Þú ert hér:
Astmamóttakan er opin á föstudögum kl. 14:00 – 15:00
Astmamóttakan er opin öllum þeim sem greindir eru með astma, langvinna lungnasjúkdóma og þeim sem eru að nota innöndunarlyf.
Móttakan er opin á föstudögum kl. 14 – 15 á heilsugæslustöðinni á Selfossi. Það er hægt að panta tíma í aðalnúmeri heilsugæslunnar eða heimilislæknir getur bókað tíma. Síminn er 480 5100 á opnunartíma móttökunnar.
Markmið með astmamóttöku er að vinna að bættum lífsgæðum einstaklinga sem þjást af astma og að efla meðferðarheldni.
Val og notkun á réttri astmameðferð byggist á því að sjúklingur hafi innsæi í sjúkdóminn og þekki hvaða þættir valda auknum einkennum. Þetta getur verið mjög breytilegt frá einum einstaklingi til annars. Auk þess er mikilvægt að vita um helstu lyfjaflokka sem notaðir eru og þekkja verkun og mögulegar aukaverkanir hinna ýmsu lyfja. Takmark meðferðar er að halda sjúklingi einkennalausum á lágmarks lyfjameðferð.
Fræðsla sjúklinga með langvinna sjúkdóma eins og astma er lykilþáttur í meðferðinni. Kennt verður um sjúkdóminn smám saman eða í hvert sinn sem sjúklingur kemur á astmamóttökuna og farið verður yfir nokkra afmarkaða þætti í einu.
Rut Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur rut@hsu.is sinnir astmamóttökunni.