Þú ert hér:
Forsíða » Heilsugæslan Selfossi » Heilsuvernd aldraðra


 Heilsueflandi heimsóknir

Heilsugæslustöð Selfoss býður öldruðum skjólstæðingum svæðisins upp á heilsueflandi heimsóknir.  Þessar heimsóknir felast í því að íbúum 80 ára og eldri sem ekki njóta heimahjúkrunar er boðið upp á heimsókn hjúkrunarfræðings.  Í heimsókninni er rætt um t.d heilsufar og heilbrigði, vellíðan,öryggi,lífsgæði,samvistir við aðra,tómstundir.o.fl.  Hjúkrunarfræðingar vilja gjarnan heyra hvað þessum hópi skjólstæðinga liggur á hjarta um reynslu þeirra og hugmyndir.

Tilgangur heilsueflandi heimsókna

Að viðhalda heilbrigði og sjálfstæði sem lengst.

Að stuðla að sjálfstæði og auka öryggiskennd.

Að veita ráðgjöf og upplýsingar um þá þjónustu sem er í  boði.

Framkvæmd heimsóknarinnar

Hjúkrunarfræðingar munu punkta niður upplýsingar á blað  á meðan á heimsókninni stendur og eru þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.  Fullrar þagmælsku er gætt. Eftir að skjólstæðingur hefur fengið bréf sent heim þar sem boðið er upp á slíka heimsókn, mun verða haft samband að ca. viku liðinni og tími fundinn sem hentar fyrir heimsóknina.   Öllum er að sjálfsögðu heimilt að afþakka heimsókn.

Hella Hveragerði Hvolsvöllur Kirkjubæjarklaustur Laugarás Selfoss Vík í Mýrdal Þorlákshöfn Sjúkraflutningar Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Símaskrá Starfsmenn Swedish English Polish Thai