Þú ert hér: Forsíða > Fræðsla >

Æðahnútar
Hvað eru æðahnútar?
Æðahnútar í fótum eru mjög algengir, sérstaklega meðal kvenna. Bláæðakerfi fóta samanstendur af grunnum og djúpum bláæðakerfum sem tengjast saman með minni æðum. Í þessum æðakerfum eru æðalokur sem stjórna því að blóðið flæði aðeins í eina átt.


Áreynslupróf
Tilgangur áreynsluprófs er að láta reyna á hjarta, lungu og æðakerfi.  Einnig er prófið gott til að meta útihald og þol.
Læknirinn þinn gæti hafa mælt með áreynsluprófi af ýmsum ástæðum en oftast er spurningin um hvort þrenging sé á kransæðum vegna æðakölkunar.


Tilgangur og markmið ungbarnaverndar:
Barnavernd
Að fylgjast reglulega með heilsu og framförum á þroska barna, andlega, félagslega og líkamlega. Einnig að styrkja foreldra í umönnun ungbarnsins/ barnsins með ýmiskonar fræðslu og ráðgjöf . Vitjanir:
Í vitjunum í heimahúsum er markviss fræðsla í hverri heimsókn um ákveðið efni s.s. brjóstagjöf, þroska barns, umhverfisáhrif, slysavarnir o. fl. eftir því sem nauðsyn krefur. Fylgst er með heilsufari og líðan móður og henni veittar leiðbeiningar.
Fjöldi vitjana í heimahús fer eftir þörfum fjölskyldunnar en er að jafnaði tvær fyrstu 6 vikurnar og ein við 9 vikna aldur.  


Bólusetningar/Inflúensa
Bólusetningar
Bólusetningar gegn Inflúensu
 
Besta vörnin gegn inflúensu er að láta bólusetja sig, en hún gefur 60 – 90 % vörn hjá einstaklingum yngri en 65 ára.  Hjá öldruðum er vörnin aðeins minni.  Bólusetningin dregur einnig úr alvarlegum fylgikvillum sýkingarinnar.  


Bólusetningar barna
Eru bólusetningar barnanna okkar á ábyrgð “hinna”? Bólusetningar ungbarna eru ein mesta forvörn sem við höfum í heiminum í dag.  Samkvæmt alþjóðaheilbrigðismálastofnuninnni WHO frá 2006 fæðast tæpar 135 milljónir barna árlega í heiminum og hafa um 37 milljónir ekki aðgang að bólusetningum.  Bólusetningar koma í veg fyrir dauða um þriggja milljóna barna og að 750.000 börn verði örkumla árlega, þrátt fyrir þetta deyja um tvær milljónir  barna úr sjúkdómum sem hægt er að bólusetja fyrir. 


Brjóstagjöf
Að brjóstfæða barn sitt er sterk upplifun sem auðgar líf móður og barns.  Brjóstagjöf er heilsusamleg og það er auðvelt að læra að gefa brjóst, því líkaminn vinnur aðal vinnuna sjálfur. 
Langflestar konur geta haft barn sitt á brjósti, en viðhorf þeirra til brjóstagjafar skiptir máli, þ.e. að hafa vilja til að láta brjóstagjöfina ganga vel. Konan þarf líka næði, góða næringu, nægilega hvíld og stuðning frá fjölskyldu og fagfólki til þess að vel gangi.  


Ferðamannabólusetningar

Ferðamönnum er ráðlagt að kanna hvað getur ógnað heilsu þeirra og hvaða bólusetningar eru nauðsynlegar áður en lagt er í ferð út í heim. Á heilsgæslunni eru veittar upplýsingar og fræðsla um bólusetningar.



Fósturlát og aðgerð
Konur sem missa fóstur upplifa flestar að þeim hafi mistekist og geta þær fundið fyrir vanlíðan, þunglyndi og sorg. Þá skiptir ekki máli hversu löng meðgangan hefur verið. Fósturlát hjá ungum konum er u.þ.b. 10% en verður nokkuð al-gengara með hækkandi aldri. Flest fósturlát verða fyrir 12.viku en sjaldnast er vitað nákvæmlega hvað veldur fósturláti. Hafi meðgangan náð 5-6 vikum er talið nauðsynlegt að gera aðgerð til að hreinsa úr leginu fylgjuleifar og þess háttar vegan hættu á langvarandi eða miklum blæðingum eða jafnvel sýkingu.
Fyrir aðgerð
Aðgerð þessi er ýmist kölluð útskröpun eða útskaf en hér verður notað orðið útskaf þegar um fósturlát er að ræða. Útskaf þarf að gera I svæfingu og tekur hún


Gallblöðrutaka
Framkvæmd aðgerðar
Aðgerðin er framkvæmd með kviðarholsspeglunartækjum.  Gerð eru fjögur göt þar sem speglunartækin eru sett inn. Lofti er dælt inn í kviðarholið til að fá öruggt rúm til skoðunar innri líffæra og framkvæmd aðgerðar. Í lok aðgerðar er lofti hleypt út aftur og götin saumuð saman. Í sumum til-vikum er ekki hægt að taka gallblöðruna á þennan hátt og þá þarf að gera holskurð.
Mikilvægt er að hætta á blóðþynningarlyfjum 7 dögum fyrir aðgerð—þó alltaf í samráði við lækni.


Hálskirtlataka
Eftirfarandi eru upplýsingar sem við vonumst til að komi þér að gagni og geri þér dvölina auðveldari. Skrifaðu hjá þér þær spurningar sem upp koma við lestur bæklingsins, svo þær gleymist ekki.


Heilsuvernd aldraðra
  Heilsueflandi heimsóknir til eldri borgara svæðisins eru byrjaðar.  Nú þegar hefur öllum 80 ára og eldri verið boðið upp á heimsókn hjúkrunarfræðings frá heilsugæslustöðinni á Selfossi. 
Í heilsueflandi heimsókn fer fram fræðsla ásamt því að ýmsum upplýsingum er safnað.
Lagt er mat á heilbrigði einstaklingsins bæði andlegt og líkamlegt, ef kemur í ljós að frekari rannsókna er þörf er skjólstæðingi vísað til heimilislæknis.  Með þessu er hægt að kortleggja upptökusvæði heilsugæslustöðva og gera sér grein fyrir þjónustuþörfinni ásamt því  að kynna þjónustumöguleika  stövarinnar og veita hinum aldraða tengingu þar inn


Tilgangur og markmið heimahjúkrunar
Heimahjúkrun
 Markmið heimahjúkrunar er að veita einstaklingshæfða, markvissa, árangursríka og faglega heimahjúkrun, með það að markmiði að gera þeim, sem þjónustunnar njóta, kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi, heilsubrest eða öldrun.
Við heimahjúkrun starfa hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar eftir því hver þörfin er í samvinnu við heimilslækna.  Mikið samstarf er einnig við félagsþjónustu og veitendur annarar stoðþjónustu.
Beiðni um heimahjúkrun getur komið frá sjúklingi sjálfum, aðstandendum, sjúkrahúsum eða öðrum stofnunum.


Hjartsláttarrafritun (Holter)
Upplýsingar til sjúklinga um hjartsláttarrafritun (Holter)
Mikilvægt er að halda áfram daglegu athöfnum meðan á mælingunni stendur.
Sjúklingar bera á sér sérstakan stafrænan mæli sem á að trufla sem minnst meðan á mælingunni stendur.


Magaspeglun
Undirbúningur
Hér er um að ræða rannsókn á vélinda, maga og skeifugörn.


Nárakviðslit
Hvað er kviðslit ?
Kviðslit er það kallað þegar líffæri eða hluti af líffæri, oftast lífhimna eða fituhengi þrýstist út um gat eða veikbyggðan hluta vöðvavefs, sem annars styður við líffærið og veitir því aðhald. Algengast er að kviðslit myndist á neðri hluta kviðar og sést þá sem útbungun eða þroti í nára.


Stuðningur við ofþunga
Ofþyngd
Á heilsugæslunni á Selfossi er boðið upp á stuðning og meðferð fyrir ofþunga einstaklinga sem eru með líkamsþyngdarstuðul yfir 40.  Tveir hjúkrunarfræðingar sjá um meðferðina,  Ólöf Dagmar Úlfarsdóttir og Ragnheiður Kristín Björnsdóttir, sem er í formi einstaklingsviðtala með það að markmiði að aðstoða fólk til hollra neysluvenja.
Með þeim starfar Víðir Óskarsson heimilislæknir.   


Ristilspeglun
Upplýsingar
Hér er um að ræða rannsókn á ristli til skoðunar á útliti og ástandi hans að innan. Rannsóknin er framkvæmd með löngu    sveigjanlegu speglunartæki sem sett er upp í endaþarm og síðan þrætt upp í ristilinn.
Unnt er að taka sýni úr slímhúð og fjarlægja sepa ef þeir finnast.
Mjög mikilvægt er að undirbúningur sé góður og er þar átt við að ristill sé hreinsaður út með lyfjum og/eða skolaður með stólpípum og skal fara eftir fyrirmælum læknis í því efni.


Sáramðstöð meðferð og mat
Sáramiðstöð
Tilgangur og markmið
Markmið hjúkrunarfræðinga miðstöðvarinnar er að búa yfir þekkingu og reynslu til að miðla til annarra fagaðila, skjólstæðingum þeirra til heilla.  Með markvissu meðferðarplani verður meiri samfella í þjónustu við skjólstæðinga.  Beitt er úrræðum sem byggja á kenningum um raka sárgræðslu. 


Sólarhr.blóðþr.mæling
Til athugunar fyrir notanda sólarhringsblóðþrýstingsmælis !
Markmið slíkrar mælingar er að bæta greiningu og meðferð blóðþrýstingskvilla. Mælirinn sem notaður er, er hannaður þannig að hann trufli þig sem  minnst við þín daglegu störf.
Gerðu svo vel að skrá mikilvægar athafnir í bækling þennan, svo sem máltíðir, líkamsrækt, reykingar, útivist o.s.frv. Mikilvægt er að þú sinnir þínum venjubundnu störfum á meðan þú gengur með mælinn.


Störf hjúkrunarfræðinga og tengsl þeirra við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra
Störf hjúkrunarfræðinga

Hjúkrunarfræðingar koma með einum eða öðrum hætti að flestum fjölskyldum og heimilum þeirra á einhverjum tímapunkti í lífinu.  Hvort sem um er að ræða á gleðistundum  þegar barn fæðist eða í sorg þegar einstaklingar og fjölskyldur þeirra ganga í gegnum erfið veikindi.
Störf hjúkurnarfræðinga eru margþætt og unnin með það fyrir augum að bera virðingu fyrir lífi og ákvarðanatöku einstaklingsins.  Einstaklingsmiðuð hjúkrun þar sem  hver skjólstæðingur er sérstakur og mikilvægur er höfð að leiðarljósi. Hjúkrun snýst ekki einungis um að sinna skjólstæðingum í bráðum veikindum á sjúkrahúsi heldur er stór partur starfsins falinn í fræðslu, forvörnum og heilsueflingu ýmiskonar. 


Svæfing barna
Undirbúningur heima
Kæra foreldri
Okkur er annt um að dvöl barnsins á Heilbrigðisstofnun Suðurlands verði sem þægilegust. Hlutverk þitt er mikilvægt og með því að kynna þér hvers má vænta í tengslum við aðgerðina og svæfinguna getur þú upplýst barnið og dregið úr eðlilegum kvíða ykkar.


Ýmsar mælingar

Beinþéttnimælingar
Blóðþrýstingsmælingar
Blóðsykursmælingar
Blóðflæðimælingar
Öndunarmælingar




Meira fræðsluefni