Heilsufarsmælingar og heilsufarsmat
Mikilvægur þáttur í heilsu- og vinnustaðarvernd eru heilsufarsmælingar. Með árlegum mælingum fær starfsmaðurinn upplýsingar um eigið ástand sem vekur hann til meðvitundar um eigið heilsufar.
Mælingar sem gerðar eru: Blóðþrýstingsmælingar, mæling á púls, kólesterólmælingar, blóðsykursmælingar, hæð og þyngd þar sem reiknaður er út líkamsþyngdarstuðull.
Heilsufarsmæling fyrir hvern starfsmann kostar 2.500 kr
Bólusetningar fyrir inflúensu og lungnabólgu
Fyrirtæki og stofnanir hafa í auknum mæli boðið starfsfólki sínu upp á inflúensubólusetningu. Er bæði verið að hugsa um velferð starfsmannsins þar sem dregið er úr hættu á smiti og vinnustaðinn þar sem minnkaðar líkur verða á vinnutapi.
Verð bólusetningar á hvern starfsmann ef keypt er heilsufarsmæling er 1.000 kr
Verð inflúensubólusetningar ef ekki er keypt heilsufarsmæling er 2.000 kr
Einnig er hægt að fá lungnabólgubólgubólusetningu sem kostar 3.300 kr
Fyrir einstakling sem ekki er með undirliggjandi lungnasjúkdóm
þarf að endurtaka bólusetninguna á 10 ára fresti
Fræðsla
Heilsugæslan býður upp á ýmiskonar fræðslu fyrir starfsfólk fyrirtækja.
Má þar nefna: Næring og heilbrigðir lífshættir, Líkamsbeiting og réttar vinnustellingar,
Þjálfun og hreyfing, Líðan og streita / streitustjórnun og Hlustaðu á líkamann
Möguleiki er á fjölbreyttari fræðslu og komum við gjarnan til móts við óskir starfsmanna.
Miðað er við að hvert erindi taki um 50- 60 mínútur og kostar það 25.000 kr
Boðið er upp á að hjúkrunarfræðingur mæti á vinnustaðinn til að draga úr vinnutapi fyrirtækisins en einnig er möguleiki á að starfsfólk komi hingað á heilsugæslustöðina sé þess óskað.
Auk ofangreinds bjóðum við upp á trúnaðarlæknaþjónustu sérsniðna að þörfum fyrirtækja.
Upplýsingar veita:
vegna hjúkrunarþjónustu
Unnur Þormóðsdóttir hjúkrunarstjóri unnur@hsu.is
Steinunn Birna Svavarsdóttir hjúkrunardeildarstjóri steinunn@hsu.is
vegna trúnaðarlæknisþjónustu
Arnar Þór Guðmundsson yfirlæknir arnar@hsu.is