfræðingur á Eyrarbakka og Stokkseyri er: Anna Guðríður Gunnarsdóttir
Skólahjúkrunarfræðingur í Vallaskóla er: Sigríður Halla Steinsdóttir
Með kveðju og ósk um gott samstarf.