Þú ert hér:
22. maí 2012

Gáfu sjúkraflutningsmönnum spjaldtölvur

Gáfu sjúkraflutningsmönnum spjaldtölvur 21. maí 2011 varð slys í Sundhöll Selfoss og þann 22. maí lést Vilhelm Þór, 5 ára gamall, á Landspítalanum við Hringtorg. Í kjölfarið var stofnaður söfnunarreikningur í hans nafni, blóm og kransar voru afþakkaðir af foreldrum hans og nú ári … Lesa meira

15. maí 2012

Þakkir til starfsfólks HSu

Heilsugæslan Klaustri Nýverið hittust á Klaustri fulltrúar frá Almannavörnum, ráðuneytiststjóranefnd sem stofnuð var í kringum Grímsvatnagosið, sveitastjóri og oddviti Skaftárhrepps,  ásamt hjúkrunarstjóra HSu á Klaustri, Auðbjörgu Bjarnadóttur.  Farið var yfir stöðu mála og meðal annars farið yfir umfangið í kringum gosið.  Þar … Lesa meira

11. maí 2012

Bæjarráð Árborgar mótmælir fyrirhuguðum niðurskurði til HSu 2012

Ráðhús Árborgar Á fundi bæjarráðs Árborgar  10. maí sl. var lögð fram eftirfarandi ályktun vegna Heilbrigðisstofnunar Suðurlands:    Bæjarráð Árborgar mótmælir fyrirhuguðum niðurskurði fjárveitinga til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands árið 2012. Fram hafa komið ályktanir starfsfólks um að búið sé að hagræða eins og … Lesa meira

8. maí 2012

Hjúkrunarfræðingur óskast í afleysingarstöðu í Hveragerði

Hgst. Hveragerði Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í afleysingastöðu í Hveragerði nú þegar eða eftir samkomulagi. Afleysingin stendur yfir í rúmt ár. Starfshlutfall er 50-60%.  Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og/eða reynslu af störfum í heilsugæslu eða skólum.  Starfið felst aðallega … Lesa meira

4. maí 2012

Vel heppnuð “Bleik vika” á enda!

Bleik vika

Með þessari frétt eru 15 myndir.

Mjög vel heppnaðri Bleikri viku á HSu lauk formlega í dag.  Þáttaka var mjög góð, skemmtilegar skreytingar um allt hús og gleði og kátína ríkjandi meðal starfsmanna. Forsvarsmenn starfsmannafélagsins boðuðu starfsmenn saman í hádeginu og þar voru veitt verðlaun Bleikrar viku.  Veitt voru verðlaun fyrir bleikustu deildina, bleikasta … Lesa meira

4. maí 2012

Lionsklúbbur Hveragerðis og Lionsklúbburinn Eden gefa blöðruskanna

Gjöf frá Lionsklúbbum Lionsklúbbur Hveragerðis og Lionsklúbburinn Eden, sem er kvennaklúbburinn í Hveragerði hafa fært heilsugæslunni í Hveragerði og dvalarheimilinu Ási tæki fyrir um eina milljón króna. Um er að ræða blöðruskanna, sem kannar þvagmagn í blöðru hjá konum og körlum. Klúbbarnir söfnuðu … Lesa meira

27. apríl 2012

Hætta á smitsjúkdómum á EM í knattspyrnu 2012

Em 2012 Hætta á smitsjúkdómum á EM í knattspyrnu 2012. Evrópumeistarmótið í knattspyrnu 2012 verður haldið í Póllandi og Úkraínu,  og hefst 8. júní en  lýkur 1. Júlí.  Þeim sem ætla að sækja mótið er bent á að aukin hætta á smitsjúkdómum … Lesa meira

27. apríl 2012

Bleikir dagar á HSu

Bleikir dagar

Með þessari frétt eru 7 myndir.

Vikuna 27. apríl til 4. maí næstkomandi verður bleik stemning á Hsu um allt Suðurland.  Það er starfsmannafélagið sem stendur fyrir bleikum dögum. Allir starfsmenn Hsu, eru hvattir til að taka þátt með því að klæðast einhverju bleiku og/eða skreyta sig … Lesa meira

16. apríl 2012

Hjúkrunarmóttökur á heilsugæslunni – Sumarlokun frá 1. júní til 1. september

Heilsugæslustöðin Selfossi Sérmóttökur hjúkrunar á heilsugæslunni á Selfossi verða lokaðar yfir sumartímann. Þær loka frá og með 4. júní til 3. september 2012. Hægt er að ná í hjúkrunarfræðing í símatíma og almennri hjúkrunarþjónustu milli klukkan 8 til 16 á virkum dögum … Lesa meira

16. apríl 2012

Hátíðarkvöldverður á Ljósheimum og Fossheimum

Hátíðar og galakvöldverður á Fossheimum  12 . apríl 2012 (3)

Með þessari frétt eru 11 myndir.

Heimilisfólk og starfsfólk á hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum, brutu upp hversdagsleikann og gerðu sér glaðan dag og efndu til hátíðarkvöldverðar, þar sem aðstandendum heimilisfólks var boðið að vera með.  Á Ljósheimum var kvöldverðurinn þann 23. mars sl., en á Fossheimum 12. … Lesa meira

12. apríl 2012

Aðalfundur Vinafélags Ljósheima og Fossheima

Vinafélag Aðalfundur Vinafélags Ljósheima og Fossheima verður haldinn sunnudaginn 15. apríl 2012 á hjúkrunardeild Ljósheima v/Árveg kl. 14:00.     Á dagskránni verður venjuleg aðalfundarstörf og skemmtidagskrá. Kaffiveitingar í boði félagsins.    Ársskýrsla  fyrir árið 2011 mun liggja frammi á aðalfundinum. … Lesa meira

2. apríl 2012

Inflúensupúlsinn – Inflúensan í rénun

Inflúenskupúlsinn Inflúensan er nú í rénun eins og sést á meðfylgjandi mynd, sem sýnir fjölda tilfella með inflúensulík einkenni samkvæmt klínísku mati læknis. Faraldurinn var mjög svipaður og í fyrravetur. Tölulegar upplýsingar um fjölda tilfella og aldursdreifingu er hægt að nálgast … Lesa meira

30. mars 2012

Tillögur að endurbótum HSu – kynning

hsu Eins og kynnt hefur verið í frétt HSu, stendur til að fara í endurbætur á húsnæði stofnunarinnar á Selfossi og má sjá nánari útskýringar í fyrri frétt á síðunni Hér.   Sigríður Magnúsdóttir er höfundur tillögunnar og er hún arkitekt hjá … Lesa meira

30. mars 2012

Hjálpartækjaráðgjöf

Hjalpartækjaráðgjöf Sjúkra-og iðjuþjálfar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi sjá um móttöku og ráðgjöf varðandi val og umsóknir á hjálpartækjum.  Móttakan er opin annan hvern föstudag kl. 8.00-10.00 og er í húsnæði endurhæfingar í kjallara nýbyggingarinnar við Árveg. Hægt er að panta tíma … Lesa meira

28. mars 2012

Grein um áhrif Eyjafjallagossins á heilsufar íbúa í nágrenni þess

Þórir Kolbeinsson Þórir Björn Kolbeinsson læknir í Rangárþingi hefur ásamt fleirum rannsakað áhrif eldgossins á heilsufar íbúa í nálægð eldfjallsins.  Greinin er á ensku, en hér er smá ágrip í greinina: Rannsóknin stóð frá 31. maí – 11. júní 2010.  Lagður var … Lesa meira

26. mars 2012

Starfsmenn Íslenska gámafélagsins á Selfossi komu færandi hendi

Gjöf frá Íslenska gámafélaginu Tveir starfsmenn íslenska gámafélagsins á Selfossi – þeir Guðmundur Egill Sigurðsson og Eiríkur Jónsson komu færandi hendi og afhentu Heilbrigðisstofnun Suðurlands peningagjöf að upphæð kr. 100 þúsund. Peningar þessir eru afrakstur af sölu á flöskum sem þeir hafa hirt við … Lesa meira

23. mars 2012

Vistunarmatsnefndir sameinaðar

velferdarrádun. Ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi mun leggja mat á þörf fólks fyrir búsetu í dvalar- eða hjúkrunarrými í stað tveggja eins og verið hefur. Frumvarp velferðarráðherra þessa efnis varð að lögum frá Alþingi í gær. Markmiðið er að auðvelda fólki … Lesa meira

23. mars 2012

Tillaga um endurbætur á húsnæði HSu á Selfossi

endurbæturHSu1 Á fundi með starfsfólki HSu á Selfossi í gær, fimmtudag,  voru kynntar tillögur að endurbótum á eldra húsnæði HSu á Selfossi.  Í húsnæðinu fer nú fram starfsemi sjúkrahúss, bráðamóttöku, rannsóknar- og röntgendeilda, eldhúss og annarrar stoðþjónustu.  Húsið var byggt á … Lesa meira

23. mars 2012

Læknaritarnir leyfðu karlmennskunni að skína föstudaginn 16. mars

Læknaritara HSu - ljós. MHH Læknaritararnir okkar hér á Selfossi tóku virkan þátt í Mottumars og mættu uppáklæddar í  vinnuna sl. föstudag, 16. mars, með mottu á réttum stað og með önnur karlmannsleg tákn.  Með þessu vildu þær sýna stuðning sinn við átakið.  Flottar mottukonur á HSu!   … Lesa meira

22. mars 2012

Ljósmæður óskast til sumarafleysinga á HSu

Barn Ljósmæður óskast til sumarafleysinga á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu).      Afleysingar vantar til lengri og skemmri tíma sumarsins.   Sjá nánar hér:  Ljósmæður – sumarafleysingar          

8. mars 2012

Vegna samskipta við heilsugæslulækna á Selfossi með tölvupósti

email Veruleg aukning hefur orðið á því undanfarið að fólk sendi heimilislæknum á Selfossi tölvupóst.  Þetta samskiptaform kann í fyrstu að virðast fljótlegt og þægilegt en þegar nánar er skoðað koma ýmis vandamál fram.   Læknarnir hafa engan sérstakan tíma til … Lesa meira

6. mars 2012

Frá sóttvarnalækni – inflúensupúlsinn

image003 Fjöldi tilkynninga um inflúensulík einkenni sem berast til sóttvarnalæknis virðist hafa náð hámarki. Samkvæmt fjölda tilkynninga fyrri hluta þessarar viku (viku 9) samanborið við vikuna á undan, var toppurinn sennilega í síðustu viku (viku 8). Það má því gera ráð … Lesa meira

6. mars 2012

Uppbygging og eftirlit með sjúkraskrá á ábyrgð Embættis landlæknis

velferðaráðuneytið Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ræddi um eftirlitshlutverk Embættis landlæknis og hugmyndir um enn frekari verkefni á því sviði á opnun degi hjá embættinu í dag. Embættið hefur nú fengið ábyrgð á nýju verkefni sem felur í sér yfirumsjón með öllum þáttum … Lesa meira

24. febrúar 2012

Þjóðarsáttmáli gegn einelti

gegn einelti Meðfylgjandi er afrit af undirskriftum á þjóðarsáttmála um baráttu gegn einelti frá því í nóvember s.l. Annað skjalið er undirritað af ráðherrum og eða fulltrúa ráðherra auk borgarstjóra og framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hitt skjalið er með ofangreindum aðilum auk … Lesa meira

21. febrúar 2012

Vinafélag heimilisfólks á Ljósheimum og Fossheimum – Skýrsla stjórnar 2011

Vinafelag Vinafélagið hefur verið starfrækt í 8  ár, í nánu samstarfi við stjórnendur hjúkrunardeilda Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Markmiðið er að auka tómstunda- og afþreyingarstarf fyrir heimilisfólk hjúkrunardeildanna og standa vörð um aðbúnað fólks á deildunum. Einnig er lögð áhersla á að standa fyrir … Lesa meira

13. febrúar 2012

Frá sóttvarnalækni – inflúensufréttir

graf Klínískum inflúensugreiningum sem berast til sóttvarnalæknis er enn að fjölga og er líklegt að tilfellum haldi áfram að fjölga á næstunni  (sjá mynd hér til hliðar).  Útbreiðsla inflúensunnar nú er mjög svipuð og í fyrravetur. Bæði börn og fullorðnir leita … Lesa meira

10. febrúar 2012

Sjúkraliðar/Sjúkraliðanemar og ófaglært starfsfólk óskast í sumarafleysingar

fossogljós Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingar á hjúkrunardeildirnar Ljósheima og Fossheima.      Óskað er eftir Sjúkraliðum/Sjúkraliðanemum og ófaglærðum starfmönnum, sjá nánar hér

9. febrúar 2012

Rekstur HSu 2011

HSu Starfsemi  HSu á árinu 2011 gekk að mestu leyti vel þrátt fyrir ýmsa erfiðleika.  Starfsfólk HSu á þakkir skildar fyrir frábært starf á árinu, oft við mjög erfiðar aðstæður.  Fjárhagsleg skilyrði voru erfið og náttúruhamfarir herjuðu á íbúa og starfsfólk.  … Lesa meira

7. febrúar 2012

Nýr hjartalæknir til starfa við HSu – Tímapantanir í síma 480-5100

Hilma Hólm Þann 13. febrúar n.k. hefur Hilma Hólm hjarta- og lyflæknir störf hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Hilma útskrifaðist sem lyflæknir frá Baylor College of Medicine í Houston Texas 2005 og lauk prófi í hjartalækningum frá Emory University Hospital í Atlanta, Georgia 2008. … Lesa meira

6. febrúar 2012

Lausar stöður hjúkrunarfræðinga og/eða hjúkrunarnema í sumarafleysingar

Hjúkrun Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og/eða hjúkrunarfræðinema í sumarafleysingar á hjúkrunardeildirnar Ljósheima og Fossheima og einnig hjúkrunarfræðinga/3ja árs hjúkrunarnema til sumarafleysinga á handlæknis, lyflæknis og slysadeildarsvið sjúkrahússins á Selfossi. Sjá nánar hér

6. febrúar 2012

Gæðastyrkur Velferðaráðauneytisins veittur heilsugæslu HSu

Unnur Þormóðsdóttir Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ákveðið að veita gæðastyrki til átta verkefna í velferðarþjónustu sem tengjast samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu og stuðla að umbótastarfi, nýbreytni eða auknum gæðum þjónustunnar. Styrkirnir nema samtals 2,4 milljónum króna.  Alls barst 61 umsókn um styrki … Lesa meira

31. janúar 2012

Gjafir til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á árinu 2011

GJAFIR Á hverju ári fær Heilbrigðisstofnun Suðurlands fjölmargar gjafir frá einstaklingum og félagasamtökum.  Hér má sjá yfirlit yfir gjafirnar Gjafir 2011.  Stofnunin færir gefendum bestu þakkir fyrir höfðinglegar gjafir og ómetanlegt er fyrir stofnunina að finna þann hlýhug sem gjöfunum fylgir.

25. janúar 2012

Börn sem fæðast árið 2012 fá hosur frá kvenfélagskonum

250112 005 Stjórn Sambands Sunnlenskra kvenna (SSK) kom í heimsókn á fæðingadeildina í gær. Erindið var að færa deildinni fyrstu nýburahosurnar. Síðastliðin tvö ár hafa kvenfélagskonur undir merkjum SSK gefið öllum nýburum á Suðurlandi ullarhúfur, prjónaðar af kvenfélagskonum. Þetta árið er ráðist í … Lesa meira

24. janúar 2012

Inflúensan færist í aukana

iStock_Influensa_39532a Inflúensan færist í aukana og tilkynningum um inflúensulík einkenni  fer fjölgandi, sjá Mynd. Inflúensan hófst um svipað leyti fyrir ári síðan og er fjöldi tilfella eftir vikum sambærilegur milli ára.  Aldursdreifing tilfella með inflúensulík einkenni hefur verið nokkuð jöfn. Samkvæmt … Lesa meira

11. janúar 2012

Samningur um aukna þjónustu sérfræðinga á Suðurlandi

Gísli Ingvarsson, húðsjúkdómalæknir Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) hefur gert samkomulag við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) um aukna þjónustu sérfræðinga á Suðurlandi.  Annars vegar er um er að ræða þjónustu húðlæknis og öldrunarlæknis, sem ekki hefur verið áður í boði á Suðurlandi.  Hins vegar er um … Lesa meira

9. janúar 2012

Kostnaður við að fá aðstoð sjúkraflutningamanna

Sjúkraflutningar Sá leiði misskilningur hefur farið af stað að kostnaður þeirra sem óska eftir sjúkrabíl, hlaupi á tugum þúsunda króna og hefur talan 70 þúsund oft verið nefnd í því samhengi. Þekktir menn hafa komið fram í fjölmiðlum fullyrt að svo … Lesa meira

6. janúar 2012

Fyrsta barn ársins 2012 á HSu

Fyrsta  barn ársins 050112 Að kveldi 5. janúar fæddist fyrsta barn ársins hér á fæðingadeild HSu.  Drengur fæddur kl 19:54, þyngd 3710 gr, lengd 51 cm.  Ljósmóðir var Arndís Mogensen. Foreldrarnir heita Bergþóra Stefánsdóttir og Trausti Davíð Karlsson, þau búa að Fögrumýri 5 hér á Selfossi. … Lesa meira

19. desember 2011

Listamaðurinn Tarnús gefur Heilbrigðisstofnun Suðurlands málverk

IMG_2326 Listamaðurinn Tarnús, öðru nafni Grétar Magnús Guðmundsson, færði Heilbrigðisstofnun Suðurlands að gjöf málverk eftir sig.  Verkið gefur hann til minningar um vin sinn, frænda og fyrrum hljómsveitarfélaga Þorstein Guðmundsson.  Þorsteinn eða Steini spil, eins og hann var kallaður, lést nýverið eftir langvarandi veikindi og … Lesa meira

16. desember 2011

Breytingar á heilsugæsluþjónustu í Rangárvallasýslu

Hekla Á starfsmannafundi á Hvolsvelli 29. nóvember sl. var greint frá fyrirhuguðum aðgerðum til að mæta kröfum um útgjaldalækkun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands vegna fjárlaga fyrir árið 2012. Velferðarráðuneytið hefur nú staðfest, að ákveðin leiðrétting verði gerð á fjárveitingu til stofnunarinnar, umfram það … Lesa meira

11. desember 2011

Dagatal, útgefið af hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum Hgs

DagatalHgs. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á heilsugæslunni á Selfossi hafa gefið út dagatal með myndum af sér við daglegt störf.  Allur ágóði rennur beint til reksturs hjúkrunarþáttar stöðvarinnar og er þetta svar okkar við niðurskurðinum. Við beitum öllum ráðum til að koma … Lesa meira

8. desember 2011

Um bólusetningu fullorðinna einstaklinga gegn mislingum

MMR2 Það hefur talsvert verið spurt um hvað gera eigi við fullorðna einstaklinga sem ekki vita hvort þeir voru bólusettir á sínum tíma gegn mislingum eða vita ekki hvort þeir fengu mislinga. Varðandi þessar vangaveltur þá vill sóttvarnalæknir benda á eftirfarandi: … Lesa meira

7. desember 2011

Mislingafaraldur í Evrópu – MMR bólusetning

mislingabólusetning Eins og fram hefur komið fréttum,  þá hefur talsvert verið rætt undanfarið um mislingafaraldurinn í Evrópu á þessu ári (og reyndar á síðasta ári einnig). Um 30.000 einstaklingar hafa greinst í Evrópu með mislinga á árinu 2011, tæplega 90% þeirra … Lesa meira

6. desember 2011

Hjarta- og húðsjúkdómalæknir hjá HSu – Tímapantanir í síma 480-5100

Núna er hægt að panta tíma hjá hjartalækninum Þorkeli Guðbrandssyni í afgreiðslunni. Hann er byrjaður að vinna á HSu og við bjóðum hann hjartanlega velkominn í hópinn.   Einnig byrjar Gísli Ingvarsson húðlæknir í janúar 2012 og er hægt að panta hjá … Lesa meira

29. nóvember 2011

Endurskipulagning heilbrigðisþjónustu

hsu mynd Undanfarin þrjú ár, 2009 – 2011, hefur Heilbrigðisstofnun Suðurlands, HSu,  þurft að bregðast við mikilli lækkun fjárveitinga til reksturs stofnunarinnar, eða samtals um 22 %.  Gripið hefur verið til margháttaðra aðgerða til að draga úr útgjöldum.   Hér er fréttatilkynning … Lesa meira

29. nóvember 2011

Nýjar upplýsingar um virkni Cervarix bóluefnis gegn HPV smiti

cervarix Nýverið birtust í Lancet Oncology tvær greinar, auk leiðara, sem fjalla um virkni Cervarix sem forvörn gegn leghálskrabbameini. Meðal þess sem fram kemur í grein Lethinen og félaga, er að virkni Cervarix gegn öllum CIN3+ frumubreytingum, hjá stúlkum sem ekki … Lesa meira

25. nóvember 2011

Mikilvægt að taka lýsi eða annan D-vítamíngjafa

Lýsi og D vítamín Upplýsingar um D-vítamín. D-vítamín hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu. Hér á norðlægum slóðum, þar sem sólar nýtur lítið við, sérstaklega yfir veturinn, er þörfin fyrir D-vítamín úr fæðu eða fæðubótarefnum meiri en í suðlægari löndum. Rannsóknir hafa sýnt … Lesa meira

25. nóvember 2011

Gréta Svala og Valgerður kvaddar af samstarfsfólki sínu eftir margra ára störf við HSu

GrétaSvala og Valgerður Þær Valgerður Fried læknaritari og Gréta Svala Bjarnadóttir ræstitæknir létu nýlega af störfum við Hsu.  Valgerður starfaði við stofnunina samfleytt í 26 ár, fyrst við umönnun en síðar sem læknaritari.  Gréta Svala starfaði á HSu með hléum, í 16 ár … Lesa meira

24. nóvember 2011

Hvernig komum við í veg fyrir smit? Hvernig kem ég í veg fyrir matareitrun?

handþvottur Á undanförnum árum hefur tíðni alvarlegra lífshótandi niðurgangspesta aukist og í Svíðþjóð hefur nýlega birtst grein í sænska Læknablaðinu þar sem sagt var frá um 300 tilvikum af svokölluðum E-coli gerlum sem hafa valdið alvarlegum einkennum með nýrnabilunarblæðingum (enterohaemorrhagiskt haemolytiskt … Lesa meira

24. nóvember 2011

Skrifað undir þjónustusamning við Dvalarheimilið Ás í Hveragerði

IMG_2267 Skrifað var undir þjónustusamninginn við Ás þann 23. nóvember.  Samningurinn felur í sér að HSu veitir dvalarheimilinu læknisþjónustu, sem m.a. felur í sér vikulegan stofugang, þar sem farið er yfir veikindi heimilismanna, mat lagt á læknishjálp og lyfjagjöf, gerð vottorða og … Lesa meira

24. nóvember 2011

Velferðarráðherra í heimsókn á HSu

IMG_2262 Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, heimsótti Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þriðjudaginn 15. nóvember, ásamt Önnu Sigrúnu Baldursdóttur, aðstoðarmanni ráðherra, Sveini Magnússyni, skrifstofustjóra, og Dagnýju Brynjólfsdóttur, deildarstjórar.   Þau áttu fund með framkvæmdastjórn stofnunarinnar um starfsemi hennar og reksturinn í þessu ári.  Einnig var rætt um … Lesa meira

23. nóvember 2011

Fyrsta inflúensutilfelli vetrarins

„Fyrsta inflúensutilfelli vetrarins hefur verið staðfest á veirufræðideild Landspítala. Inflúensan greindist í íslenskum ferðamanni sem var að koma frá Suður-Asíu og er af stofni inflúensu A(H3) sem hefur valdið árlegri inflúensu síðastliðna áratugi. Ferðamaðurinn var í hópi Íslendinga og veiktust … Lesa meira

18. nóvember 2011

Fréttatilkynning frá Vinafélagi Ljósheima og Fossheima!

vinátta Meginmarkmið félagins er að efla tómstunda- og afþreyingarstarf fyrir heimilisfólk Ljósheima og Fossheima  og auka möguleika á tilbreytingu en ella væri.  Félagið var stofnað  í febr. 2004 og er fjöldi félagsmanna í dag 138.   Yfirlit yfir stuðning félagsins við … Lesa meira

15. nóvember 2011

Aðstandendadagur 20. nóv. 2011 á Fossheimum og Ljósheimum

Raggi og Þorgeir Sunnudaginn 20. nóv.  2011  verður aðstandendadagur á Fossheimum  og á Ljósheimum. Sjá nánar hér – Aðstandendadagur  

14. nóvember 2011

Aðkoma að HSu – Heiðmörk lokuð 14. – 21. Nóvember.

Hsu Aðkoma að HSu verður lokuð um  Heiðmörk, vikuna 14. til 21. nóvember.  Þeir sem ætla sér að koma á HSu verða að koma vestanmegin, um Hörðuvelli eða Árveg. Hlutaðeigendur er beðnir afsökunar á þessari lokun, sem er vegna viðgerða í götunni við Heiðmörk. … Lesa meira

9. nóvember 2011

Starfsemi hand-og lyflæknisdeildar Hsu

HSu Í ársbyrjun 2011 urðu breytingar á starfsemi Hsu vegna niðurskurðar.  Á  deildinni var hagrætt verulega,  sjúkrarúmum fækkað  virka daga og eru enn færri um helgar. Deildin er opin allan sólarhringinn, 18 rúm opin virka daga og 13 rúm um helgar … Lesa meira

7. nóvember 2011

Margir veikir og stórslasaðir bangsar voru læknaðir á Bangsaspítala HSu

IMG_2247

Með þessari frétt eru 28 myndir.

Það reyndust margir bangsar vera stórslasaðir og veikir sem komu á Bangsaspítala HSu á Selfossi laugardaginn 5. nóv.  Um 115 bangsar voru læknaðir þennann dag. Verkur í munni og maga, beinbrot, jafnvel á öllum útlimum og nokkrir bangsanna voru búnir að gráta soldið. Þó nokkuð margir … Lesa meira

3. nóvember 2011

Kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps gefur HSu tvö sjónvarpstæki

Fulltrúar Kvenfélagsins ásamt framkv. stjórn HSu og hjúkrunardeildarstj. Formaður Kvenfélags Gaulverjabæjarhrepps, Margrét Jónsdóttir, Elín Höskuldsdóttir, gjaldkeri , ásamt Stefaníu Geirsdóttur – færðu sjúkradeild stofnunarinnar tvö sjónvarpstæki að gjöf. Félagið óskar þess að þessi tæki verði sjúklingum til ánægju og aukinna þæginda. Framkvæmdastjórn HSu og hjúkrunardeildarstjóri hand- og lyflækningadeildar, … Lesa meira

1. nóvember 2011

Bangsaspítali á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, laugardaginn 5. nóvember n.k.

Bangsaspítali Bangsaspítalinn verður opnaður á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi laugardaginn 5. nóvember frá kl 13-17 í tilefni alþjóðlega bangsadagsins 27. október. Öllum börnum á aldrinum 3-6 ára er velkomið að koma og verður tekið á móti veikum og slösuðum böngsum við … Lesa meira

26. október 2011

Gefur leikborð í biðstofu Bráðamóttöku HSu

Baldri þökkuð gjöfin Baldur Róbertsson eigandi BR flutninga kom færandi hendi og gaf HSu leikborð með áföstum leikföngum.  Baldur sagði þetta m.a. vera í tilefni þess að fyrirtæki hans væri orðið þriggja ára.  Einnig væri hann faðir ungra barna sem þyrftu af og til … Lesa meira

25. október 2011

Ályktun stjórnar Suðurlandsdeildar SLFÍ vegna niðurskurðar á HSu

Stjórn Suðurlandsdeildar Sjúkraliðafélags Íslands mótmælir harðlega þeim niðurskurði sem boðaður er á Heilbrigðisstofnun Suðurlands fyrir árið 2012.  Búið er að spara og hagræða eins og kostur er.  Stjórnendur og starfsfólk stofnunarinnar hafa lagt sig fram um að framfylgja fyrri niðurskurðarkröfum, … Lesa meira

19. október 2011

Samningur við Landsvirkjun

Pétur og Gylfi læknar í Laugarási Heilbrigðisstofnun Suðurlands  hefur nú gert samning við Landsvirkjun um heilbrigðisþjónustu við byggingu Búðarhálsvirkjunar.  HSu hefur umsjón með heilbrigðisþjónustu á byggingarsvæði Búðarhálsvirkjunar.  Samningurinn nær til margra þátta  eins og læknisþjónustu. Samningurinn gildir til loka árs 2013.  Fagleg ráðgjöf á sviði lækninga … Lesa meira

18. október 2011

Ályktun Hjúkrunar- og ljósmæðraráðs HSu

Stjórn Hjúkrunar- og ljósmæðraráðs HSu mótmælir harðlega þeirri skerðingu á fjárveitingu til stofnunarinnar sem boðuð er 2012.  Þegar hefur verið sparað og hagrætt sem auðið er, og ferkari skerðing mun koma niður á þeirri grunnþjónustu sem veita ber í heimabyggð. … Lesa meira

10. október 2011

Fræðslu- og upplýsingafundur FAAS

Fundur 11. okt kl. 20  FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma heldur fræðslu- og upplýsingafund á Selfossi þriðjudaginn 11. október nk. Fundurinn sem hefst kl. 20.00 verður haldinn í fræðslusal Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Dagskrá: Framkvæmdastjóri FAAS, Svava Aradóttir setur fundinn … Lesa meira

7. október 2011

Bleikur föstudagur 7. október

bleikur föstudagur 7. október Bleikur föstudagur! Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Klæðumst bleiku á föstudaginn til tákns um samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum!

28. september 2011

Ályktun stjórnar læknaráðs 28. sept. 2011

HSu sept. 2011 Ályktun stjórnar læknaráðs Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, 28. september 2011 Stjórn Læknaráðs HSu mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði fjárveitinga til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands 2012 og varar við hugsanlegum afleiðingum slíkra framkvæmda á starfsemi og mönnum heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi.                                    Greinargerð: Læknaráð HSu hefur kynnt … Lesa meira

22. september 2011

Aðkoma að HSu – sýnum tillitsemi

HSu 22 sept. 11 Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Árvegi framan við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og er gatan lokuð.  Aðkoma að HSu er þó ekki lokuð, því opið er inná bílaplan ef komið er vestanmegin að stofnuninni.  Um leið og hlutaðeigendur eru áminntir um að fara … Lesa meira

22. september 2011

Samningur við Landsvirkjun

Stöðvarhús Búðarhálsvirkjunar Heilbrigðisstofnun Suðurlands  hefur nú gert samning við Landsvirkjun um heilbrigðisþjónustu við byggingu Búðarhálsvirkjunar.  HSu hefur umsjón með heilbrigðisþjónustu á byggingarsvæði Búðarhálsvirkjunar.  Samningurinn nær til margra þátta  eins og læknisþjónustu. Samningurinn gildir til loka árs 2013.  Fagleg ráðgjöf á sviði lækninga … Lesa meira

21. september 2011

Almenn sjúkrahús – sérhæfð sjúkrahús

Um land allt er rekin almenn læknisþjónusta. Læknisþjónustan er staðsett sem næst þeim stað sem hennar er þörf og oftast sinnt af þar til sérmenntuðum heilsugæslulæknum.   Þetta gildir bæði um höfuðborgarsvæðið og dreifbýlið.   Heilbrigðisþjónustan á Íslandi hefur verið rekin á … Lesa meira

19. september 2011

Þarf ég að meðhöndla sykursýkina ?

Það birtist áhugaverð grein í breska læknablaðinu New England Medical Journal í ár þar sem A. Thomson hafði rannsakað með félögum árangurinn af sykursýkismeðferð.  Um er að ræða mjög yfirgripsmikla rannsókn með um 820.900 einstaklingum með sykursýki.  Kannaður var mismunur … Lesa meira

7. september 2011

Læknamönnun á HSu

Óskar S. Reykdalsson Hsu fer ekki varhluta af læknaskorti. Á undanförnum árum hefur tekist nokkuð vel að halda í lækna við stofnunina. Núna er þó staðan heldur að versna og blikur á lofti. Illa gengur að manna lausar stöður og eins og staðan … Lesa meira

25. ágúst 2011

Röskun á aðkomu að HSu

Sveitarfélagið Árborg fyrirhugar endurnýjun á frárennslislögnum með Árvegi, frá Grænumörk og að lóð MS, auk hluta Heiðmerkur. Má af þeim sökum búast við þrengingum, á þeim hluta Árvegar, og röskun á umferð næstu vikur. Jafnframt er gert ráð fyrir minni … Lesa meira

17. ágúst 2011

Hjúkrunarfræðingur – Laus framtíðar staða í Hveragerði

Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í fasta stöðu í Hveragerði nú þegar.  Starfshlutfall er 50-60%.  Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og/eða reynslu af störfum í heilsugæslu eða skólum  Starfið felst aðallega í skólahjúkrun, heilsugæslu og heimahjúkrun. Heilsugæslustöðin í Hveragerði … Lesa meira

16. ágúst 2011

Afsláttur og endurgreiðsla vegna heilbrigðisþjónustu

afsláttarkort Ef sjúklingur er sjúkratryggður og hefur greitt fyrir heilbrigðisþjónustu upp að ákveðnu hámarki á árinu, á hann rétt á afsláttarkorti frá Sjúkratryggingum Íslands.  Mismunandi er hvað hámarkið er, fer eftir aldri og stöðu.  Meðfylgjandi eru nákvæmar upplýsingar rétt sjúklinga, varðandi afsláttarkort og leiðbeiningar um hvar hægt er … Lesa meira

5. ágúst 2011

Upplýsingar um starfsemi Hsu árið 2010

Forsíða Upplýsingarits HSu 2010 Gefið hefur verið út Upplýsingarit  sem hefur að geyma starfsemistölur ársins 2010. Þar má sjá að töluverður samdráttur í starfseminni hefur átt sér stað milli áranna 2009 og 2010 því áfram þurfti stofnunin að takast á við verulega lækkun fjárveitinga. … Lesa meira

5. júlí 2011

Neyðarútgangur á norðurgafli HSu fjarlægður

Neyðarútgangurinn sagaður niður. Þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að fjarlægja neyðarútganginn norðanmegin á byggingu HSu.  Notast er við öfluga steypusög á vegum verktakans Kristjáns Jónssonar og miðast verkið vel.  Neyðarútgangurinn var byggður um leið og eldri hluti hússins og hefur … Lesa meira

22. júní 2011

Samkomulag vegna fyrstu viðbragða í alvarlegum slysum/veikindum

IMG_9527-minnkud Samkomulag milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Björgunarfélagsins Eyvinds á Flúðum, Lögreglunar í Árnessýslu og Árnesingadeildar Rauða Krossins var undirritað þann 21. Júní.  Samkomulag þetta markar tímamót og felur í sér að stofnað verður Vettvangshjálparlið á Flúðum, mannað 13 einstaklingum. Nú þegar eru … Lesa meira

10. júní 2011

Sjúkraflutningamenn fluttir í nýtt húsnæði, Björgunarmiðstöð Selfoss

Nokkrir starfsmenn og bílar fyrir framan nýju Björgunarmiðstöðina.  Mynd ÁH Langþráður draumur Sjúkraflutningamanna á suðurlandi er loksins orðinn að veruleika.  Eftir margra ára bið eru þau loksins komin í framtíðarhúsnæði í Björgunarmiðstöð Selfoss við Árveg.  Nýja Björgunarmiðstöðin er öll hin glæsilegasta og aðstaða fyrir starfsmenn til fyrirmyndar.  Breytingin fyrir sjúkrflutningamennina … Lesa meira

10. júní 2011

Stjórnendur frá HSSA í heimsókn á HSu

Gestir frá HSSA, stilltu sér upp til myndatöku ásamt stjórnendum HSu Stjórnendur Heilbrigðsstofnunar Suðausturlands, HSSA, eru að vinna að stefnumótun í heilbrigiðs- og öldrunarmálum fyrir sveitarfélagið Hornafjörð.   Í tengslum við þá vinnu komu í heimsókn á HSu 8 yfirmenn og stjórnarmenn HSSA miðvikudaginn 8. Júní.  Þeim var kynnt starfsemi og þjónusta … Lesa meira

27. maí 2011

Lungnamóttaka á heilsugæslunni Klaustri – Allir velkomnir!

Mánudaginn 30. maí verður opin lungnamóttaka á heilsugæslunni Klaustri.   Móttakan opnar kl. 9 og verður opin til hádegis, en lengur ef þurfa þykir.  Sigurður Þór Sigurðarson lungnalæknir verður með móttökuna, en hann er vel kunnugur íbúum á Klaustri og nágrenni. … Lesa meira

25. maí 2011

Dagur barnsins – 25 maí

Steinunn og Anna, starfsmenn heilsugæslunnar Í tilefni af degi barnsins heldur Barnaheill upp á daginn með því að gefa börnum blöðru. Heilsugæslustöð Selfoss tekur þátt í þessu skemmtilega starfi og fá öll börn blöðru sem koma til hjúkrunarfræðinga eða lækna stöðvarinnar í dag. Einnig munu … Lesa meira

24. maí 2011

Gagnlegar upplýsingar – viðbrögð í eldgosum

Hér er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar og viðbrögð, þegar um eldgos er að ræða.  Mikilvægt er að fólk veiti hvort öðru sálrænan stuðning og dragi úr ótta barna.  Viðbrögð við ótta barna í eldgosi Sálrænn stuðningur Leiðbeiningar meðan á … Lesa meira

24. maí 2011

Áhættumat og viðbrögð vegna eldgoss í Grímsvötnum

Velferðarráðherra kynnti áhættumat og gerði grein fyrir viðbrögðum á sviði heilbrigðismála vegna eldgossins í Grímsvötnum á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.   Fulltrúar velferðarráðuneytisins hafa verið í reglulegu sambandi við stjórnendur heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi frá því að gosið í Grímsvötnum hófst og … Lesa meira

23. maí 2011

Frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vík og á Klaustri.

Starfsfólkið á heilsugæslustöðvunum í Vík og á Klaustri  hvetur alla þá sem vilja og finna hjá sér þörf til að ræða málin, í því sérstaka ástandi sem fylgir eldgosi í Grímsvötnum, til að hafa samband. Símar heilsugæslustöðvarinnar í Vík eru … Lesa meira

23. maí 2011

Heilsugæslurnar á hamfarasvæðunum, Klaustri og Vík

Starfsfólk heilbrigðisstofnunar Suðurlands hvetur fólk sem býr á svæðinu sem mestu náttúruhamfarirnar eru og þar sem  öskufall er mest, að vera óhrætt við að leita á sínar stöðvar og hafa samband við starfsfólk heilsugæslustöðvanna.  Hjúkrunarfólk og læknar eru til taks … Lesa meira

23. maí 2011

Free dental care, for children of low income parents. Ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn tekjulágra foreldra.

www.tr.is Sjá nánar á íslensku eða á www.tr.is Information here english or on www.tr.is Informacje tutaj polskich lub www.tr.is    

23. maí 2011

Vegna eldgossins í Grímsvötnum – Hugsanleg áhrif á heilsu manna

Vegna eldgossins í Grímsvötnum  og hugsanlegar áhrifa á heilsu manna þá vill sóttvarnalæknir vekja athygli á eftirfarandi: Askan hefur einkum ertandi og bráð áhrif á öndunarfæri og augu manna en lítil sem engin eituráhrif. Til að forðast ertandi áhrif á … Lesa meira

22. maí 2011

Heilbrigðisstofnun Suðurlands í öskumistri

hsu Þó nokkuð öskufall varð á Selfossi þegar líða tók á sunnudaginn 22. maí og var bærinn hulinn öskumistri.  Meðflylgjandi mynd af stofnunni var tekin um kvöldmatarleytið á sunnudeginum og sést vel hvað skyggnið var lélegt yfir Ölfusá.

22. maí 2011

Heilbrigðisþjónusta vegna eldgoss í Grímsvötnum

Viðbragðsstjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu)  hefur í morgun verið í sambandi við stjórnendur heilsugæslustöðvanna á Kirkjubæjarklaustri, Vík og Rangárþingi. Læknar og hjúkrunarfræðingar eru á öllum stöðvunum til að sinna nauðsynlegri þjónustu í samstarfi við almannavarnir ofl.   Stjórnendur HSu eru í góðu sambandi … Lesa meira

20. maí 2011

Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við HSu

Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við HSu Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Heilbrigðisstofnun Suðurlands fimmtudaginn 19. maí.  Lendingin var liður í lendingaræfingu þyrlunnar við HSu.  Þyrlupallurinn við stofnunina er sem betur fer lítið notaður og því þarf að prófa lendingu öðru hvoru.

19. maí 2011

Umhverfisvænn ferðamáti starfsmanna Heilsugæslustöðvarinnar á Selfossi

Hjól heilsugæslunnar Selfossi Heilsugæslustöðin á Selfossi fjárfesti í reiðhjólum nú fyrir skömmu fyrir sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga stöðvarinnar. Hjólin eru ætluð fyrir vitjanir í nærumhverfi stöðvarinnar .Markmiðið með kaupunum er heilsuefling, umhverfisvænn ferðamáti og sparnaður.

17. maí 2011

Mislingafaraldur í Evrópu

Frá Sóttvarnarlækni Sóttvarnalæknir vill vekja athygli á að mislingafaraldur geisar nú í Evrópu. Rúmlega 7.000 einstaklingar hafa greinst með mislinga í Evrópu það sem af er 2011 sem er miklu meira en undanfarin ár. Flestir hafa greinst í Frakklandi en … Lesa meira

17. maí 2011

Bráðaflokkunarvika 20. – 27. maí 2011

Ákveðið hefur verið að halda bráðaflokkunarviku frá 20. – 27. maí næstkomandi. Markmið þessa framtaks er að vekja athygli á þessu kerfi og efla þekkingu viðbragðsaðila. Þátttakendur eru viðbragðsaðilar samkvæmt reglugerð nr. 100/2009. Aðilar að bráðaflokkunarviku eru lögregluembættin, slökkviliðin, heilbrigðisstofnanir, … Lesa meira

13. maí 2011

Vorfundur Landssambands heilbrigðisstofnana

IMG_1810 Vorfundur Landssambands heilbrigðisstofnana var haldinn dagana 12 og 13 maí. Landssamband heilbrigðisstofnana var stofnað 25. Júní 2010 og var þetta fyrsti vorfundur samtakanna. Birgir Gunnarsson formaður LH setti fundinn og Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, fjallaði um heilbrigðissþjónustu í nútíð og framtíð. … Lesa meira

2. maí 2011

Valda bólusetningar sjálfnæmissjúkdómum?

Valda bólusetningar sjálfnæmissjúkdómum (vaccine induced autoimmune diseases)?

Vegna mikillar umræðu undanfarið í fjölmiðlum og bloggheimum um meinta skaðsemi bólusetninga þá vill sóttvarnalæknir árétta eftirfarandi:

Lesa meira

29. apríl 2011

Umfangsmikil hópslysaæfing á HSu

IMG_1777 Í dag föstudaginn 29. apríl var umfangsmikil hópslysaæfing á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Æfð var móttaka 20 slasaðra einstaklinga og fyrstu viðbrögð heilbrigðisþjónustu vegna þeirra. Allir starfsmenn Heilbrigðisstofnunarinnar fengu boð um slys og um 150 starfsmenn tóku þátt í þessari æfingu. Lesa meira

26. apríl 2011

Ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn

Frá 1. maí til með 26. ágúst verður boðið uppá ókeypis, nauðsynlegar tannlækningar fyrir börn tekjulágra foreldra / forráðamanna yngri en 18 ára. Lesa meira

19. apríl 2011

Ályktun fundar samráðsnefndar

Samráðsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands hélt fund með rekstraraðilum hjúkrunarheimila í umdæminu 14. apríl sl. Á fundinum var fjallað um vistunarmat á hjúkrunarheimilum, fækkun hjúkrunar- og dvalarrýma, biðlista ofl. Ennfremur var kynnt athugun um lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum.

Lesa meira

15. apríl 2011

Vistunarmat fyrir hjúkrunarrými

Erindi Unnar Þormóðsdóttur, hjúkrunarfræðings og formanns vistunarmatsnefndar í heilbrgiðisumdæmi Suðurlands um vistunarmál og biðlista í heilbrigðisumdæmi Suðurlands. Flutt 14. apríl á Hvosvelli á fundi samráðsnefndar heilbrigðisumdæmis Suðurlands

Lesa meira

14. apríl 2011

Þjónustusamningur HSu Hvolsvelli og Rangárþings Eystra

Rangárþing eystra hefur undirritað þjónustusamning við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (Hsu) um trúnaðarlæknis- og heilbrigðisþjónustu fyrir starfsmenn sína. Lesa meira

12. apríl 2011

Hjálpartækjaráðgjöf

Föstudaginn 15. apríl opnar hjálpartækjamóttaka/ráðgjöf á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Lesa meira

12. apríl 2011

Sjúkraflutningarmenn HSu að kenna fyrir sjúkraflutningarskólann

Sjúkraflutningsmenn HSu hafa verið með verklega kennslu á grunnnámskeiði í sjúkraflutningum (EMT-B). Kennslan hefur farið fram í hinum nýja og stórglæsilega fyrirlestrasal HSu sem staðsettur er í kjallara nýbyggingarinnar.

 

Lesa meira

11. apríl 2011

Almenn ungbarnabólusetning gegn pneumókokkum

 Almenn ungbarnabólusetning gegn pneumókokkum hefst hér á landi 11. apríl á þessu ári. Bólusett verður með bóluefninu Synflorix® sem framleitt er af GSK þar til niðurstaða útboðs liggur fyrir síðar á þessu ári. Lesa meira

7. apríl 2011

Bólusetning gegn miðeyrnabólgu og öndunarfærasýkingu

Eins og áður hefur komið fram þá var ætlunin að hefja almenna bólusetningu gegn pneumókokkum hér á landi í apríl á þessu ári. Ráðherra velferðamála hefur hins vegar ákveðið að mikilvægt sé að hefja almennar bólusetningu sem fyrst og því verður hægt að hefja almenna bólusetningu frá og með 11. apríl. Lesa meira

1. apríl 2011

Díoxínmengun frá sorpbrennslum

Á Íslandi eru 4 sorpbrennsluofnar sem mælst hafa með há gildi díoxíns í útblæstri og er einn þeirra staðsettur á Kirkjubæjarklaustri.

Díoxínefni geta myndast í iðnaði en einnig af náttúrulegum ástæðum, svo sem eldgosum og skógarbruna. Brennsluofanr fyrir sorp sem brenna við of lágt hitastig geta stuðlað að umtalsverðri díoxínmengun. Díoxín er helst að finna í jarðvegi, mjólkurafurðum, kjöti, fiski og skelfiski. Lítið er af efninu í plöntum, vatni og andrúmslofti því að efnið binst einkum í fituvef.

 

Lesa meira

31. mars 2011

Svanborg yfirljósmóðir hættir störfum

Svanborg Egilsdóttir ljósmóðir okkar Sunnlendinga, hætti nýverið störfum við HSu eftir 30 ára starf. Síðustu 10 árin starfaði Svanborg sem yfirljósmóðir á fæðingardeildinni. Henni var haldið kveðjuhóf 30. mars sl. af samstarfsfólki sínu og ljósmæðrum á deildinni og færður þakklætisvottur fyrir störfin.

Lesa meira

22. mars 2011

Fréttir af Noroveirusýkingu

Eins og áður hefur komið fram  kom upp grunur um Noroveirusmit á sjúkradeild HSu þann 18. mars sem svo var staðfest  þann 20. mars.

Ákveðið var að setja deild þegar í einangrun og að farið yrði eftir leiðbeiningum frá sýkingavarnardeild LSH þó svo greining lægi ekki fyrir á þeim tíma.

 

Lesa meira

19. mars 2011

Einangrun vegna niðurgangspestar

Á sjúkradeildinni á Selfossi hefur gengið niðurgangspest sem kom þar upp á meðal sjúklinga og starfsmanna. Meirihluti sjúklinga veiktust. Talið er að um sýkingu af völdum nóróveiru sé að ræða en það er óstaðfest.

Deildin var sett í einangrun í gær og allar heimsóknir á hana takmarkaðar verulega. Stór hluti sjúklinga veiktist og nokkrir starfsmenn. Vel hefur gengið að vinna á sýkingunni og er ekki tekið við nýjum sjúklingum á deildina á meðan verið er að vinna á málinu. Vonast er til að fljótlega eftir helgina komist allt í samt lag.

 

Lesa meira

18. mars 2011

Fækkun stöðugilda hjá ríkinu

Í svari fjármálaráðherra í vikunni við fyrirspurn um fækkun stöðugilda hjá ríkinu kemur fram, að frá ársbyrjun 2009 til ársloka 2010 hafi stöðugildum fækkað um 545. Þar af var fækkunin mest á heilbrigðisstofnunum eða 470 stöðugildi. Af þessum 545 stöðugildum fækkaði um 240 stöðugildi í Reykjavík, en um 305 stöðugildi utan Reykjavíkur.

Lesa meira

17. mars 2011

Áhrif náttúruhamfara á líðan fólks

Ýmsar náttúruhamfarir hafa dunið yfir íslensku þjóðina undanfarin ár. Nærtækasta dæmið er eldgosið í Eyjafjallajökli sem hófst á síðasta ári. Þrátt fyrir að gosinu sé formlega lokið eru áhrif þess enn til staðar. Öskufok herjar á íbúa svæðisins og margir líða enn fyrir áhrif streitu og álags sem hvíldi á þeim á meðan á gosinu stóð og fyrst á eftir.

 

Lesa meira

15. mars 2011

Aðalfundur 20. mars nk. kl.14:00

Aðalfundurinn verður haldinn sunnudaginn 20. mars 2011
á hjúkrunardeild Ljósheima v/Árveg kl. 14:00.
Á dagskránni verður venjuleg aðalfundarstörf auk þess mun Þór Vigfússon skemmta okkur af sinni alkunnu frásagnarlist.  Kaffiveitingar í boði félagsins. 
Ársskýrsla fyrir árið 2010 mun liggja frammi á aðalfundinum.
Allir velkomnir. 

Stjórn Vinafélags Ljósheima og Fossheima

Lesa meira

10. mars 2011

Breytingar á bráða- og vaktþjónustu í Árnes- og Rangárvallasýslum

Í byrjun febrúar var gerð breyting á slysa- og bráðamóttaka Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Árnes og Rangárvallasýslum. Styrking hefur orðið á vaktinni þannig að núna er hjúkrunarfræðingur allan sólarhringinn á bráðamóttökunni á Selfossi, til viðbótar við vaktþjónustu lækna sem þar hefur verið. Íbúum svæðisins er beint á bráðamóttökuna á Selfossi og þar fer fram öll símaþjónusta. Áfram eru einnig vaktir lækna í Rangárvallasýslu.

Breytingin er til að bregðast við miklu álagi og bæta nýtingu heilbrigðisstarfsmanna, ásamt því að efla dagþjónustu og tryggja öflugri heilsugæslu.

Með breytingunni er möguleiki á að fylgjast lengur og betur með sjúklingum á bráðamóttökunni.

Lesa meira

8. mars 2011

Hlekkur á heimasíðu HSu við Fjölmenningarsetur

Fjölmenningarsetur hefur það hlutverk að greiða fyrir samskiptum fólks af ólíkum uppruna og efla þjónustu við innflytjendur sem búsettir eru á Íslandi
Heimasíða Fjölmenningarseturs hefur verið uppfærð og er nú á átta tungumálum. Auk íslensku er búið að þýða hana yfir á ensku, pólsku, króatísku, tailensku, spænsku, rússnesku og litháísku. Á síðunni má finna upplýsingar um Ísland og íslenskt samfélag.

Lesa meira

4. mars 2011

Staða hjúkrunarfræðings

Laus staða hjúkrunarfræðings.   sjá nánar Lesa meira

4. mars 2011

Að vera háður nefúða

Læknar í Svíþjóð hafa að undanförnu verið að gefa út viðvaranir til fólks um notkun nefúða. Sala á nefúðum hefur aukist um 13% það sem af er þessu ári. Læknarnir benda á hve ávanabindandi droparnir eru. Þó nokkrir hafa vanist á dropana og eru jafnvel búnir að vera á meðferðinni í nokkur ár. Lesa meira

1. mars 2011

Börn og náttúruhamfarir

Við náttúruhamfarir geta börn orðið mjög hrædd og eftir á geta sum þeirra sýnt breytingar í hegðun og líðan. Hjá flestum börnum eru breytingarnar vægar, vara stutt og þau jafna sig algjörlega með tímanum. Hins vegar geta endurteknar upprifjanir um atburðinn valdið vanlíðan og kvíða. Því ber að varast að vera endurtekið að rifja upp atburðinn í viðurvist barnanna og þá sérstaklega yngri barna. Þetta á sérstaklega við um efni í fjölmiðlum.

Lesa meira

24. febrúar 2011

Hjúkrunarfræðingar/ hjúkrunarnemar – sumarafleysing

Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga/3ja árs hjúkrunarnema til sumarafleysinga á hand – og lyflæknissvið sjúkrahússins á Selfossi.

 

Lesa meira

18. febrúar 2011

Nýr heyrnarmælingaklefi hjá HSu

Nýr heyrnarmælingarklefi hefur verið tekinn í notkun á heilsugæslustöðinni á Selfossi. Með tilkomu hans verður nú mögulegt að gera áreiðanlegri heyrnamælingar en áður.

Lesa meira

17. febrúar 2011

Opnuð hefur verið sérhæfð móttaka

Sérhæfð móttaka vegna þvaglekavandamála er á Heilsugæslustöð Selfoss. Þar eru hjúkrunarfræðingur/ ljósmóðir og læknir/ kvensjúkdómalæknir til ráðgjafar.

Móttakan er opin á þriðjudögum frá 15 – 16.

Hægt er að panta tíma í síma 480-5100.

Lesa meira

17. febrúar 2011

Breytt bráða- og slysaþjónusta

Frá og með fyrsta febrúar breyttist slysa og bráðamóttaka Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Árnes og Rangárvallasýslum. Styrking hefur orðið á vaktinni þannig að núna er hjúkrunarfræðingur allan sólarhringinn staðsettur á bráðamóttökunni á Selfossi. Óbreytt þjónusta er þó í uppsveitum Árnessýslu. Öðrum íbúum svæðisins er bent á að hringja í síma 480 5112 í bráðatilvikum. ALLTAF SKAL ÞÓ NOTA 112 Í NEYÐARTILVIKUM.

Með þessari breytingu er verið að styrkja bráðaþjónustu og efla. Íbúum svæðisins er þá beint á bráðamóttökuna á Selfossi og þar fer fram öll símaþjónusta. Áfram eru vaktir lækna í í Rangárvallasýslu.

Breytingin er til að bregðast við miklu álagi og bæta nýtingu heilbrigðisstarfsmanna og á þann hátt efla dagþjónustu og tryggja öflugri heilsugæslu.

Með breytingunni er möguleiki á að fylgjast lengur og betur með sjúklingum á bráðamóttökunni.

Lesa meira

17. febrúar 2011

Aukning á inflúensu B og RS veirusýkingum

Inflúensa hefur færst í aukana síðastliðnar vikur, sem sést á vaxandi fjölda þeirra sem leita til læknis vegna inflúensulíkra einkenna, sjá mynd
Aukning í síðustu viku (viku 6) er aðallega í ungu fólki á aldrinum 10 – 19 ára, sjá mynd 2. Samtímis hefur fjöldi sýna sem kemur á veirufræðideild Landspítala farið vaxandi og er það inflúensa B sem oftast er staðfest. Í síðustu viku var inflúensa B staðfest hjá 22 einstaklingum, vikuna á undan (viku 5) greindust 15 manns með sýkinguna. Enginn hefur greinst með inflúensu A (svínainflúensu) hérlendis síðastliðnar tvær vikur.

Lesa meira

8. febrúar 2011

Starfssemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands 2011

Skv. áætlun um starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) á árinu 2011 verða talverðar breytingar á starfsemi stofnunarinnar. Fjárveiting til stofnunarinnar í fjárlögum 2011 var lækkuð um 113 m.kr. Heildarlækkun fjárveitinga til stofnunarinnar árin 2009 – 2011 nemur því samtals um 21 %.

Lesa meira

7. febrúar 2011

Lausar stöður við Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Lausar eru 2 stöður við stofnuna, ein staða sérnámslæknis og staða læknis í Rangárþingi

Lesa meira

4. febrúar 2011

Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum

Í Talnabrunni, bréfi frá heilbrigðistölfræðisviði landlæknisembættisins fyrir janúar 2011 er farið yfir vistunarmat á árinu 2010. Lesa meira

4. febrúar 2011

Breyting á vaktþjónustu lækna í Rangárvallasýslu


Frá og með 1. febrúar 2011 mun læknisþjónusta utan dagvinnutíma, þ.e. frá kl. 16:00 – 08:00 á virkum dögum og allar helgar og helgidaga, verða sinnt frá HSu á Selfossi. Þetta á ekki við svæði ð austanvið Holtsós sem fellur áfram undir Heilsugæslustöðina í Vík.

Vaktsími er 480 5112, sími Neyðarlínu er 112.

Eftir sem áður verður neyðarvakt lækna og sjúkraflutningsþjónusta staðsett í Rangárvallasýslu, en sú vakt er boðuð út af ofangreindum aðilum í neyðartilvikum.

Starfsfólk heilsugæslunnar leggur áherslu á að öryggi íbúa verði ekki skert með þessu fyrirkomulagi.

Lesa meira

3. febrúar 2011

Aðalheiður Guðmundsdóttir ráðin í stöðu gæða- og verkefnisstjóra HSu

Aðalheiður Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi gæða- og verkefnisstjóra við HSu. Helstu verkefni Aðalheiðar eru að fylgja eftir gæðastefnu og gæðamarkmiðum stofnunarinnar og sinna útgáfu gæðahandbókar fyrir HSu. Hún mun hafa umsjón með innleiðingu og fylgir eftir gæða- og öryggismálum á stofnuninni. Hefur umsjón með sýkingavörnum, atvikaskráningu og endurbótum tengdum atvikum og sýkingarvörnum.

Lesa meira

1. febrúar 2011

St. Jósefsspítali sameinast Landspítala

Samkvæmt frétt á heimasíðu Velferðarráðuneytisins verður St. Jósefsspítali hluti af LSH frá með 1. febrúar 2011. Jafnframt verður Sólvangur sjálfstæð heilbrigðisstofnun.
Lesa meira

31. janúar 2011

Rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands 2010

Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) á árinu 2010 gekk vel þrátt fyrir ýmsa erfiðleika. Stofnuninni var gert að draga saman útgjöld um 130 m.kr. eða um 6,7 % frá árinu 2009. Skv. bráðabirgðaniðurstöðu er útlit fyrir að það hafi tekist og, að reksturskostnaður stofnunarinnar verði í samræmi við fjárlög ársins

Lesa meira

28. janúar 2011

Lækkun lyfjakostnaðar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á árinu 2010

Lyfjakostnaður fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurlands í árslok 2010 var 63.9 millj. og lækkaði þessi kostnaður milli ára um rúml. 13 millj. eða rúml. 17%.

Lesa meira

28. janúar 2011

Hnykkjari á HSu

Á HSu starfar hnykkjari, Rory Hayes, sem tekið hefur á leigu aðstöðu í kjallara stofnunarinnar.

Lesa meira

21. janúar 2011

Alvarleg tilfelli með svínainflúensu hafa greinst á Íslandi

Á Íslandi hefur nú greinst mjög alvarlegt tilfelli með svínainflúensu (H1N1) sem þarf ECMO meðferð á LSH. Um er að ræða 30 ára gamlan einstakling sem veiktist mjög hastarlega og fékk slæman pneumonitis. Þessi einstaklingur er einungis með væga undirliggjandi áhættuþætti og hafði ekki verið bólusettur.

 

Lesa meira

18. janúar 2011

Vetrarælupest

Á undanförnum vikum hefur töluvert borið á ælupest sem er að ganga víða í Skandinavíu, svokölluð NORO veira en NORO veiran er veira sem tilheyrir hóp veira af Caliciveiru tegund. Þessi veira getur eingöngu valdið einkennum í mönnum og dýr geta ekki veikst eða borið smit.

Lesa meira

14. janúar 2011

Veldur bólusetning gegn svínainflúensu drómasýki?

Undanfarið hefur talsverð umræða farið fram um hvort bólusetning gegn svínainflúensu geti valdið drómasýki.

Af því tilefni vill sóttvarnalæknir árétta eftirfarandi:

Lesa meira

13. janúar 2011

Fjöldi inflúensutilfella á Íslandi vaxandi

Síðastliðnar vikur hafa fregnir borist um alvarleg tilfelli inflúensu í Bretlandi en 50 manns hafa látist vegna inflúensu frá því í október 2010, þar af greindust 45 manns með inflúensu A(H1N1)2009 (svínainflúensu) og fimm voru með inflúensu B. Langflestir þeirra sem létust voru yngri en 65 ára og óbólusettir, sjá slóð http://www.hpa.org.uk/. Í öðrum nágrannalöndum færist inflúensan nú í aukana.
Fjöldi inflúensutilfella á Íslandi fer nú vaxandi og inflúensa hefur verið staðfest hjá samtals tíu einstaklingum
Sóttvarnalæknir hvetur fólk til þess að láta bólusetja sig. Veirulyf eru til á hverri heilsugæslustöð til að nota við erfiðustu tilvikin. Lesa meira

11. janúar 2011

Fyrsti Sunnlendingur ársins 2011 á HSu

Fyrsta barn ársins 2011 sem fæddist á HSu var drengur sem kom í heiminn á nýársdag. Foreldrar eru Guðrún Edda Hannibalsdóttir og Gísli Jósep Hreggviðsson, Sóltúni 11 á Selfossi. Drengurinn vóg 4450 gr og var 55 cm að lengd. Það var Dagný Zöega ljósmóðir sem tók á móti drengnum. Þetta er 4. barn þeirra hjóna og gekk fæðingin mjög vel og munaði innan við klukkustund að þetta yrði fyrsta barn ársins á Íslandi en drengurinn fæddist kl. 02:49 þann 1. janúar. Lesa meira

4. janúar 2011

Hvet til bólusetningar!

Sóttvarnarlæknir hefur gefið út ráðleggingar til fólks að láta bólusetja sig. Borið hefur á H1N1 inflúensu í nágrannalöndum okkar og aðeins á Íslandi. Einkennin eru hár hiti, höfuðverkur og beinverkir en oft líka kvefeinkenni svo sem hósti. Lesa meira

29. desember 2010

Sjúkraflutningamenn á Selfossi færðu 4. mánaða snáða fjárstyrk

Sjúkraflutningamenn á Selfossi hafa á undanförnum árum styrkt fjölskyldur með fjárstyrk um jólahátíðina. Þann 28. desember fór stjórn Félags sjúkraflutningamanna í Árnessýslu og afhenti styrkinn sem er hluti af söluágóða dagatals þeirra og er gefið út af þeim sjálfum.

Lesa meira

27. desember 2010

Staða HSu um áramót

Óvissan, sem ríkt hefur í haust og vetur með starfsemi heilbrigðisstofnana hefur valdið því, að ekki var hægt að ljúka gerð rekstraráætlunar tímanlega fyrir áramót.
Eftir að ljóst varð hvaða breytingar voru gerðar á frumvarpi til fjárlaga við 2. umræðu nú í desember hefur verið unnið að gerð rekstraráætlunar HSu fyrir árið 2011. Heilbrigðisstofnanir eiga að skila sínum áætlunum fyrri hluta janúar.

Lesa meira

23. desember 2010

Jólakveðja frá HSu

Starfsfólk HSu sendir öllum Sunnlendingum sínar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á nýju ári.

Lesa meira

21. desember 2010

Björn G. Snær Björnsson ráðinn afleysingalæknir í Rangárþing

Nýverið var Björn G. Snær Björnsson læknir ráðinn til afleysinga í Rangárþing.

Hann útskrifaðist árið 1996 frá HÍ og hefur unnið á ýmsum skurðdeildum innalands og að auki í Hong Kong. Síðast starfaði hann í 2 ½ ár á Bæklunarskurðdeild Landspítala, en einnig hefur hann starfað víða um land, lengst af á Ísafirði og einnig í ýmsum afleysingum fyrir HSU árin 2009 og 2010. Lesa meira

16. desember 2010

Nýr fæðinga- og kvensjúkdómalæknir ráðinn

Annie B. Sigfúsdóttir, sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómum hefur hafið störf á Hsu. Hún er sérfræðimenntuð á Akademska sjúkrahúsinu í Uppsölum í Svíþjóð og kemur beint þaðan til starfa á Hsu. Veruleg þörf var orðin á að auka við stöðu sérfræðinga í greininni en Jón B Stefánsson sem verið hefur eini sérfræðingurinn á sviði kvensjúkdóma hefur minnkað við sig starfshlutfall.

Lesa meira

13. desember 2010

Stuttar upplýsingar um heilbrigðismál

Öskufok og afleiðingar þess

Eftir að gróður sölnaði er meira öskufok umhverfis Eyjafjallajökul og andleg líðan sveiflast með öskufokinu, mikill munur er að ræða við íbúa þegar logn er og bjart eða í öskufoki þegar loftgæði eru takmörkuð og íbúar tala um að þeir bryðji ösku. Öskufok birgir oft sýn og fólk hefur áhyggjur af framtíðaráhrifum þess. Búið er að birta ítarlegar rannsóknir á ösku frá Eyjafjallajökli sem gerðar voru á 12 rannsóknarstofum í Englandi. Niðurstöður hafa sýnt að varla er mælanlegt magn af brennisteinsefnum í öskunni en þau geta stuðlað að astma og ekki heldur kísilkristöllum (crystalline silica), efni sem talið er hættulegt fyrir lungu manna og getur valdið svokölluðum steinlungum hjá námaverkamönnum sem vinna við ýmsan námagröft og eru í stöðugri snertingu við ryk sem inniheldur þetta efni.

Lesa meira

10. desember 2010

Fulltrúar samstöðuhópsins í heimsókn

Fulltrúar úr samstöðuhópnum, sem í haust skipulögðu aðgerðir til að verja sjúkrahúsþjónustu á Suðurlandi, komu í heimsókn á HSu í gær, 9. des.   Þar var þeim kynnt starfsemi og þjónusta sjúkrahússins og heilbrigðisstofnunarinnar yfirleitt.  Þeim greint frá hvernig útlitið væri með starfsemina á næsta ári,  hvaða hnjaski stofninun lendir óhjákvæmilega í þrátt fyrir verulega minni skerðingu fjárveitingar heldur en gert var ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga. Þá kom fram mikilvægi þess, að halda þyrfti áfram kynningu um og baráttu fyrir sjúkrahúsþjónustu á Suðurlandi.

Lesa meira

9. desember 2010

Leiðir til að efla heilsugæsluna

Lagt er til að námsstöðum í heimilislæknum verði fjölgað, tekin verði upp sveigjanleg tilvísanaskylda og forsendur skoðaðar fyrir flutningi verkefna heilsugæslu til sveitarfélaga. Þessar tillögur og fleiri eru settar fram í skýrslu um leiðir til að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað fólks í heilbrigðiskerfinu.
Lesa meira

7. desember 2010

HSu semur um trúnaðarlæknisþjónustu við Sv.fél. Árborg

Heilbrigðisstofnun Suðurlands gerði í dag samning við Sveitarfélagið Árborg um trúnaðarlæknisþjónustu. Tilgangur samningsins er að efla þjónnustu við starfsmenn Árborgar og að þjónustunni sé sinnt í heimabyggð.  Trúnaðarlæknir er starfsmaður Hsu en fulltrúi sveitarfélagsins og veitir ráðgjöf vegna fjarvista starfsmanna í veikinda- og slysatilfellum, m.a. veikinda- og starfshæfnisvottorð.  Öflugt samstarf er á milli starfsmanna, yfirmanna og trúnaðarlæknis . Boðið er uppá árlega bólusetningu, heilbrigðisskoðanir eftir því sem við á og ýmsa fræðslu til starfsmanna og stjórnenda.  Ómar Ragnarsson sérfræðingur í heimilislækningum og starfsmaður heilsugæslustöðvarinnar á Selfossi verður trúnaðarlæknir. Lesa meira

2. desember 2010

Svínainflúensa í svínum á Íslandi

Eins og komið hefur fram í fréttum þá hefur svínainflúensan (H1N1) sem gekk sl. vetur greinst í svínum í svínabúum hér á landi. Þessi svín voru/eru einkennalaus og ekki vitað til að smit hafi borist í menn.

Vegna þessa þá hefur sóttvarnalæknir ákveðið eftirfarandi:

Lesa meira

26. nóvember 2010

Hjartaheill á Suðurlandi gefa þolprófsbúnað

Hjartaheill á Suðurlandi færði stofnuninni peningagjöf að upphæð kr. 1 milljón til kaupa á þolprófsbúnaði. Heilbrigðisstofnun Suðurlands er afar þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf og finna þann hlýhug sem gjöfinni fylgir. Ómetanlegt er hversu Hjartaheill á Suðurlandi hefur í gegnum árin stutt við stofnunina og haft að leiðarljósi að efla gæði þjónustunnar við sjúklinga.

Hjartaheill á Suðurlandi er deild innan Landssamtaka hjartasjúklinga sem voru stofnuð 2004.  Markmið Hjartaheilla eru m.a. að bæta aðstöðu og tækjakost á sjúkrastofnunum til rannsókna og lækninga á hjartasjúkdómum og skapa aðstöðu til endurhæfingar

Lesa meira

25. nóvember 2010

Jákvæð þróun á lyfja- og súrefniskostnaði hjá HSu

Samantekt á 9 mánaða stöðu lyfja- og súrefniskostnaðar hjá HSu sýnir lækkun milli ára um 8.3 millj. eða tæpl. 14%. Að frádregnum lyfjakostnaði fyrir apótekin á Klaustri og Vík er lyfja- og súrefniskostnaður HSu samtals kr. 33.5 millj.

 

Lesa meira

25. nóvember 2010

Gæðadagur á HSu

Haustgæðadagur lækna á Hsu var haldin þann 16. nóvember sl. Efni dagsins var rannsóknir við rannsóknarstofuna og notkun sterkra og ávanabindandi lyfja.
Kolbrún Káradóttir, yfirlífeindafræðingur HSu gerði grein fyrir því hvernig til hefði tekist að breyta rannsóknarvenjum lækna á Hsu. Veruleg breyting hefur orðið á þeim rannsóknum sem ætlað var að draga úr hefur fækkað um allt að 90%. Heildarfjöldi rannsókna er 4% minni en á sl.ári sem hafði þá lækkað um 30% frá árinu þar áður. Áframhaldandi gæðastarf og rétt val rannsókna hefur haft þessi áhrif og er sparnaður verulegur, án áhrifa á gæði heilbrigðisþjónustunnar. 
Sjá glærur Kolbrúnar um rannsóknir á HSu mynd0 mynd1
og Matthíasar, Sölutölur fyrir ópíóíða á Norðurlöndum 2004-8

Lesa meira

25. nóvember 2010

Gjöf á endurhæfingardeild HSu

Lionsklúbbarnir í Árnessýslu og Lionsklúbbur Selfoss færðu HSu að gjöf tæki í nýja endurhæfingaraðstöðu sjúkrahússins og hafa tækin þegar verið tekin í notkun.Þetta eru Lionsklúbbarnir Embla, Geysir, í Hveragerði, Laugdæla, Skjaldbreiður,á Selfossi og í Þorlákshöfn.
Um er að ræða tvö styrktarþjálfunartæki að verðmæti kr. 748.599 m.vsk. og var gefið í tilefni opnunar nýrrar sjúkraþjálfunaraðstöðu og heilsugæslustöðvar á Selfossi þann 8. apríl 2010.
Þá gaf Lionsklúbbur Selfoss að auki rafknúna standgrind, TNS tæki, þrekhjól og eyrnaskoðunarhaus að verðmæti kr. 1.244.376 m.vsk. Gjafatæki þessi efla gæði þjónustunnar við skjólstæðinga stofnunarinnar og ómetanlegt er að finna þann hlýhug sem gjöfinni fylgir.

Lesa meira

18. nóvember 2010

Já sæll!

Enn bíðum við á milli vonar og ótta eftir því hvort ákvörðun heilbrigðisráðherra um niðurrif heilbrigðiskerfisins á landbyggðinni verði að veruleika.

Á fundi sem haldinn var með ráðherra, þingmönnum, sveitarstjórnarmönnum og framkvæmdarstjórnum Heilbrigðisstofnana í Suðurkjördæmi (Selfoss, Vestmannaeyjar, Höfn og Suðurnes) kom berlega í ljós að ráðherra virðist ekki vita hvað heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni felur í sér. Það er miður að æðsti ráðamaður heilbrigðisþjónustu landsins geri sér ekki ljóst hve mikilvæg lífæð sjúkrahúsþjónustan er okkur íbúum. Það kom einnig á óvart að ráðherra gerði sér ekki grein fyrir muninum á milli „hátækniþjónustu“ landsspítalans og sjúkrahúsþjónustu landsbyggðarinnar.

 

Lesa meira

16. nóvember 2010

Aukinn kostnaður ríkis og einstaklinga vegna lokunar sjúkrahúss HSu á Selfossi

Ýmsir hafa óskað eftir upplýsingum um afleiðingar þess, að sjúkrahúsi HSu á Selfossi yrði lokað. Faglegum afleiðingum þess hefur verið lýst í sérstakri samantekt. Varðandi fjárhagslegar afleiðingar er hægt að meta meginstærðir við ákveðna kostnaðarþætti á móti fyrirhuguðum sparnaði. Gróft mat er eftirfarandi:

Fyrirhuguð útgjaldalækkun skv. frumvarpi til fjárlaga 2011 er 412,5 m.kr.

Árlega hafa verið um 1.500 innlagnir á sjúkrahúsi HSu, um 170 fæðingar, auk göngu- og dagdeildarþjónustu.

Lesa meira

12. nóvember 2010

Heilbrigðisráðherra afhent mótmæli liðlega 10 þúsund Sunnlendinga gegn boðuðum niðurskurði í heilbrigðismálum

Í gær þann11. nóvember afhentu Sunnlendingar Guðbjarti Hannessyni heilbrigðisráðherra lista með mótmælum íbúa á Suðurlandi gegn áformuðum niðurskurði á fjárframlögum til heilbrigðisþjónustunnar á Suðurlandi. Við sama tækifæri voru ráðherra einnig afhentir undirskriftalistar úr fleiri heilbrigðisumdæmum.

Alls skrifaði 10.071 íbúi nafn sitt á mótmælalistana á Suðurlandi sem jafngildir því að liðlega helmingur kosningabærra manna í heilbrigðisumdæmi Suðurlands hafi skrifað undir mótmælin en alls eru um 19.200 íbúar á svæðinu 18 ára og eldri. Þá höfðu 2560 eintaklingar einnig skráð mótmæli sín á Facebooksíðu gegn niðurskurðinum á hádegi í dag.

Lesa meira

12. nóvember 2010

Aðstandendadagur á hjúkrunardeildum 21. nóv.

Sunnudaginn 21. nóv. 2010 verður aðstandendadagur á Fossheimum og á Ljósheimum og hefst dagskráin kl.14 á báðum deildum.

Dagskráin verður í léttum dúr með gítarleik og söng sem hin sívinsæla Hjördís Geirsdóttir mun sjá um ásamt nokkrum frænkum. Einnig mun Þóra Grétarsdóttir lesa jólasögu. Að sjálfsögðu verður einnig boðið upp á kaffi og gott meðlæti. Aðstandendadagarnir eru samstarfsverkefni starfsfólks og Vinafélags Ljósheima og Fossheima. Þessir dagar hafa verið fastur liður í starfsemi vinafélagsins.
Komið og eigið notalega stund með aðstandendum, vinum, starfsmönnum og stjórnarmönnum í Vinafélaginu.

Lesa meira

11. nóvember 2010

Opið bréf til heilbrigðisráðherra

Fyrirhugaður niðurskurður á grunnþjónustu á sjúkrahúsum á landsbyggðinni vekur upp áleitnar spurningar. Ljóst er að tillögurnar fela í sér kerfisbreytingu þar sem þungi niðurskurðarins lendir á stofnunum sem nú standa fyrir u.þ.b. 10 % af útgjöldum til heilbrigðismála. Heildarniðurskurðurinn í heilbrigðiskerfinu nemur um 4,7 milljörðum króna, þar af 3 milljarðar á héraðssjúkrahúsunum. Af þessu leiðir að verkefni verða færð frá héraðssjúkrahúsunum til Landspítalans Háskólasjúkrahúss og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og reyndar að öllum líkindum til einkalæknastofa í Reykjavík. Með þessum niðurskurði er því verið að ráðast í stórfellda kerfisbreytingu á fyrirkomulagi heilbrigðisþjónustunnar í landinu sem ekki hefur farið nein skipulögð umræða um.

 

Lesa meira

11. nóvember 2010

Meðmælafundur á Austurvelli fimmtudaginn 11. nóv. kl. 16.00

Fimmtudag 11. nóvember kl. 16:00 munu hollvinir heilbrigðisþjónustunnar á landinu öllu sameinast um friðsamlegan meðmælafund á Austurvelli. Hollvinir Heilbrigðisstofnanna á Suðurlandi fóru af stað með undirskriftasöfnun til stuðnings heilbrigðisþjónustunni á Suðurlandi og munu stýra fundinu. Hollvinir annarra heilbrigðisstofnana og heilbrigðisþjónustunnar í heild sinni ákváðu að slást í för með Sunnlendingum.

Lesa meira

9. nóvember 2010

Réttar upplýsingar eða rangar ? Hvað er að ?

Vegna umræðu í fjölmiðlum að undanförnu um sjúkrahúsþjónustu á landsbyggðinni telur framvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) nauðsynlegt að leiðrétta mjög alvarlegan misskilning um þá þjónustu. Ýmsir stjórnmálamenn og fjölmiðlar hafa haldið því fram, að með frumvarpi til fjárlaga 2011 sé verið að flytja sérhæfðustu sjúkrahúsþjónustuna á fáa staði á landinu. Það hefur reyndar komið fram í útskýringum með frumvarpinu. Raunveruleikinn er hins vegar allt annar.

Lesa meira

4. nóvember 2010

Nei ráðherra!

Ég heyrði Guðbjart Hannesson heilbrigðisráðherra sitja fyrir svörum í útvarpsþætti á Rás 2. Ekki er hægt annað en að leiðrétta sumt af því sem hann fór með þar. Ráðherra sagði að nú væri aðeins tekið á móti börnum á sjúkrahúsunum á Ísafirði, Akureyri Neskaupstað Vestmannaeyjum og Akranesi utan Reykjavíkur. Á öðrum stöðum væru fæðingar að leggjast af.

Nei ráðherra.

Það er ekki rétt. Ég tala hér aðeins um Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) á Selfossi en þar þekki ég best til enda minn vinnustaður. Á Selfossi er tekið á móti börnum og verður vonandi lengi enn.

Lesa meira

28. október 2010

Eru ljósmæður á Selfossi óþarfar ?

Flestir tengja starf ljósmóður við þann merkisatburð sem fæðing barns er og er það mjög eðlilegt. Mörgum ljósmæðrum finnst það að taka á móti barni í þennan heim vera það stórkostlega í starfinu.

Um síðastliðin áramót breyttist starfsemi fæðingadeildar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands tölvert þegar hætt var með sólahringsvaktþjónustu svæfinga- og skurðlækna. Fór þá þjónustustig deildarinnar úr C1 í D1 (sjá nánar: http://landlaeknir.is/Pages/1222) sem þýðir að eingöngu eðlilegar fæðingar fara fram á deildinni. Við þessa breytingu hefur að sjálfsögðu fækkað fæðingum á suðurlandi frá því sem var, enda áhættukonum beint á Landspítala háskólasjúkrahús (Lsh) .

 

Lesa meira

22. október 2010

Minnisblað um áhrif á þjónustu HSu og afleiðingar.

Í heilbrigðisþjónustu þarf að skera niður um 4,7 milljarða kr.

Heilbrigðisráðuneytið forgangsraðar niðurskurðinum þannig, að hlífa skuli heilsugæslu og stóru sjúkrahúsunum í R.vík og Akureyri, ásamt Akranesi. Niðurskurðurinn verði hins vegar harkalegur á sjúkrahúsum annarra heilbrigðisstofnana víðst vegar um landið eða um 3 milljarðar kr. Þær stofnanir eru hins vegar með innan við 10 % af heildarfjárveitingu til sjúkrahús- og sérfræðiþjónustu og því verður niðurskurðurinn mjög mikill hjá þeim.

 

Lesa meira

13. október 2010

Ályktun stjórnar Suðurlandsdeilda Félags íslenskra Hjúkrunarfræðinga

Sá niðurskurður sem boðaður er á Heilbrigðisstofnun Suðurlands er gríðarlegur og með öllu óskiljanlegur. Boðað hefur verið að fjárframlög til sjúkrasviðs HSu muni lækka um 412 milljónir króna á næsta ári, en það jafngildir rekstri hand-og lyflæknisdeildar, skurðstofu og fæðingardeildar.

Lesa meira

13. október 2010

Ályktun hjúkrunar- og ljósmæðraráðs HSu

Hjúkrunar- og ljósmæðraráð Hsu mótmælir harðlega þeirri aðför sem gerð er að Heilbrigðisstofnun Suðurlands í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011.

Lesa meira

13. október 2010

Ályktun Kvenfélags Selfoss

Ályktun félagsfundar Kvenfélags Selfoss um niðurskurð á þjónustu sjúkrahússins á Selfossi.

Félagsfundur Kvenfélags Selfoss haldinn 12. október 2010 mótmælir harðlega boðuðum niðurskurði til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem fram kemur í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011.

Lesa meira

13. október 2010

Vitið þið enn – eða hvað?

Áhugaverð lesning
Grein eftir Gísla G Auðunsson

Lesa meira

11. október 2010

Nú segjum við NEI !!

Samstöðufundur 11. Október klukkan 17.00 – 19.00 við Hótel Selfoss, ármegin.
Mætum öll!

Lesa meira

6. október 2010

Reiðarslag fyrir stofnunina

Þann 4. okt. var haldinn starfsmannafundur vegna fyrirhugaðs niðurskurðar stjórnvalda samkvæmt fjárlögum 2011. Fundurinn var vel sóttur og kynnti Magnús Skúlason forstjóri málið fyrir starfsmönnum. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verður 16% niðurskurður á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, eða um 412 milljónir króna, þar af 56,5% á sjúkrahússviði stofnunarinnar. Þetta er gríðarlegt högg á stofnunina og er starfsfólki verulega brugðið, því samkv. þessu myndu nokkuð margir af þeim 240 sem við stofnuna starfa, missa vinnuna. Niðurskurðinn jafngildir þeim fjármunum sem þarf til að starfrækja sjúkra-og fæðingadeildir, skurðstofu og læknisþjónustu sjúkrahússins á ársgrundvelli.

Lesa meira

5. október 2010

Ályktun Læknaráðs Heilbrigðisstofnunar Suðurlands vegna niðurskurðar á fjárframlögum til HSu á fjárlögum fyrir árið 2011.

Læknaráð HSu mótmælir fyrirhuguðum stórfelldum niðurskurði til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á fjárlagatillögum 2011, en boðað hefur verið að fjárframlög til sjúkrasviðs HSu muni lækka um 412 milljónir króna á næsta ári.

Rekstrarkostnaður sjúkraviðs HSu árið 2010 er ætlaður um 900 milljónir króna og er hlutfall kostnaðar af rekstri sjúkrasviðsins sjálfs vegna legudeilda, skurðstofu og fæðinga rösklega 400 milljónir króna á ársgrundvelli. Afgangur upphæðarinnar fer í rekstur ýmissa stoðdeilda t.d. myndgreiningar og rannsóknarstofu sem af sögulegum ástæðum eru flokkaðar með sjúkrasviði þó megnið af starfsemi þeirra snúi að þjónustu við heilsugæslu.

Lesa meira

5. október 2010

Áskorun frá stjórn Starfsmannafélags HSu

Stjórn Starfsmannafélags HSu mótmælir harðlega þeim niðurskurði til stofnunarinnar sem fram kemur í drögum að fjarlögum 2011.

Jafnframt skorar stjórnin á sveitarstjórnar- og alþingismenn að beita sér fyrir leiðréttingu þessara mála.

 

Lesa meira

17. september 2010

Framtíð Björgunarmiðstöðvarinnar tryggð

Þann 16. september sl. undirrituðu Sveitarfélagið Árborg og Íslandsbanki kaupsamning vegna Björgunarmiðstöðvarinnar að Árvegi 1 Selfossi. Þar munu Sjúkraflutningar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Björgunarfélag Árborgar og Brunavarnir Árnessýslu fá sitt framtíðarhúsnæði. Húsnæðið er ekki fullbúið, en nú verður lagt kapp á að ljúka þar öllum framkvæmdum, svo hægt verði að nýta það að fullu.

Málefni hússins hafa verið mikið í umræðunni undanfarið en bæði Íslandsbanki og Sveitarfélagið Árborg voru sammála um mikilvægi þess að fá niðurstöðu í málið. Sveitarfélagið mun innheimta leigutekjur vegna húsnæðisins og munu þær standa undir afborgunum vegna kaupanna og rekstri hússins .

Lesa meira

26. ágúst 2010


26. ágúst 2010

Tölvusneiðmyndatæki tekið í notkun á Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) er verið að taka í notkun tölvusneiðmyndatæki, sem var keypt fyrir gjafafé frá Líknarsjóði Harðar Þorgeirssonar og Unnar Guðmundsdóttur. Vinna við uppsetningu tækisins og fylgibúnaðar hófst sl. vor og í sumar hefur tækið verið reynslukeyrt og starfsfólk þjálfað. Tækið er af gerðinni General Electric Healthcare LightSpeed – 16 sneiða tölvusneiðmyndatæki fyrir allar almennar tölvusneiðmyndarannsóknir. Það hefur verið í notkun á LSH sl. sex ár.

Lesa meira

6. ágúst 2010

Opinn fundur um málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og kragasjúkrahúsanna

verður haldinn í Tryggvaskála mánudaginn 16. ágúst kl. 15.00

Tilefni fundarins er skýrsla um endurskipulagningu sjúkrahúsþjónustu á Suðvesturhorninu sem unnin var að tilhlutan Heilbrigðisráðneytisins sl. vetur og úttekt Guðrúnar Bryndísar Karlsdóttu verkfræðings á skýrslunni. Á fundinum mun Guðrún Bryndís gera grein fyrir úttekt sinni og Magnús Skúlason framkvæmdastjóri HSu mun greina frá horfum í rekstri og þjónustu stofnunarinnar í ljósi hugmynda um endurskipulagningu sjúkrahúsþjónustunnar. Heilbrigðisráðherra og þingmönnum Suðurkjördæmisins hefur sérstaklega verið boðið til fundarins.

Fundurinn er öllum opinn.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga

Lesa meira

29. júlí 2010

Framkvæmdir á HSu í sumar

Talsverðar framkvæmdir standa nú yfir við húsnæði og lóðir HSu. Á Hellu hafa á sl. ári staðið yfir framkvæmdir við tengibyggingu milli húsnæðis heilsguæslunnar við Suðurlandsveg 3 og verslunar- og skrifstofuhúsnæðis í næsta húsi. Nýr inngangur verður að heilsugæslunni og aðkoma að henni mun betri og þægilegri en áður. Gert er ráð fyrir, að þeim framkvæmdum ljúki í haust.

Á Selfossi er verið að ljúka við malbikun á bílastæðum austan við sjúkrahúsið og næstu daga byrja framkvæmdir við endurnýjun á þaki sjúkrahússins. Búið er að standsetja húsnæði fyrir mun stærri og betri bráðamóttöku og verður starfsemin flutt þangað á næstu dögum. Þá er búið að taka í notkun tölvusneiðmyndatæki, sem keypt var fyrir gjafafé.

Á Hvolsvelli er verið að byrja á malbikun bílastæða við heilsugæsluna, en bílastæði og gangstéttir voru illa farin og hættuleg.

Í Vík og í Laugarási eru að hefjast utanhússviðgerðir á læknisbústöðum vegna leka ofl. skemmda.

Lesa meira

23. júlí 2010

Sjúkraflutningar á Suðurlandi með óbreyttum hætti

Sjúkraflutningar á Suðurlandi verða með óbreyttum hætti þrátt fyrir boðaðar verkfallsaðgerðir Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) annast sjúkraflutninga í Árnes-, Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu. Boðað verkfall nær ekki til sjúkraflutninga sem HSu annast.

Lesa meira

22. júlí 2010

Steinunn Birna Svavarsdóttir, ráðin nýr hjúkrunardeildarstjóri

Steinunn Birna Svavarsdóttir hjúkrunarfræðingur tekur við hjúkrunardeildarstjórastöðunni á Heilsugæslustöð Selfoss frá og með 1. október n.k. í ársleyfi Guðrúnar Kormáksdóttur. Steinunn Birna lauk BSnámi í Hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2005,Diplomanámi á meistarastigi í heilsugælsuhjúkrunfrá Háskóla íslands 2007 og Mannauðsstjórnun frá Endurmenntun Háskóla íslands2010.Bjóðum við Steinunni Birnu velkomna í starf deildarstjóra og óskum Guðrúnu Kormáksdóttur velfarnaðar í nýju starfi. Lesa meira

16. júlí 2010

Guðrún Kormáksdóttir, ráðin í stöðu deildarstjóra

Guðrún Kormáksdóttir, deildarstjóri á heilsugæslu Selfoss hefur verið ráðin sem deildarstjóri hand- og lyflækningadeildar HSu. Hún var valin úr hópi þriggja umsækjanda um stöðuna. Guðrún hefur starfað við stofnunina frá árinu 1989, á hand- og lyflækningadeild, fæðingadeild og heilsugæslu. Guðrún útskrifaðist úr hjúkrunarfræði árið 1989, lauk embættisprófi í ljósmóðurfræðum árið 2002 og stundar nú meistaranám í hjúkrun við H.Í. Guðrún er boðin velkomin til nýrra starfa innan stofnunarinnar og óskað velfarnaðar í störfum sínum.

Lesa meira

29. júní 2010

16 gæðastyrkir afhentir frá Heilbrigðisráðuneyti

Heilbrigðisráðherra afhenti gæðastyrki heilbrigðisráðuneytisins í gær 24. júní, en 16 verkefni hlutu styrk. Alls bárust 54 umsóknir um styrkina, en sótt var um vegna fjölbreytta verkefna. Heilbrigðisstofnun Suðurlands var einn af styrkþegum.

Sjá heimasíðu Heilbrigðisráðuneytisins.

Lesa meira

18. júní 2010

Bæklunarlæknir tímabundið við störf á HSu

Ómar Þorsteinn Árnason, bæklunarlæknir verður með móttöku á heilsugæslustöðinni á Selfossi 12-16 júli nk. Pantið tíma í síma 4805100

Lesa meira

18. júní 2010

Gjafir í Gjafasjóð HSu á árinu 2009

Árlega berast stofnuninni gjafir í formi tækja- og peningaframlaga, bæði frá félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum.

Innan stofnunarinnar eru til gjafasjóðir á eftirtöldum stöðum: Selfossi, Laugarási, Rangárþingi, Vík, Klaustri, Hveragerði og Þorlákshöfn.
Meðferð þessara sjóða og bókfærsla er samkvæmt reglugerð ríkisendurskoðunar.
Beiðni um ráðstöfun úr gjafasjóðum fer fyrir framkvæmdastjórn, sem er ákvörðunaraðili ásamt yfirstjórnendum. Einnig leitar framkvæmdastjórn eftir faglegu áliti lækna- og hjúkrunarráðs ef um ráðstöfun er að ræða fyrir lækninga- og hjúkrunartækjum.
Esther Óskarsdóttir, skrifstofustjóri hefur umsjón með gjafasjóðum stofnunarinnar bæði varðandi samskipti við gefendur, endurgreiðslu á virðisaukaskatti gjafatækja, bókfærslu sjóða og samantekt.

 

Lesa meira

28. maí 2010

Hugsanleg líkamleg áhrif ösku frá eldgosum

Vegna umræðna undanfarið um hugsanleg líkamleg áhrif ösku frá eldgosum vill sóttvarnalæknir upplýsa um eftirfarandi.

Erlendar rannsóknir á einstaklingum sem útsettir hafa verið fyrir miklu öskufalli hafa leitt í ljós að einkum má búast við að sjá bráð einkenni frá öndunarvegum og augum í miklu öskufalli. Þessi einkenni eru einkum erting í slímhúð og augum, þyngsli fyrir brjósti og öndunarerfiðleikar. Einstaklingar með undirliggjandi langvarandi öndunarfærasjúkdóma eins og COPD eru einkum í hættu að fá bráð einkenni og því mikilvægt að þeir taki sín fyrirbyggjandi lyf samviskusamlega.

Lesa meira

14. maí 2010

Bráð áhrif gosösku á heilsufar

  • Um þessar mundir berst aska frá eldgosi í Eyjafjallajökli. Askan er samsett úr fínum ögnum og stærri ögnum. Vindátt og aðrar aðstæður ráða því hvar askan fellur.
    Gosaska getur haft áhrif á fólk en helstu einkenni eru frá:

 

Lesa meira

7. maí 2010

Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga 12. maí

Í tilefni 12.maí alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga ætlum við hjá Suðurlandsdeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ásamt hjúkrunar-og ljósmæðraráði HSu. að bjóða uppá nokkra fyrirlestra flutta af hjúkrunarfræðingum og ljósmóður. 
Fyrirlestrarnir verða haldnir í fundarsal HSu. í nýbyggingu kl: 14-16. 12.maí.

Lesa meira

6. maí 2010

Hjúkrunardeildinni Ljósheimum berst arfur

Þann 29. apríl sl. barst stofnuninni tilkynning um arf frá Þórhalli Guðnasyni til hjúkrunardeildar Ljósheima og reyndist þessi upphæð vera samtals kr. 11.249.442.-
Þórhallur var heimilismaður á Ljósheimum – fæddur 12.sept. 1933 og dáinn 30.maí 2009. Heilbrigðisstofnun Suðurlands þakkar þessa höfðinglegu gjöf.
Blessuð sé minning Þórhalls Guðnasonar.

Lesa meira

4. maí 2010

Gæðadagur HSu 29. apríl sl.

Nýlega var haldinn gæðadagur HSu og er þetta í annað sinn sem slíkt er gert. Aðal viðfangsefni dagsins voru:  •Rannsóknatíðni á HSu, •Viðmið við val á réttum sýklalyfjum, •Ávísanavenjur Sunnlenskra lækna og •Nýjungar í myndgreiningu.

 

Lesa meira

27. apríl 2010

Áhrif gosösku á heilsufar

Nú hefur dregið úr öskumyndun í gosinu í Eyjafjallajökli.
Askan er nú grófari en inniheldur meiri flúor. Óljóst er hvort flúor hefur nokkur eituráhrif á menn.
Þórarinn Gíslason, lungnalæknir fór ásamt Þóri B. Kolbeinssyni, yfirlækni heilsugæslu Rangárþings, á öskusvæðið undir Eyjafjöllum og skoðuðu þeir nokkra einstaklinga. Nokkrir einstaklinganna sem voru með undirliggjandi lungnaþembu voru með meiri einkenni en venjulega af sínum lungnasjúkdómi en enginn þeirra var með alvarleg einkenni. Það er því ljóst að bráð eituráhrif af ösku eru óveruleg ef einhver.
Lesa meira

21. apríl 2010

Upplýsingar frá Heilsugæslu Rangárþings vegna eldsumbrota í Eyjafjallajökli

Þjónusta læknis og hjúkrunarfræðings er veitt við heilsugæslustöðvarnar á Hellu (sími 4805320) og Hvolsvelli (4805330) á dagvinnutíma og utan þess tíma sinnir vakthafandi læknir bráðatilvikum, sími 4805111

Búið er að opna sérstakan þjónustusíma heilsugæslunnar í Rangárþingi, 8965080, vegna líkamlegrar og andlegrar vanliðan tengd eldgosi. Síminn er opinn milli 8-16 en framvísað á síma RKÍ 1717 utan þess tíma. Í þessu númeri er tekið við beiðnum um þjónustu.

Í íbúamiðstöð að samkomuhúsinu Hvoli Hvolsvelli er hægt að setjast niður í spjall og kaffi. Þar liggja frammi upplýsingar og bæklingar vegna eldgoss og afleiðinga þess og þar er einnig skráðar niður beiðnir um frekari aðstoð.

Að Heimalandi V-Eyjafjöllum er opin íbúamiðstöð kringum hádegið og fram eftir degi. Þar er einnig veitt tímabundið ákveðin þjónusta heilsugæslu og sálfræðiþjónusta en upplýsingar um nánari viðverutíma eru veittar á staðnum og Heilsugæslu Rangárþings.

Lesa meira

16. apríl 2010

Starfsmenn kvaddir

Sigríður Bergsteinsdóttir, geislafræðingur og Unnur Zophoníasdóttir, sjúkraliði létu nýlega af störfum við stofnunina. Unnur eftir 26 ára starf við stofnunina en hún varð 70 ára 20. mars sl. Sigríður, geislafræðingur, eftir 23 ára starf við stofnunina en hún varð 69 ára 12. apríl sl. 
Í kveðjuhófi sem haldið var þeim til heiðurs fengu þær afhent falleg armbandsúr sem þakklætisvott fyrir frábær störf og samskipti við stofnunina öll þessi ár.

Lesa meira

8. apríl 2010

Heilsugæslan á Selfossi flytur í nýtt húsnæði

Flutningur heilsugæslunnar á Selfossi í nýtt og glæsilegt húsnæði markar tímamót í starfsemi stöðvarinnar. Áralöng bið eftir stærra húsnæði á jarðhæð nýbyggingarinnar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands er nú loks á enda og er starfsfólk þakklátt og ánægt með áfangann. Með auknu rými og bættri aðstöðu skapast ný tækifæri í þjónustu við íbúa á Suðurlandi og stefnum við að því að efla hana með ýmsu móti.

Lesa meira

8. apríl 2010

Glæsileg aðstaða heilsugæslu og endurhæfingar

Síðari hluti nýrrar viðbyggingar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) á Selfossi verður formlega tekinn í notkun í dag. Að lokinni vígsluathöfn fimmtudaginn 8. apríl verður opið hús fyrir almenning til að skoða nýbygginguna frá kl. 16:30 – 18:00.

Með tilkomu nýju byggingarinnar fær heilsugæslan nýtt og mun rúmbetra húsnæði á 1. hæð, endurhæfingaraðstaða verður stórbætt, auk þess sem nýr og stórglæsilegur aðalinngangur og anddyri voru tekin í notkun í ársbyrjun 2008. Þá fjölgaði hjúkrunarrýmum fyrir aldraða úr 26 í 40 á Selfossi, eða um tæp 60%. Unnið er að undirbúningi endurbóta á eldri byggingunni þar sem bætt verður aðstaða fyrir sjúkrahús, sérfræðimóttökur og skrifstofur. Stefnt er að því að hefja nauðsynlegar breytingar á eldri byggingunni næsta haust. 

Lesa meira

30. mars 2010

Uppsagnir sjúkraflutningamanna dregnar til baka

HSu hefur á undanförnum mánuðum unnið að endurskipulagningu og hagræðingu í starfssemi stofnunarinnar. Ein af þeim aðgerðum sem fyrirhugað var að ráðast í var að fækka mönnuðum sjúkrabílum á nóttunni úr 2 í 1. Í þeirri breytingu fólst að segja varð upp 4 sjúkraflutningamönnum og áttu þessar breytingar að taka gildi 1. apríl næstkomandi.

Lesa meira

23. mars 2010

Umsögn Læknaráðs HSu um skýrslu Heilbrigðisráðuneytisins (HR)

Stjórn Læknaráðs HSu hefur kynnt sér ofangreinda skýrslu Heilbrigðisráðuneytisins (frá í nóv/des.2009). Vissulega er um þarfa skýrslu að ræða en við nánari athugun á innihaldi skýrslunnar koma í ljós fjölmörg atriði sem sýna að því miður hefur efni skýrslunnar ekki verið nægilega vel unnið og ekki eru borin saman sambærileg atriði þegar dregnar eru ályktanir. Þetta er mjög miður því lengi hefur verið beðið eftir vandaðri úttekt sem tekur tillit til hvaða heilbrigðisþjónustu er verið að veita á Íslandi og hvernig hægt er að breyta núverandi þjónustu í samræmi við kröfur um nærþjónustu, bættar samgöngur, breytta uppbyggingu og samruna svæða, nútíma faglegar kröfur, væntingar samfélagsins og ekki síst kostnaðarlega hagkvæmni.

 

Lesa meira

23. mars 2010

Nýbygging HSu á Selfossi tilbúin

Framkvæmdum er að ljúka við viðbyggingu HSu á Selfossi. Verktakar eru að ljúka sínum störfum í kjallara í lok vikunnar. Verið er að koma fyrir búnaði á nýju heilsugsæslustöðina á 1. hæð. Í næstu viku fer fram hreingerning í kjallaranum og að því loknu verður búnaði komið fyrir í hinni nýju og glæsilegum aðstöðu fyrir endurhæfingu og ýmsa stoðþjónustu. Stefnt er að því að bjóða starfsfólki að skoða hið nýja húsnæði í lok þessarar viku. Fimmtudaginn 8. apríl verður hið nýja húsnæði síðan formlega tekið í notkun að viðstöddum heilbrigðisráðherra. Gert er ráð fyrir því að þann dag kl. 16:30 – 18 verði hið nýja húsnæði opið fyrir almenning til skoðunar.

 

Lesa meira

16. mars 2010

Kvenfélag Selfoss gefur HSu tæki og búnað

Kvenfélag Selfoss afhenti nýlega stjórnendum HSu veglega gjöf. Um er að ræða peninga sem ætluð er  í kaup á sónartæki að upphæð kr. 250.000, 2 loftdýnur fyrir hand- og lyflæknisdeild sjúkrahússins að verðmæti kr. 423.000 og 2 kort LP12 fyrir hjartasírita sjúkrabifreiðar að verðmæti kr. 200.000.-.

Lesa meira

16. mars 2010

Fossheimar fá gjöf frá Kvenfélagi Eyrarbakka

Nýlega gaf Kvenfélag Eyrarbakka (KE) hjúkrunardeildinni Fossheimum lyfjadælu að andvirði kr. 180.000

Stjórn KE afhenti gjöfina við hátíðlega athöfn áFossheimum og fulltrúar HSu þær Esther Óskarsdóttir, skrifstofustjóri, Ásta Sigríður Sigurðardóttir, deildarstjóri og Sigurbjörg Björgvinsdóttir, aðstoðardeildarstjóri veittu henni viðtöku og afhentu formanni KE, Kristínu Eiríksdóttur þakkar-og viðurkenningarskjal frá stofnuninni. Fulltrúar KE auk formanns voru þær Sigríður Óskarsdóttir, gjaldkeri og meðstjórnendurnir Eygerður Þórisdóttir og Erla Sigurjónsdóttir.

Þess má geta að Kvenfélag Eyrarbakka er 122 ára gamalt, stofnað árið 1888 og 70 konur eru í félaginu.

Gjöf sem þessi kemur sér afskaplega vel fyrir starfsemi deildarinnar og samtímis eflir hún gæði þjónustunnar við sjúklinga og var kvenfélagskonum þökkuð gjöfin og fyrir þann hlýhug sem fylgir.

Lesa meira

10. mars 2010

Samstarfssamningur heilbrigðisstofnana á Suður-og Suðausturlandi

Í dag var undirritaður á Höfn í Hornafirði þjónustusamningur milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands (HSSA) sem felur í sér samstarf um læknisþjónustu, símsvörun og fleiri þætti. Samkvæmt samningnum mun barnalæknir frá HSu starfa á HSSA tvo daga í mánuði. Ennfremur verður HSSA aðili að samningi um símaþjónustu á nóttunni. Frá kl.24:00 til 08:00 verður sameiginleg símsvörun, þar sem hjúkrunarfræðingar vísa símanum áfram til vakthafandi læknis ef þörf er á læknisaðstoð. Allar blóðrannsóknir, sem ekki eru gerðar á Höfn, en hægt er að gera á Rannsóknadeild HSu á Selfossi verða sendar þangað.

Lesa meira

4. mars 2010

Ályktun Starfsmannafélags HSu

Aðalfundur Starfsmannafélags Heilbrigðisstofnunar Suðurlands haldinn á Selfossi þriðjudaginn 23. febrúar s.l. harmar þann niðurskurð sem verið hefur og væntanlegur er á fjárveitingum til stofnunarinnar.

Fundurinn lýsir yfir áhyggjum sínum á að stofnunin geti ekki staðið undir starfsemi sinni og komi þá til uppsagna starfsfólks.

Lesa meira

2. mars 2010

Hafa áhyggjur af niðurskurði og skertri þjónustu HSu

Hjúkrunar- og ljósmæðraráð HSu hefur sent þingmönnum Suðurkjördæmis svohljóðandi bréf:

Efni: Áhyggjur hjúkrunar- og ljósmæðraráðs HSu á niðurskurði og skertri þjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

Að undanförnu hefur mikil umræða farið fram í fjölmiðlum varðandi niðurskurð í heilbrigðisgeiranum og þá skýrslu sem kom út í árslok 2009 “Frá orði til athafna” um greiningu á kostnaði og ábata af tilfærsu verkefna milli sjúkrahúsanna á suðvesturhorni landsins.

Háværar raddir hafa verið um niðurskurð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en hljótt hefur verið um þann niðurskurð sem nú þegar hefur orðið á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, en þar hafa yfirmenn unnið ásamt starfsfólki að því að finna leiðir svo hægt væri að komast hjá því að segja upp fleirra starfsfólki og loka deildum. Ljóst var strax í haust að til að ná fram þessum mikla sparnaði varð að hrinda strax í framkvæmd ákvörðun fyrrum heilbrigðisráðherra og hluta þeirra tillagna sem komu fram í skýrslunni “Frá orði til athafna”.

 

Lesa meira

4. febrúar 2010

Bólusetning gegn svínainflúensu á þriðjudögum

Framvegis verður bólusett gegn svínainflúensu alla þriðjudaga. Fólki er vinsamlegast bent á að panta sér tíma í  síma 480 5100 Lesa meira

2. febrúar 2010

HEIMSFARALDUR INFLÚENSU

 
Faraldur H1N1 Inflúensunnar er núna í rénum. Sóttvarnalæknir hefur sagt frá því ítrekað að um hlé er að ræða og þessi flensa muni stinga sér niður aftur. Til að koma í veg fyrir að flensan nái sér aftur á strik er aðeins eitt gott ráð og það er að bólusetja sig. Þá hefur sóttvarnarlænkir sagt að flensan muni ná öllum, þ.e. þeim sem ekki hafa bólusett sig.
Lesa meira

26. janúar 2010

Endurskipulagning sjúkrahúsþjónustu ?

Nýútkomin „greining á kostnaði og ábata af tilfærslu verkefna“ milli sjúkrahúsanna á suðvesturhorni landsins hefur verið nokkuð til umfjöllunar að undanförnu. Við kynningu heilbrigðisráðuneytisnins á greiningunni skömmu fyrir jól lagði heilbrigðisráðherra áherslu á, að greiningin væri fyrst og fremst vinnugagn, sem fara þyrfti betur yfir, taka tillit til athugasemda ofl. áður en ráðist yrði í umfangsmiklar breytingar, sem byggðust á niðurstöðum greiningarinnar.

Helstu niðurstöðum þessa vinnugagns hefur verið slegið upp í fjölmiðlum og hagsmunaaðilar nýtt sér þær til að hvetja til fljótfærnislegra breytinga á sjúkrahúsþjónustunni.

 

Lesa meira

26. janúar 2010

Jón Ingi sýnir á HSu

Jón Ingi Sigurmundsson er með myndlistarsýningu í anddyri HSu á Selfossi. Jón Ingi er fæddur og uppalinn á Eyrarbakka og hefur starfað sem kennari og kórstjóri á Selfossi í rúm 50 ár. Hann hefur haldið 35 einkasýningar, oftast á Suðurlandi en einnig annars staðar á landinu og í Danmörku. Myndirnar sem nú eru til sýnir eru frá síðustu árum og eru þær til sölu. Nánari upplýsingar má sjá á www.joningi.com Lesa meira

26. janúar 2010

Sunnlendingar ársins á HSu

Hlustendur Suðurlands FM á Selfossi völdu Sunnlending ársins 2009. Fyrir valinu urðu tveir sjúkraflutningamenn hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þau Hrönn Arnardóttir og Stefán Pétursson fyrir frækilegt afrek sitt í sumarbústað við Flúðir í nóvember þegar þau komu að björgun manns sem fallið hafði niður nokkra metra úr bústaðnum og lent á steypustyrktarjárnum, sem fóru í gegnum hann á nokkrum stöðum.

Þau fengu í viðurkenningarskyni gjafakort í Krónunni á Selfossi og blómvendi frá Sjafnarblómum. Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri, Sigrún Jónsdóttir, verslunarstjóri Krónunnar, Hrönn, Stefán og Einar Björnsson, útvarpstjóri Suðurlands FM 963.
 
Frétt fengin úr Dagskránni
Mynd: Magnús Hlynur
Lesa meira

5. janúar 2010

Nýársbarnið á HSu

Fyrsta barn ársins sem fæddist á fæðingadeild HSu fæddist þann 2. janúar.
Það var stúlka sem vóg 4795 gr og var 54 cm að lengd.
Foreldrar eru Mekkin Einarsdóttir og Gísli Magnússon, Breiðumörk 26 í Hveragerði.
Stúlkan fékk rauða húfu að gjöf frá kvenfélagskonum í SSK en Kvenfélagasamband Íslands hefur ákveðið í tilefni af 80 ára afmæli sambandsins að gefa öllum börnum sem fæðast á árinu 2010 húfu sem kvenfélagskonur prjóna úr íslensku kambgarni. Lesa meira

5. janúar 2010

Aukið samstarf fæðingadeilda HSu og Fæðingadeildar Landspítalans

Í byrjun árs 2009 sendi Heilbrigðisráðuneytið frá sér tilkynningu um að vöktum fæðingar og svæfingarlækna skyldi hætt á HSu, HSS og SHA. Síðan þá hefur verið unnið að því að reyna að tryggja starfsemina og öryggi íbúa Suðurlands og verðandi mæðra með því að efla samstarfið við LSH . Nú hefur verið undirritað samkomulag þess eðlis. Um er að ræða náið samstarf og verkferla sem eiga að auka á öryggið. Þungaðar konur í áhættuhóp fá ekki að fæða á Selfossi og verður vísað á LSH.

Lesa meira

22. desember 2009

Jólakveðja til Sunnlendinga

Starfsfólk HSu sendir öllum Sunnlendingum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Lesa meira

22. desember 2009

Heilbrigðisráðherra fundaði með starfsmönnum HSu

Heilbrigðisráðherra, Álfheiður Ingadóttir, kynnti hugmyndir um endurskipulagningu sjúkrahúsþjónustu á Suðvesturhorninu á starfsmannafundi HSu á Selfossi 16. desember sl. Verkið var unnið af hópi manna á vegum heilbrigðisráðuneytisins. Margt í niðurstöðum vinnuhópsins bendir til talsverðrar fjárhagslegrar hagkvæmni með tilflutningi verkefna milli sjúkrahúsanna á Suðvesturhorninu. Starfshópurinn gerir engar tillögur í sjálfu sér enda er skýrslan aðeins greining á kostnaði og ábata sem ná mætti með tilfærslu verkefna miðað við tilteknar gefnar forsendur. Ráðherra leggur áherslu á að horfa þurfi til fleiri þátta en þess fjárhagslega, það þurfi að horfa til sjúklinganna, þæginda og velferðar þeirra.  Skýrslu vinnuhópsins má nálgast á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Lesa meira

18. desember 2009

ÁFRAM ÖFLUGIR SJÚKRAFLUTNINGAR Á SUÐURLANDI

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) hefur séð um sjúkraflutninga í Árnessýslu á undanförnum árum, tók við þeim af Lögreglunni í Árnessýslu sem hafði umsjón með þeim áður. Strax þegar HSu tók við sjúkraflutningunum voru ráðnir til starfa 12 sjúkraflutningamenn og einn í fasta afleysingu. Þá var um að ræða verulega aukningu, því lögreglan hafði aðeins haft örfá stöðugildi til þessara verka.

Vaskur hópur sjúkraflutningamanna tók þá til starfa og er augljóst, að með þessari aukningu varð úr mjög öflugt lið sjúkraflutningamanna sem starfa inni á HSu sem heilbrigðisstarfsmenn. Þeirra þáttur í heilbrigðisþjónustu við íbúa á Suðurlandi er því mjög mikilvægur og falla þeir vel inn í starfandi teymi heilbrigðisstarfsmanna á Suðurlandi

 

Lesa meira

17. desember 2009

Ekkert bóluefni til á HSu

Allt bóluefnið sem kom á HSu er nú búið og er ekki væntanleg ný sending fyrr en í janúar. Fólki er bent á að hægt er að hringja og panta tíma 6. janúar 2010.

Lesa meira

15. desember 2009

Sjúkraflutningar í Árnessýslu

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu daga varðandi breytingar á sjúkraflutningum í Árnessýslu telur Heilbrigðisstofnun Suðurlands nauðsynlegt að eftirfarandi upplýsingar komi fram.

Sú næturvakt, sem til stendur að breyta í bakvakt frá og með 1. mars nk., var sett á 1. júní 2008 og hefur því eingöngu verið til staðar í 1 ½ ár. Fram til þess tíma hafði verið mikil fjölgun sjúkraflutninga í nokkur ár og var því talið nauðsynlegt að setja þessa vakt á. Á fyrstu átta mánuðum þessa árs hefur hins vegar orðið mikil fækkun sjúkraflutninga miðað við sömu mánuði á árinu 2008. Um nætur hefur sjúkraflutningum fækkað um rúmlega 20 % og hafa því verið færri en sömu mánuði á árunum 2007 og 2008. Þessi breyting gaf því fullt tilefni til að færa skipulag sjúkraflutninga í sama horf og var fyrir 1. júní 2008, en þá var þessi þjónusta talin vera til fyrirmyndar og með því besta sem gerðist á landinu.

 

Lesa meira

10. desember 2009

Bólusetning gegn svínainflúensu hefst að nýju !

Bólusetning gegn influensu A (N1H1) hefst aftur 16. desember. Tekið er á móti pöntunum frá þriðjudeginum 15. desember. Næst er svo von á bóluefni 6. janúar og verður það auglýst síðar.
Tekið er á móti pöntunum á öllum okkar heilsugæslustöðvum.
Lesa meira

10. desember 2009

Fæðing, eðlilegasti hlutur í heimi !

Nú um áramótin mun þjónusta fæðingadeildar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) breytast . Vaktþjónusta fæðingalæknis og svæfingalæknis mun ekki lengur vera fyrir hendi og því munu áhættufæðingar færast yfir á Landspítala Háskólasjúkrahús (LSH). Því munu eingöngu eðlilegar fæðingar fara fram á fæðingadeild HSu. Um 80 % allra fæðinga eru eðlilegar fæðingar þannig að mikil meirihluti fæðandi kvenna mun áfram eiga þessa kost að fæða barnið sitt í notalegu og faglegu umhverfi hjá ljósmæðrum á Suðurlandi.

Lesa meira

8. desember 2009

Nýr hitaskápur gefinn á rannsóknastofu HSu

Kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps hefur fært HSu rannsóknastofu nýjan hitaskáp að gjöf, verðmæti um 120 þúsund krónur. Hitaskápur þessi er notaður við bakteríugreiningar. Fulltrúar gefenda, þær Margrét Jónsdóttir, formaður Kvenfélags Gaulverjabæjarhrepps og Guðbjörg Guðmundsdóttir afhentu gjöfina við hátíðlega athöfn. Fulltrúar HSu þau Magnús Skúlason, forstjóri og Esther Óskarsdóttir, skrifstofustjóri veittu gjöfinni viðtöku og afhentu Kolbrúnu Káradóttur, yfirlífeindafræðingi og Stefaníu Geirsdóttir, lífeindafræðingi skápinn til afnota og sagði Kolbrún, um leið og hún veitti gjöfinni viðtöku, að skápurinn kæmi að góðum notum og væri kærkomin gjöf. Lesa meira

8. desember 2009

Gjafir til kaupa á nýju sónartæki

Samband Sunnlenskra kvenna, Kiwanisklúbburinn Gullfoss, Lionsklúbburinn Emblurnar og Zonta klúbbur Selfoss afhentu nýverið heilbrigðisstofnunni 2,4 milljónir króna til kaupa á nýju sónartæki. Um er að ræða samstarfsverkefni kvenfélaga innan SSK og áðurnefndra 3ja klúbba. Stjónendur HSu, þau Magnús Skúlason, forstjóri og Esther Óskarsdóttir, skrifstofustjóri veittu gjöfinni viðtöku við athöfn á HSu. Við sama tækifæri voru einnig afhentar fleiri gjafir eins og sjá má í fréttum hér á vefnum. Fulltrúar gefenda við þessa athöfn voru Sigríður Jóna Sigurfinnsdóttir, Magðalena Jónsdóttir og Rosemarie Þorleifsdóttir. Lesa meira

8. desember 2009

Krabbameinsfélag Árnessýslu gefur HSu

Nýlega afhenti Krabbameinsfélag Árnessýslu heilbrigðisstofnuninni peningagjöf að upphæð kr. 700.000 sem framlag félagsmanna vegna kaupa á nýju sónartæki fyrir stofnunina. Forstjóri HSu Magnús Skúlason og Esther Óskarsdóttir, skrifstofustjóri veittu gjöfinni viðtöku en fulltrúar félagsins voru þær Rannveig Árnadóttir og Ingibjörg Jóhannesdóttir

Lesa meira

28. nóvember 2009

Tafir á bólusetningu vegna svínainflúensunnar

Vegna tafa á afhendingu bóluefnis mun ekki verða hægt að taka á móti tímapöntunum í bólusetningu fyrr en 15.desember n.k.
Ekkert bóluefnin er til sem stendur og ekki von á næsta skammti fyrr en þá og magn óvíst.

Lesa meira

24. nóvember 2009

Mikið álag á starfsfólk og símkerfi HSu

Gífurlegt álag er á símkerfi og starfsfólk heilsugæslustöðvanna um þessar mundir vegna bókunar í svínaflensubólusetningu (H1N1). Á tímbilinu kl. 8 – 10 í gærmorgun fengu t.d. um 500 manns tíma í bólusetningu á Selfossi og 100 í Þorlákshöfn svo álag er mikið á öllum heilsugæslustöðvum HSu. Þá var álíka fjölda bent á að hafa samband í næstu viku (30/11.) en ekki er til meira bóluefni.

Aukafólk var kallað út til þess að aðstoða móttökuritara en allt kom fyrir ekki og þegar mest var voru upp undir 30 manns á bið í símkerfinu. Margir hafa því þurft að bíða dágóða stund áður en þeir náðu sambandi. Einhverjir hafa sjálfsagt gefist upp á biðinni. Símstöðin stóðst þó þetta mikla álag. Margir komu á heilsugæslustöðvarnar og eðlilega þurfti að sinna þeim líka.

Það eru því vinsamleg tilmæli til íbúa á svæðinu að þeir sýni þolinmæði og skilning meðan þetta ástand varir. Allir starfsmenn HSu reyna að gera sitt besta .

Lesa meira

24. nóvember 2009

Umboð vegna bólusetningar barna og unglinga < 18 ára

Óskir hafa komið frá heilsugæslustöðvum um að foreldrar/forráðamenn útfylli eyðublað fyrir unglinga <18 ára sem vilja senda börn sín ein í bólusetningu gegn svínainflúensu.

Það er alls ekki svo að unglingar þurfi að mæta með slík undirrituð blöð en meðfylgjandi eru staðlað eyðublað sem nota má í slíkum tilvikum. Vakin er athygli á því að þetta eyðublað má nálgast hér og á http://www.influensa.is/.

Lesa meira

19. nóvember 2009

Soroptimistar á Suðurlandi gefa börnum gjafir

Fulltrúar Soroptimista á Suðurlandi komu færandi hendi á heilsugæslustöðina á Selfossi.
Um var að ræða verðlaun fyrir börn sem koma í m.a. aðgerð, blóðprufur eða á slysastofu.  Þær komu með sérstaka kassa fyrir verðlaunin og ætla að sjá um að alltaf sé nóg af verðlaunum til fyrir börnin. Lesa meira

17. nóvember 2009

Fundur í hjúkrunar- og ljósmæðraráði HSu

Fundur var haldinn í hjúkrunar- og ljósmæðraráði stofnunarinnar þann 12. nóv. sl..
Anna Guðríður Gunnarsdóttir, formaður flutti stutt ávarp og fór yfir starf ráðsins á árinu en hlutverk þess er m.a. að halda slíka fundi. Anna María Snorradóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar sagði frá stöðu mála á HSu en eins og kunnugt er þarf stofnunin að spara umtalsverðar fjárhæðir á þessu og næsta ári. Í lokin kynnti Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, deildarstjóri á hand- og lyflæknissviði, meistaraverkefni sitt sem hún vinnur nú að í framhaldsnámi  við HÍ. Lesa meira

17. nóvember 2009

Rannsóknadagur á HSu

Þann 12. nóv. sl. var haldinn á HSu svokallaður rannsóknadagur og er þetta í annað skipti á árinu. Læknar og lífeindafræðingar stofnunarinnar áttu veg og vanda að öllum undirbúningi.

Fengnir voru fyrirlesarar frá Landspítala (LSH) og Landlæknisembættinu, þeir Karl Kristinsson, yfirlæknir á sýkladeild LSH og Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknisembættisins. Þá var Kolbrún Káradóttir, yfirlífeindafræðingur HSu með erindi þar sem hún kynnti niðurstöður rannsókna síðustu mánaða á HSu.

Lesa meira

12. nóvember 2009

Annríki á heilsugæslustöðvum

Mikið annríki hefur verið á heilsugæslustöðvum HSu undanfarnar vikur. Bólusettir hafa verið 3200 Sunnlendingar. Fyrstir til að fá bólusetniningu gegn svínainflúensu voru starfsmenn heilbrigðisstofnana. Einnig voru í forgangi ófrískar konur og sjúklingar með undirliggjandi sjúkdóma. Þeir sem tilheyra þeim hópum og ekki hafa fengið bólusetningu eru hvattir til að panta sér tíma sem fyrst.

Sóttvarnalæknir Suðurlands, Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga á HSu hvetur fólk til þess að láta bólusetja sig, þannig er hægt að hefta útbreiðslu sýkingarinnar.

Heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt að ekki þurfi að greiða fyrir bólusetninguna.

Frá og með 16. nóvember getur almenningur byrjað að pantað tíma. Bóluefnið kemur eftir fyrirfram ákveðnu skipulagi og efir því er bókað í tíma. Athugið að það er nauðsynlegt er að panta tíma.

Lesa meira

12. nóvember 2009

Geðlæknir ráðinn til starfa á HSu

Kjartan J. Kjartansson, geðlæknir hefur verið ráðinn í stöðu geðlæknis á HSu og mun hann sinna geðþjónustu við fangelsið á Litla Hrauni. Kjartan hlaut sérfræðiviðurkenningu í geðlækningum árið 1991 og hefur starfað sem slíkur á Landspítalanum frá þeim tíma og hefur hann m.a. reynslu af störfum með áfallahjálparteymi. Kjartan hefur þegar hafið störf á HSu og er hann boðinn velkominn til starfa. Enginn geðlæknir hefur verið við stofnunina frá því sl. vor.

Lesa meira

12. nóvember 2009

Ekkert gjald fyrir bólusetningu gegn svínainflúensu

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að bólusetning gegn inflúensu A(H1N1) (svínainflúensa) verði öllum að kostnaðarlausu. Einstaklingar þurfa hvorki að greiða fyrir komu á heilsugæslu eða bóluefnið.
Lesa meira

5. nóvember 2009

Hvatning til íbúa með undirliggjandi sjúkdóma um bólusetningu v. inflúensu.

Allir þeir sem eru með undirliggjandi sjúkdóma eru hvattir til að skrá sig í inflúensubólusetningu á sinni heilsugæslustöð. Vísað er til fyrri auglýsinga um það hverjir það eru þ.e. einstaklingar á öllum aldri með eftirtalda sjúkdóma: 

alvarlega hjartasjúkdóma
alvarlega lungnasjúkdóma þ.á.m astma
sykursýki
alvarlega nýrnabilun
alvarlega lifrarsjúkdóma
tauga- og vöðvasjúkdóma
ónæmisbilun

Einnig eru þungaðar konur og þeir sem þjást af offitu (meira en 40 BMI) hvattir til að mæta í bólulsetningu.
Lesa meira

20. október 2009

Inflúensubólusetning á HSu

Inflúensubólusetning stendur nú yfir á heilsugæslustöðvum. Opin móttaka er kl.8-9 á morgnana og kl.13-14 e.h., í dag þriðjudag 20.okt, á morgun miðvikudag 21. okt. og fimmtudag 22. október. Eftir það er hægt að fá bólusetningu hjá heimilislækni og/eða hjúkrunarfræðingi.

Ath. að þetta er bólusetning við hinni venjulegu árstíðabundnu inflúensu en ekki við svínainflúensu.

Lesa meira

15. október 2009

Miklar annir á heilsugæslustöðvum

Miklar annir eru nú á heilsugæslustöðvum vegna inflúensunnar.
Það eru því vinsamleg tilmæli til íbúa á svæðinu að fresta komum á heilsugæsluna ef unnt er.

Rétt er þó að benda á að heilsugæslustöðvarnar eru opnar og að tekið verður á móti öllum sem þangað leita eins og ávallt er gert.

Lesa meira

2. október 2009

Aðstandendadagur á hjúkrunardeildum HSu

Sunnudaginn 11. okt. 2009 verður aðstandendadagur á Fossheimum og á Ljósheimum.
Á dagskránni verður skemmtiefni með hinni einu og sönnu Hjördísi Geirsdóttur frá Byggðarhorni. Að sjálfsögðu verður einnig boðið upp á kaffi og gott meðlæti. Aðstandendadagarnir eru samstarfsverkefni starfsfólks og Vinafélags Ljósheima og Fossheima. Þessir dagar hafa verið fastur liður í starfsemi vinafélagsins.

Komið og eigið notalega stund með aðstandendum, vinum, starfsmönnum og stjórnarmönnum í Vinafélaginu.
Lesa meira

29. september 2009

Meltingarlæknir á HSu

Á HSu á Selfossi starfar Sigurjón Vilbergsson, sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkdómum. Hann framkvæmir bæði maga- og ristilspeglanir á sjúkrahúsinu og er hann einnig með móttöku sjúklinga einu sinni í viku. Jafnframt þessu starfar hann á lyflækningadeild sjúkrahússins.

 

Lesa meira

4. september 2009

Hjartalæknir á HSu

Á HSu starfar Ágúst Örn Sverrisson, sérfræðingur í hjartasjúkdómum en hann er jafnframt yfirlæknir sjúkrasviðs stofnunarinnar. Hann sinnir göngudeild lyflækninga og þar eru gerðar ýmsar rannsóknir á sjúklingum sem grunaðir eru um hjartasjúkdóma eða hafa verið greindir með slíkt.  Má þar nefna áreynslupróf, sólarhrings blóðþrýstingsmælingu, hjartarafritun (Holter) og hjartaómskoðun.

 

Lesa meira

2. september 2009

Bæklunarlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) og Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa gert samkomulag um, að HSu veiti alhliða göngudeildarþjónustu í bæklunarskurðlækningum. Um er að ræða viðtöl við bæklunarskurðlækna og allar almennar aðgerðir svo sem liðspeglanir, sem ekki krefst innlagnar á sjúkrahús.

Lesa meira

28. ágúst 2009

Bólusetning við inflúensu H1N1

Sóttvarnarlæknar og lögreglustjórar vinna nú að skipulagningu á bólusetningu vegna H1N1 inflúensunnar sem núna gengur um landið.

Búast má við fyrstu skömmtunum í lok september og þá hefst bólusetningin. Vanda þarf til verks enda jafn viðamikil bólusetning ekki farið fram áður á jafn skömmum tíma.

Á næstu dögum verður gefin út áætlun um það hverjir verða bólusettir. Nýja bóluefnið er keimlíkt bóluefninu við fuglaflensunni og því töluvert notað án þess að nokkur merki um alvarlegar aukaverkanir hafi komið fram. Tugir þúsunda hafa nú þegar verið sprautaðir og gengið vel. Góð vörn myndast af bóluefninu. BÓLUEFNIÐ ER ÞVÍ ÖRUGGT OG ÁRANGURSR’IKT.
Stjórnendur á HSu eru nú að hefja undirbúning á hverjum stað fyrir sig og þá kemur skýrar í ljós hvernig framkvæmdin verður. Aðeins verður bólusett á heilsugæslustöðvum til að hámarka nýtingu efnisins.

Lesa meira

27. ágúst 2009

Símaþjónusta vegna bráðra veikinda

Við bráð, alvarleg veikindi skal hringja í 112.

Við önnur veikindi vegna inflúensu skal hringja í heilsugæslustöðina á sínu heimasvæði á dagvinnutíma. Eftir dagvinnutíma frá 16:00 til 08:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar er hægt að hringja ýmist í vaktþjónustu viðkomandi landshluta eða Læknavaktina í síma 1770. Læknavaktin er með vaktþjónustu á höfuðborgarsvæðinu en sinnir einnig fyrirspurnum sem berast frá landsbyggðinni.

Hjálparsími Rauða Krossins, 1717, veitir almennar upplýsingar um inflúensu A (H1N1)v, en sóttvarnalæknir hefur annast fræðslu fyrir starfsmenn og sjálfboðaliða Hjálparsímans. Hjálparsíminn er gjaldfrjáls og opinn allan sólarhringinn. Markmið með símsvörun Hjálparsímans er að draga úr almennum ótta og minnka álag á heilbrigðisþjónustuna. Hjálparsíminn svarar ekki fyrirspurnum er varða veikindi þeirra sem hringja eða aðstandenda þeirra, öllum slíkum spurningum verður beint á heilsugæslu viðkomandi svæðis eða Læknavaktina.

Lesa meira

20. ágúst 2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 19. ágúst 2009

Alls hafa greinst 142 tilfelli með staðfesta inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala frá því í maí 2009. Þar af eru 79 karlar og 63 konur. Ekki er vitað um alvarleg veikindi af völdum inflúensu A(H1N1)v veirunnar hérlendis.

Fáir þurfa meðferð. Hlutfallslega færri eru staðfestir með sýkinguna en fyrr en skýrist það að mestu af því að sýni eru ekki lengur tekin úr öllum sem hafa inflúensulík einkenni. Einhver dæmi eru um lungnabólgu í kjölfar sýkingarinnar.

Lesa meira

11. ágúst 2009

Nýr yfirlæknir á heilsugæslustöðina á Selfossi

Egill Rafn Sigurgeirsson mun að eigin ósk hætta sem yfirlæknir við heilsugæsluna á Selfossi þann 1. september nk.  Egill hefur verið yfirlæknir við heilsugæslustöðina á Selfossi frá 2001. Hann mun áfram starfa sem heimilislæknir og sinna sínum sjúklingum áfram. Framkvæmdastjórn þakkar Agli þáttöku í stjórnun stofnunarinnar þessi ár.

Við starfi hans tekur Arnar Þór Guðmundsson sérfræðingur í heimilislækningum. Arnar hefur starfað við HSu sem sérfræðingur í heimilislækningum frá 2005. Hann útskrifaðist frá Læknadeild Háskóla Íslands 1996 og var í framhaldsnámi í Svíþjóð  2001-2004. Arnar situr í gæðaráði HSu, greiningarteymi HSu og hefur verið varaformaður Læknaráðs HSu frá 2007.

Framkvæmdastjórn óskar Arnari velfarnaðar í störfum sínum. Hann mun áfram sinna sínum sjúklingum sem fyrr.

 

Lesa meira

7. ágúst 2009

Inflúensutilfellin orðin 72

Núna í dag hafa greinst 72 einstaklingar með H1N1 inflúensuna.  Enginn er alvarlega veikur og sumir hafa fengið lyfjameðferð en aðrir ekki.

Töluverðar aukaverkanir hafa komið fram við notkun lyfjanna og því mælt með að eingöngu þeir sem veikastir eru taki lyfið.

Einnig hefur komið í ljós að ófrískar konur eru eitthvað viðkvæmari en þær eru ekki taldar vera í meiri áhættu en aðrir  en þó mælt með meðferð með lyfjum ef þær veikjast. Sjá a.ö.l. vef landlæknis: landlaeknir.is

Lesa meira

28. júlí 2009

Inflúensutilfellum fjölgar

Nú hafa rúmlega 30 einstaklingar verið staðfestir með inflúensu A H1N1v hér landi. Enginn hefur verið alvarlega veikur og fáir fengið meðferð með veirulyfjum. Búast má við fleiri tilfellum á næstunni. 
Viðbúnaðarstig er óbreytt hér á landi þ.e. ekki er talin þörf á lokunum eða samkomubanni þar sem inflúensan er ekki talin vera það alvarlega að slíkt sé réttlætanlegt.

Lesa meira

24. júlí 2009

Nýja inflúensan A(H1N1)v hefur verið staðfest hjá 23 einstaklingum á Íslandi

Síðustu tvo sólarhringana hafa fimm tilfelli verið staðfest á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1)v og hefur hún því greinst hjá samtals 23 einstaklingum því í maí sl. Um er að ræða 19 ára gamlan bandarískan ferðamann sem kom til landsins 21. júlí sl., 32 ára gamla konu sem hafði umgengist smitaðan einstakling hér á landi, 25 ára gamla konu sem einnig var í nánum tengslum við smitaðan einstakling, 25 ára gamla konu sem hafði umgengist smitaðan einstakling hér á landi og 32 ára gamla konu sem kom frá Bandaríkjunum 16. júlí sl.

Engin þessara fimm sjúklinga var með alvarleg einkenni og eru þeir allir á batavegi.

Lesa meira

23. júlí 2009

Inflúensusjúklingar hringi en komi ekki á HSu

Þeim tilmælum er beint til fólks sem er með inflúensulík einkenni að hafa samband símleiðis við stofnunina og koma ekki á heilsugæsluna fyrr en haft hefur verið samband í síma 480 5100 og eftir kl. 18:00 í síma 480 5112.  Þetta er gert af tillitssemi við aðra skjólstæðinga sem ekki eru með inflúensueinkenni og bíða í anddyri eftir afgreiðslu. Lesa meira

23. júlí 2009

Átján manns hafa greinst á Íslandi með nýju inflúensuna A(H1N1)v.

Síðasta sólarhringinn hafa greinst þrjú tilfelli á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1)v og hefur hún því greinst hjá samtals 18 manns frá því í maí sl. Um er að ræða 24 ára karlmann sem ekki hefur ferðast erlendis og ekki haft tengsl við ferðalanga. Þá greindist inflúensan hjá 54 ára gömlum bandarískum ferðamanni sem kom til landsins 15. júlí sl. og 7 ára gömlum dreng sem kom frá Bretlandi 17. júlí sl. Engin þessara fjögurra sjúklinga var með alvarleg einkenni og eru þeir allir á batavegi. 

Lesa meira

24. júní 2009

Inflúensa – yfirlit – fræðsla


Heimsfaraldur inflúensu
einkennist af nýjum veirustofni sem sýkir stóran hluta mannkyns sem hefur ekki mótefni gegn stofninum. Stærsti vandinn við nýja inflúensuveiru er að enginn hefur komist í kynni við hana áður og því veit enginn hvernig hún hagar sér. Margir gætu smitast og veikst á skömmum tíma með miklu álagi alla þætti samfélagsins og heilbrigðisþjónustuna. Áhrifin geta því orðið umtalsvert meiri en í árlegri inflúensu.

Hér er samantekt Þóris Kolbeinssonar, sóttvarnalæknis austan Þjórsár

Lesa meira

16. júní 2009

Kynning á starfsemi sjúkraflutningamanna 17. júní

Þann 17. júní n.k munu sjúkraflutningamenn HSu vera með kynningu á starfsemi sinni, búnaði sjúkraflutninga og sjúkrabílum. Einnig verður sýnd björgun úr bílflökum í samstarfi við Brunavarnir Árnessýslu. Kynningin verður á planinu við Hótel Selfoss og mun hún standa yfir frá kl: 10:00-12:30.

Lesa meira

11. júní 2009

Frá sóttvarnarlækni Suðurumdæmis

Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni hefur nú lýst yfir heimsfaraldri inflúensu sbr. hjálagt skjal.

Yfirlýsing stofnunarinnar er mikilvæg fyrir bóluefnaframleiðendur sem geta nú einbeitt sér að framleiðslu þeirra.

Stofnunin leggur áherslu á að eins og sakir standa sé ekki tilefni til að loka landamærum eða að hefta alþjóðlega umferð og viðskipti.

Þess í stað skulu þjóðir heims einbeita sér að því að draga úr áhrifum faraldursins með viðeigandi sóttvarnaráðstöfunum.

Sóttvarnalæknir mun funda með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra í fyrramálið, föstudag, þar sem lagt verður mat á yfirlýsingu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Ekki er búist við því að hún hafi áhrif á þá vinnu við viðbragðsáætlun okkar sem fylgt er á íslandi eins og málum er háttað jafnvel þótt farið verði á neyðarstig hér á landi.

Lesa meira

4. júní 2009

Síðustu fréttir af inflúensu A

Rúmlega 18.000 einstaklingar hafa fengið staðfesta sýkingu á heimsvísu en gera má ráð fyrir að þeir séu mun fleiri.
117 einstaklingar hafa látist úr veikinni og flestir þeirra voru með undirliggjandi sjúkdóma. 
Einn einstaklingur hefur verið staðfestur hér á landi með sýkingu. Honum farnaðist vel. 
Fjöldi öndunarfærasýna sem borist hafa veirufræðideild Landspítalans hefur minnkað umtalsvert síðustu daga. Læknar eru hvattir til að senda sýni samkvæmt fyrri leiðbeiningum sóttvarnalæknis. 

 

Lesa meira

29. maí 2009

Myndlist barna í Árborg á HSu

Vor í Árborg teygði sig inn fyrir veggi HSu því nú prýða veggi1. hæðar stofnunarinnar myndir sem börn í leikskólunum Álfheimum og Hulduhólum hafa gert. Lesa meira

26. maí 2009

Heimsfaraldur inflúensu yfirvofandi.

Fyrir fjórum vikum greindist í Mexíkó nýr stofn inflúensu. Síðan þá hefur þessi veira dreyfst manna í milli og hefur nú greinst í 44 löndum og yfir 12 þúsund tilfelli staðfest. Þar sem um er að ræða nýja stofn er ljóst að enginn hefur mótefni og því geta allir veikst. Einn einstaklingur hefur greinst á Íslandi með þessa tegund inflúensu.

 

Lesa meira

23. maí 2009

Leiðbeiningar til almennings

Fyrsta tilfelli inflúensu A (H1N1) hefur greinst hér á landi.
Eftirfarandi eru leiðbeiningar Landlæknisembættisins til almennings:

Ráðleggingar til einstaklinga með inflúensulík einkenni. Þessar leiðbeiningar gilda eingöngu um sjúklinga með eftirfarandi einkenni:
Inflúensulík einkenni: Hiti yfir 38°C ásamt hósta, hálssærindum og nefrennsli + Náin umgengni við einstakling með staðfesta inflúensu A(H1N1)  eða ferðalag til svæðis þar sem inflúensa hefur greinst.  Lesa meira

22. maí 2009

Heilbrigðisstarfsmenn HSu frá beinan aðgang að rannsóknarniðurstöðum á LSH

Landspítali og Heilbrigðisstofnun Suðurlands hafa gert með sér gagnkvæma samninga um rannsóknir, myndgreiningu og samnýtingu upplýsinga. Nýlega samþykkt lög um sjúkraskrár gera þetta samstarf mögulegt og með samningunum verða til dæmis upplýsingar um þær rannsóknir sem sjúklingur hefur farið í aðgengilegri en verið hefur. Við það batnar þjónusta við sjúklinga og minna verður um að endurtaka þurfi rannsóknir sem þegar hafa verið gerðar.

 

Lesa meira

22. maí 2009

Ný stjórn hjúkrunar- og ljósmæðraráðs HSu

Hjúkrunar- og ljósmæðraráð var stofnað við stofununina þann 19. október 2005.

Á aðalfundi sem haldinn var í maí 2009 voru eftirtaldar kosnar í stjórn og varastjórn: Anna Guðríður Gunnarsdóttir, formaður, Kristín Gunnarsdóttir, varaformaður, Fanney Grétarsdóttir, ritari. Í varastjórn eru: Dröfn Kristmundsdóttir, Ólöf Árnadóttir og Sara Guðmundsdóttir.

Lesa meira

22. maí 2009

Nýr hjúkrunarstjóri í Rangárþingi

Arndís Finnsson hjúkrunarstjóri hefur látið af stöfum við heilsugæslustöðina í Rangárþingi. Henni eru þökkuð vel unnin störf og óskað velfarnaðar á þessum tímamótum. Við starfi hjúkrunarstjóra tók Ólöf Árnadóttir, hjúkrunarfræðingur. Hún hefur starfað við heilsugæslustöðina frá því í ársbyrjun 2008. Ólöf lauk námi í hjúkrunarfræði við HÍ  2003.
Hún hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeildum í Svíþjóð og Finnlandi og stundar nú nám í stjórnun í heilbrigðisþjónustu við Háskólann á Bifröst. Ólöf er boðin velkomin til starfa við stofnunina.

Lesa meira

22. maí 2009

Inflúensupistill 20. maí 2009

  • Heildarfjöldi greindra tilfella í heiminum er nú 10.215
  • Fréttir um aukinn fjölda innlendra tilfella eru að berast ekki eru merki um stærri innlenda faraldra.
  • Inflúensan virðist væg enn sem komið er.
  • Engin tilfelli hafa greinst hér á landi.
  • Haldinn verður fundur þ. 25.5 í Reykjavík með sóttvarnalæknum umdæma og svæða, og lögreglustjórum þar sem farið verður yfir viðbragsáætlanir og horft til framtíðar (sjá meðfylgjandi dagskrá).
  • Læknar eru áfram hvattir til að senda sýni til veirugreiningar frá einstaklingum með inflúensulík einkenni
  • Lesa meira

    19. maí 2009

    Nýr yfirlæknir á heilsugæslustöðina í Hveragerði

    Ragnar Victor Gunnarsson, sérfræðingur í heimilislækningum, hefur verið ráðinn yfirlæknir við Hsu, heilsugæslustöðina í Hveragerði frá júnímánuði n.k.. Hann tekur við af Sigurði Baldurssyni, sem hætti nýlega störfum. Ragnar Victor fékk almennt lækningaleyfi 1993 og varð sérfræðingur í heimilislækningum 1998. Hann hefur sérþekkingu á sykursýki og viðurkenningu sem sykursýkifræðingur. Hann hefur starfað við Hsu frá janúar 2003. Áður starfaði hann m.a. í tæp fjögur ár við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þar af um tíma sem yfirlæknir í Grindavík. Núverandi skjólstæðingar hans munu fá nýjan heimilislækni á Selfossi.

    Lesa meira

    15. maí 2009

    Fréttir af inflúensu

    • Engin tilfelli hafa greinst hér á landi.
    • Tilfellum fjölgar erlendis en engin alvarleg veikindi hafa verið tilkynnt í Evrópu.
    • Veirudeild Landspítalans hefur nú bestu tækni til að greina hina nýju inflúensu A (H1N1)
    • Í dag verður aflétt viðvörun til ferðamanna um að ferðast ekki til Mexíkó að nauðsynjalausu. Engin viðvörun er nú gildi um ferðalög erlendis.
    • Ferðamenn eru hvattir til gæta fyllsta hreinlætis á ferðum sínum erlendis og forðast náið samneyti við veika einstaklinga.
    • Dregið hefur verið úr vaktþjónustu heilbrigðisstarfsmanna í Leifsstöð. Í stað þjónustu í stöðinni þá verður baktvakt til taks ef á þarf að halda. Möguleiki er á að endurvekja vaktþjónustuna með litlum fyrirvara ef þörf krefur.
    • Stefnt er að útgáfu formlegra leiðbeininga til ferðamanna um smitgát fljótlega.
    Lesa meira

    12. maí 2009

    Fimmtán starfsstúlkur HSu útskrifast frá FnS

    Þann 7. maí sl. útskrifuðust 15 starfsstúlkur á HSu af Fagnámskeiði I sem haldið var á vegum Fræðslunets Suðurlands. Námskeiðið er sérsniðið fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónusutu og var það 60 tíma langt. Námskeiðið má meta til allt að 5 eininga á framhaldsskólastigi.

    Lesa meira

    7. maí 2009

    Tilkynning frá sóttvarnalækni

    • Enginn hefur verið greindur hér á landi með inflúensu A (H1N1) og enginn lagður inn á Landspítala með alvarleg inflúensulík einkenni.
    • Faraldurinn er vægur enn sem komið er í löndum utan Mexíkó.
    • Hópútbreiðsla hefur ekki verið staðfest í Evrópulöndum.
    • Viðbúnaðarstig er óbreytt hér á landi.
    • Mælst er til þess að einstaklingar og fyrirtæki birgi sig ekki upp af veirulyfjum því þá aukast líkur á ómarvissri notkun sem aftur leiðir til þess að birgðir klárast fljótt og líkur á ónæmi aukast.
    • Minni enn og aftur á að mælst er til þess að veirulyfjum sé einungis ávísað á veika sjúklinga sem taldir eru af læknum geta verið með inflúensu. Ekki er mælst til fyrirbyggjandi notkunar enn sem komið er.
    • Sóttvarnalæknir sendir út ný tilmæli ef talin verður ástæða til að breyta leiðbeiningum um notkun veirulyfja.
    Lesa meira

    2. maí 2009

    Tilkynning frá sóttvarnalækni Suðurlands v.svínainflúensu

    Í dag er staðan óbreytt hvað varðar svínainflúensuna nema að hún er að greinast í fleiri löndum. Engin tilfelli verið greind á veirufræðideild LSH og engin grunsamleg og alvarleg tilfelli verið lögð inn á LSH.

    Við erum enn á hættustigi; engin ástæða að sinni til að breyta okkar fyrri áætlunum.

    Fréttir utan úr heimi bendir til að inflúensan hafi dreifst víða um heim en hún viðist í grundvallaratriðum vera væg nema í Mexíkó en þar eru yfirvöld að draga í land með alvarleika sýkingarinnar.

    Það er því engin ástæða til að auka viðbúnaðarstig hér á landi að sinni.

     

    Lesa meira

    30. apríl 2009

    Spurningar og svör um svínainflúensu

    Hvað er svínainflúensa?
    Svínainflúensa er bráð sýking í öndunarvegum svína af völdum inflúensu A veiru. Dánartíðnin er lág í svínum og þau ná sér venjulega á 7–10 dögum frá upphafi veikinda. Þessar veirur er einnig að finna í villtum fuglum, fiðurfé, hestum og mönnum. Svínainflúensa berst afar sjaldan milli dýrategunda. Fram til þessa hafa þrír undirflokkar inflúensu A fundist í svínum, en það eru H1N1, H1N2 og H3N2.

     

    Lesa meira

    28. apríl 2009

    JÁ verk innréttar 1. hæð og kjallara nýbyggingarinnar

    Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR) hefur tekið tilboði JÁ – verks í framkvæmdir við að innrétta 1. hæð og kjallara nýbyggingar HSu. Því er kominn á bindandi samningur á grundvelli útboðsgagna FSR og tilboðs JÁ – verks. Allt er tilbúið til að hefja framkvæmdir og er gert ráð fyrir að þær hefjist í byrjun maí. Áætluð verklok eru 15. febrúar 2010.

    Lesa meira

    27. apríl 2009

    Tilkynning um arf til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

    GudfinnaHannesd

    Á árinu 2008 barst bréf frá sýslumanninum á Selfossi dags. 04.04.08. þar sem tilkynnt er að Guðfinna Hannesdóttir, sem lést þann 15. jan. 2008, hafi arfleitt sjúkrahúsið á Selfossi ásamt Gaulverjabæjarkirkju, Blindravinafélaginu í Reykjavík og Landgræðslusjóði ríkisins að öllum sínum eigum, nema það sem tilgreint var í erfðaskránni til Byggðasafnsins á Selfossi.

    Esther Óskarsdóttir, skrifstofustjóri HSu var umboðsaðili erfingja og vann í þessu máli fyrir hönd þeirra. Arfurinn var samtals í peningum kr. 8.305.172.- og hlutur sjúkrahússins var 33.334% eða samtals kr. 2.647.449,oo að frádregnum erfðafjárskatti kr. 120.997,oo.  Arfurinn var greiddur erfingjum 26.mars 2009.

    Guðfinna Hannesdóttir var fædd 28.12.1906. og búsett í Hveragerði. Erfðaskráin var gerð 8.maí 1970. Blessuð sé minning Guðfinnu Hannesdóttur.

    Lesa meira

    24. apríl 2009

    Gjafir til HSu á árinu 2008

    Á árinu 2008 bárust stofnuninni gjafir sem samtals eru að verðmæti 18, 2 milljónir króna.
    Eins og áður þá eru það líknarfélögin á Suðurlandi sem eru tryggir stuðningsaðilar stofnuninnar en einstaklingar gáfu einnig höfðinglegar gjafir á árinu.

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands færir gefendum bestu þakkir fyrir höfðinglegar gjafir og ómetanlegt er að eiga slíka stuðningsaðila. Gjafir þessar bera merki um hlýhug og metnað fyrir uppbyggingu stofnunarinnar til þess að veita íbúum Suðurlands sem öruggasta þjónustu. 
    Megi Guðs blessun fylgja þessum félögum og einstaklingum.



     

    Lesa meira

    20. apríl 2009

    Fræðslufundur Vinafélags Ljósheima og Fossheima 29. apríl nk.

    Tilkynning frá Vinafélagi Ljósheima og Fossheima!

    Fræðslufundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl 2009 kl. 20:00 í fundarsal HSu í kjallara nýbyggingar.

    Á fundinum ætla þær Jóhanna Valgeirsdóttir og Sigurbjörg Björgvinsdóttir, deildastjórar, að sjá um kynningu á fyrirkomulagi og starfsemi hjúkrunardeildanna.

    Kynning verður einnig á nýrri dagdvöl fyrir heilabilaða, sem verið er að opna á Vallholti 38, en Dögg Káradóttir hefur verið ráðin forstöðumaður. Dögg ásamt Guðlaugu Jónu Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri félagslegra úrræða hjá Sv.fél.Árborg, munu sjá um kynningu á fyrirkomulagi starfseminnar í Vallholtinu.

     

    Lesa meira

    6. apríl 2009

    Breyting á skipulagi sjúkraflutninga í Rangárvallasýslu

    Að undanförnu hefur verið leitað leiða til ná samkomulagi um skipulag sjúkraflutninga í Rangárvallasýslu. Náðst hefur lausn, sem hefur verið kynnt sveitarstjóra Rangárþings eystra, sýslumanni og sjúkraflutningamönnum. Með breytingu á skipulagi sjúkraflutninga er stefnt að þvi, að tryggja gæði þjónustunnar og hún verði helst öflugri en áður.

     

    Lesa meira

    2. apríl 2009

    Landspítali yfirtekur rekstur Sogns

    Frá og með 1. apríl, hefur Landspítali (LSH) umsjón með rekstri Réttargeðdeildarinnar á Sogni. Heilbrigðisstofnun Suðurlands og þar áður Heilbrigðisstofnunin á Selfossi hafa haft umsjón með rekstri deildarinnar síðan hún var stofnuð 1992.

    Heilbrigðsráðuneytið fól LSH að taka formlega við rekstri deildarinnar frá og með 1.apríl. Starfsemi deildarinnar verður áfram á Sogni og starfsmenn verða áfram starfsmenn Réttargeðdeildarinnar. Geðsvið LSH mun hafa yfirumsjón með rekstrinum. Með því skapast meiri möguleikar á samstarfi við geðdeildir LSH og samnýtingu á faglegri þekkingu.

     

    Lesa meira

    26. mars 2009

    Kvenfélag Hrunamannahrepps gefur Ljósheimum

    Á 25 ára afmæli deildarinnar færði Kvenfélag Hrunamannahrepps deildinni að gjöf leðurklæddan og rafstýrðan hægindastól. Það var formaður kvenfélagsins Anna Ásmundsdóttir sem afhenti gjöfina en einnig var viðstödd Arnfríður Jóhannsdóttir sem situr í stjórn kvenfélagsins. Verðmæti gjafarinnar er um 143 þúsund krónur.

    Það var svo Svava Pálsdóttir, frá Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi sem vígði stólinn en hún er vistmaður á deildinni. Anna María Snorradóttir,  framkvæmdastjóri hjúkrunar og Ásta Oddleifsdóttir, aðstoðardeildarstjóri veittu gjöfinni viðtöku og þökkuðu gefendum.

    Lesa meira

    26. mars 2009

    Bygginganefnd gömlu Ljósheima heiðruð.

    Þegar Sjúkrahúsið á Selfossi flutti af Austurvegi 28 í núverandi húsnæði var hafist handa við lagfæringar á eldra húsnæðinu sem síðan varð hjúkrunardeildin Ljósheimar. Samband Sunnlenzkra kvenna (SSK) tók mikinn þátt í því starfi og safnaði fé til framkvæmdanna.

    Sérstök bygginganefnd var starfandi á þessum tíma og nú þegar haldið var upp á 25 ára afmæli Ljósheima þann 24. mars sl. þá var nefndarmönnum boðið í afmælið og fengu öll afhentan blómvönd af þessu tilefni.

    Þau sem skipuðu bygginganefndina voru Trausti Traustason og Jón Pétursson, sem báðir störfuðu við stofnunina en auk þeirra voru í nefndinni Laufey Valdimarsdóttir, fulltrúi SSK og Þormóður Torfason, velunnari Ljósheima. Við þetta tækifæri færði Laufey deildinni 25 þúsund krónur.

    Lesa meira

    26. mars 2009

    Hjúkrunardeildin Ljósheimar 25 ára.

    Hjúkrunardeildin Ljósheimar er 25 ára um þessar mundir og var haldið upp á afmælið þann 24. mars sl. Þá fengu eftirtaldar konur viðurkenningu fyrir langan og farsælan starfsaldur á deildinni:
    Kristbjörg Einarsdóttir, starfsstúlka – ráðin 20.mars 1984 – hætti vegna aldurs 31.12.2007. Helga Sveinsdóttir, sjúkraliði – ráðin við Ljósheima 1.maí 1984 – ennþá í vinnu við stofnunina og starfar núna á Ljósheimum.
    Hjördís Helgadóttir, starfsstúlka – ráðin 20.mars 1984 – ennþá í vinnu á Ljósheimum
    Ásdís Ágústsdóttir, starfsstúlka – ráðin 20.mars 1984 – ennþá í vinnu.

     

    Lesa meira

    25. mars 2009

    Áfram vaktþjónusta á skurðstofu HSu

    Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra boðaði starfsfólk HSu til fundar í gær þar sem hann kynnti að fallið hefði verið frá þeim hugmyndum að leggja niður vaktþjónustu á skurðdeild sjúkrahússins. Undanfarnar vikur hefur nefnd sú sem ráðherra skipaði verið að störfum og farið yfir stöðu stofnunarinnar. Niðurstaðan varð sú að komist verður hjá því að skerða fæðingar- og skurðþjónustuna sem verður þá óbreytt frá því sem nú er a.m.k. út árið 2009.

    Lesa meira

    25. mars 2009

    Sunnlendingar skora á heilbrigðisráðherra

    Heilbrigðisráðherra fékk í gær afhentar um 4300 undirskriftir Sunnlendinga sem Samband Sunnlenskra kvenna safnaði til að mótmæla skerðingaráformum sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra hafði boðað.

    Rosemarie Þorleifsdóttir, formaður SSK og Guðrún Þóranna Jónsdóttir, formaður Kvenfélags Selfoss afhentu ráðherra möppu með undirskriftunum en þar er skorað á heilbrigðisráðherra Ögmund Jónasson að hætta við þau áform sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra kynnti í janúar s.l. um að leggja niður bakvaktir fæðingar-, skurð- og svæfingalæknis við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og að loka skurðstofu um kvöld og helgar.

    Lesa meira

    24. mars 2009

    Sjúkraflutningar í Rangárvallarsýslu

    Vegna gagnrýni, sem fram hefur komið á fyrirhugaðar breytingar við sjúkraflutninga í Rangárvallasýslu telur framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) rétt að eftirfarandi komi fram.

    Vegna kröfu um lækkun útgjalda hefur framkv.stjórn stofnunarinnar samþykkt margháttaðar aðgerðir til að lækka útgjöld stofnunarinnar. Samtals þarf að lækka útgjöld hennnar um rúmlega 200 m.kr. á ársgrundvelli. Óhjákvæmilegt er, að svo mikil útgjaldalækkun hafi áhrif á þjónustu stofnunarinnar, þó reynt hafi verið að koma í veg fyrir skerðingu á þjónustu og forðast uppsagnir starfsfólks til hins ýtrasta.

     

    Lesa meira

    23. mars 2009

    Samræming sjúkraflutninga

    Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) hefur samþykkt, að sameina yfirstjórn allra sjúkraflutninga á þjónustusvæði HSu. Þar með er búið að sameina yfirstjórn allra þjónustuþátta stofnunarinnar frá því sameiningarferlið hófst í árslok 2004. Þessi breyting tekur jafnframt mið af tillögum nefndar heilbrigðisráðuneytis frá janúar 2008 varðandi þjónustu, hagræðingu og sveigjanleika í rekstri. Breytingin hefur þegar tekið gildi. Ármann Höskuldsson hefur verið ráðinn yfirmaður sjúkraflutninga stofnunarinnar, en hann var áður yfirmaður sjúkraflutninga í Árnessýslu.

     

    Lesa meira

    18. mars 2009

    Tilboð opnuð í innréttingu 1. hæðar og kjallara nýbyggingar.

    Opnuð hafa verið tilboð í innréttingu 1. hæðar og kjallara í nýbyggingu HSu á Selfossi. Alls bárust 24 tilboð. Kostnaðaráætlun hljóar upp á 178.994.500 króna.

    Tilboðin sem bárust voru frá 78,59% – 102,06% af kostnaðaráætlun.
    JáVerk ehf átti lægsta tilboð kr. 139.880.637 en hæsta tilboð hljóðaði upp á 181.667.000 kr.

    Tilboðin eru nú til yfirferðar hjá Framkvæmdasýslu ríkisins.

    Lesa meira

    16. mars 2009

    Ný aðstaða fyrir sjúkraþjálfun á Hvolsvelli

    Opnuð hefur verið aðstaða fyrir sjúkraþjálfun í Heilsugæslustöðinni á Hvolsvelli. Var hún innréttuð með stuðningi Rauðakrossdeildar Rangárvallasýslu og fyrir framlag frá Kirkjuhvoli af erfðafé Jóns Tómassonar frá Uppsölum.

    Er þetta mikil lyftistöng fyrir samfélagið, því þessa þjónustu hefur sárlega vantað í sýsluna þar sem sjúkraþjálfari staðsettur á Hellu hefur ekki annað eftirspurn. Hefur fólk því þurft að sækja þessa þjónustu um langan. Þessi aðstaða og sú þjónusta sjúkraþjálfara, sem þar fer fram, bætir því verulega heilbrigðisþjónustu í héraðinu.

     

    Lesa meira

    4. mars 2009

    Heilbrigðisráðherra fundar á HSu

    Heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, fundaði með stjórnendum og starfsfólki HSu á Selfossi í gær. Hann fór yfir stöðu mála og þann niðurskurð sem blasir við á öllum heilbrigðisstofnunum á landinu, en alls á að lækka útgjöld sem nemur 6,7 milljörðum. Ráðherra vill samvinnu við heimamenn og ætlar að koma á fót samráðsnefnd, sem skipuð verður sjórnendum HSu, fulltrúum sveitarfélaga og þeirra sem nýta sér mest þjónustu stofnunarinnar, þ.e. Félagi eldriborgara og félögum, sem stutt hafa stofnunina með gjöfum, s.s. SSK. Einnig munu koma þar að fulltrúar frá LSH og hugsanlega fleirum, en ætlunin er að fara heildstætt yfir áhrif af hugsanlegum breytingum á heilbrigðisþjónustunni.

     

    Lesa meira

    23. febrúar 2009

    Útboð lokaáfanga nýbyggingar HSu

    Framkvæmdasýsla ríkisins auglýsti um helgina útboð á framkvæmdum við innréttingu 1. hæðar og hluta jarðhæðar nýbyggingar HSu við Árveg á Selfossi, samtals um 1.440 ferm. Á 1. hæð verður húsnæði heilsugæslunnar, en á jarðhæð verður sjúkraþjálfun, búningsherbergi, snyrtingar, fundaherbergi og geymslur.

    Tilboð í framkvæmdina verða opnuð 17. mars nk. Framkvæmdum skal vera lokið 15. febrúar 2010.

    Lesa meira

    9. febrúar 2009

    Gæðadagur rannsókna á HSu

    Þann 5. febr. sl. voru læknar og lífeindafræðingar HSu með sameiginlegan gæðadag. Þar var farið yfir þær rannsóknir sem gerðar eru á HSu og hvernig framtíðin geti verið. Markmið dagsins var að bæta gæði rannsókna, skoða hvernig við gerum núna og hvernig við getum bætt okkur. Sérfræðingar frá Landspítala (LSH) komu og héldu erindi, ásamt því að sérfræðingar á HSu voru með erindi. Á rannsóknastofu HSu eru gerðar yfir 100 000 rannsóknir á ári og var heildarkostnaður á sl ári 65 milljónir króna. Að auki keypti HSu rannsóknir fyrir 40 milljónir hjá öðrum rannsóknarstofum. Mjög mikilvægt er að fara sem best með þessa fjármuni og sennilega aldrei mikilvægara en núna.

     

    Lesa meira

    5. febrúar 2009

    Minningarkort send rafrænt

    Margir vilja senda vinum og vandamönnum minningarkort til að minnast látinna.

    Nú er hægt að senda minningarkort Sjúkrahússsjóðs Kvenfélags Selfoss og minningarkort Vinafélags Ljósheima beint af heimasíðu HSu.

    Lesa meira

    5. febrúar 2009

    Inflúensan er komin – ekki of seint að bólusetja

    Samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni Landlæknisembættisins þá er hin árlega inflúensa komin til landsins en hún er ekki komin á mikið flug ennþá. 
    Ennþá er tími til að láta bólusetja sig og því ekki rétt að tími bólusetninga sé löngu liðinn og að ekkert bóluefni sé til. Þeir sem áhuga hafa á að láta bólusetja sig gegn inflúensunni er bent á að snúa sér til næstu heilsugæslu.

     

    Lesa meira

    2. febrúar 2009

    Breyttur opnunartími læknamóttöku á Selfossi

    Vinsamlega athugið breytingar á opnunartíma læknmóttöku Hsu Selfossi. Frá 1. febrúar 2009 verður opin læknamóttaka alla virka daga frá kl.16:00-18:00 um helgar frá kl. 10:00-12:00

    Lesa meira

    20. janúar 2009

    Læknaráð HSu ályktar um tillögur heilbrigðisráðherra

    Á fundi sínum þann 16. janúar sl. samþykkti Læknaráð HSu eftirfarandi ályktun  varðandi tillögur Heilbrigðisráðuneytis (HR) um skipulagsbreytingar í heilbrigðiskerfinu frá 7. Janúar 2009.

    1. Læknarráð lýsir vonbrigðum yfir þeim einhliða vinnubrögðum sem virðast viðhöfð við vinnu og framsetningu þessara tillagna. Tillögurnar eru ekki unnar í samvinnu við fagfólk og heimamenn á þjónustusvæði HSu og engir kostnaðar- eða hagkvæmnisútreikningar fylgja þeim. Tillögur þessar virðast settar saman útfrá sjónarmiði þeirra sem búa í þéttbýli og taka lítið tillit til hagsmuna og öryggis íbúa sem búa utan höfuðborgarsvæðisins eða á Akureyri.

     

    Lesa meira

    19. janúar 2009

    Staða HSu í ársbyrjun 2009

    Nú í ársbyrjun eru rúm fjögur ár frá því Heilbrigðisstofnun Suðurlands varð formlega til skv. reglugerð, sem heilbrigðisráðuneytið gaf út um sameiningu heilbrigðisstofnana á Suðurlandi frá 1. september 2004. Stofnunin er því að hefja sitt fimmta starfsár.

    Þjónustusvæði stofnunarinnar nær til um 20.000 íbúa á Suðurlandsundirlendinu. Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, eitt sjúkrahús á Selfossi með 71 sjúkrarúm, réttargeðdeild á Sogni í Ölfusi með 7 rými og heilbrigðisþjónustu við fangelsið á Litla Hrauni. Alls eru um 230 stöðugildi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Réttargeðdeildina.

    Lesa meira

    13. janúar 2009

    Kaupmannafélag Suðurlands gefur á hjúkrunardeildir HSu

    Þann 8. jan. 2008 var Vinafélagi Ljósheima og Fossheima afhent peningagjöf kr. 424.134.- frá Kaupmannafélagi Suðurlands. Félagið var stofnað af starfandi kaupmönnum á svæðinu um áramótin ’86 og var starfandi til ársins 1998. Það var síðan ákvörðun stjórnar að gefa vinafélaginu alla sjóðsupphæð félagsins. Afhending fór fram á heimili formanns Gunnars B. Guðmundssonar þar sem eiginkona hans Helga Jónsdóttir reiddi fram glæsilegt kaffihlaðborð.

    Lesa meira

    12. janúar 2009

    Hjúkrunar-og ljósmæðraráð HSu ályktar um fyrirhugaða skerðingu þjónustu

    Efni:  Ályktun Hjúkrunar- og ljósmæðraráðs í kjölfar yfirlýsingar heilbrigðisráðherra um breytingar á skipulagi og niðurskurð á þjónustu á HSu.
     
     
    Stjórn Hjúkrunar- og ljósmæðraráðs HSu mótmælir harðlega vinnubrögð heilbrigðisráðherra við kynningu og innleiðingu breytinga á heilbrigðisþjónustu HSu. Unnið hefur verið að þessum breytingunum með mikilli leynd og hefur starfsfólki verið haldið í heljargreipum óvissu og ótta um störf sín.
    Ráðið harmar þann niðurskurð sem stofnunin stendur frammi fyrir og þá skerðingu á þjónustu Heilbrigðisstofnunarinnar sem íbúar á þjónustusvæði hennar þurfa óhjákvæmilega að horfast í augu við. Lesa meira

    7. janúar 2009

    Breytingar á heilbrigðisþjónustu

    Í dag kynntu stjórnendur HSu starfsmönnum sínum þær breytingar sem verða á starfsemi stofnunarinnar skv. tillögum  Guðlaugs Þ. Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra. Breytingarnar sem eru stefnumarkandi fela m.a. í sér að vaktþjónusta á skurðsviði sjúkrahússins verður lögð niður og það hefur þau áhrif m.a. að fæðingar munu nánast leggjast af.
    Lesa meira

    5. janúar 2009

    Sjúkraflutningamenn gleðja fjölskyldu

     
    Á aðfangadag heimsóttu sjúkraflutningamenn úr Árnessýslu, Aron Eðvarð Björnsson og foreldra hans á barnaspítala Hringsins í Reykjavík. Aron liggur þar inni vegna veikinda sem hann hefður verið að kljást við síðan frá fæðingu, en hann fæddist 11. október sl.  Saga veikindanna er sú að á fæðingartímanum varð hluti garna utan við magann og þegar maginn lokaðist varð hluti garnanna eftir og skemmdist sá hluti, sem var til þess að drep komst í sárið.
     
     
    Lesa meira

    5. janúar 2009

    Ljósheimar frá peningagjöf

    Vörður, félag stjórnenda á Suðurlandi færði hjúkrunardeildinni Ljósheimum kr. 500 þúsund að gjöf, og skyldi gjöfinni varið til iðjuþjálfunar á deildinni. Keyptur hefur verið bakarofn sem er á hjólum og nú geta hjúkrunarsjúklingarnir á  deildinni fengið að taka þátt í að baka við og við og er það liður í  þeirri iðjuþjálfun sem þeir fá.
    Jón Vilhjálmsson, fulltrúi Varðar afhenti Magnúsi Skúlasyni, forstjóra HSu  peningagjöfina og Fanney Karlsdóttir iðjuþjálfi sagði frá starfi sínu á deildinni en auk hennar er Ragnheiður Lúðvíksdóttir einnig starfandi iðjuþjálfi á stofnuninni.  Gjöfin var gefin í tilefni 60 ára afmælis félagsins. Lesa meira

    2. janúar 2009

    Fyrsta barn ársins 2009

    Á nýársdag kl.12:29 fæddist fyrsta barns ársins 2009  á Fæðingadeild HSu. Þetta var stúlka sem vóg 3420 gr  og var 49 cm að lengd. Foreldrarnir eru Þórunn Kolbrún Þórarinsdóttir og Einar Logi Eiðsson sem búa á Drekavöllum 18 í Hafnarfirði. Innilegar hamingjuóskir ! Lesa meira

    2. janúar 2009

    Ný reglugerð tekur gildi 1. janúar 2009

    Frá og með 1. janúar 2009 tekur gildi ný reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Reglugerðin er birt á heimasíðu Stjórnartíðinda, stjornartidindi.is.

    Reglugerðin er að stofni til endurútgáfa reglugerðar nr. 1265/2007 og felur í sér breytingu á greiðsluþátttöku sjúkratryggðra vegna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslustöðvum og á heilbrigðisstofnunum.

    Lesa meira

    18. desember 2008

    Heilsugæsluþjónusta á Eyrarbakka og Stokkseyri

    Á undanförnum árum hefur aðsókn í heilsugæsluselin á Eyrarbakka og Stokkseyri dregist verulega saman. Bæði selin eru opin tvo hálfa daga í viku, en hafa verið lokuð í júní til ágúst á hverju ári. Þrátt fyrir að þessi heilsugæslusel séu opin þá hefur aðsókn í þau verið mjög dræm. Íbúar þessara byggðarlaga sækja heilsugæsluþjónustu fyrst og fremst til heilsguæslustöðvarinnar á Selfossi.

    Lesa meira

    15. desember 2008

    Stuðningsviðtöl hefjast að nýju

    Vegna stöðu efnahagsmála og í kjölfar þeirra erfiðleika sem nú eru í íslensku þjóðfélagi hafa aðilar sem vinna að velferðarþjónustu, undir forystu Fjölskyldumiðstöðvar Árborgar, ákveðið að bjóða þeim stuðningsviðtöl sem þess óska. Að verkefninu koma Fjölskyldumiðstöð Árborgar – félagsþjónusta, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Skólaskrifstofa Suðurlands, prestar í Árnesprófastdæmi og Rauði krossinn.

    Þeir sem óska eftir viðtali er bent á að hringja í þjónustuver Sveitarfélagsins Árborgar í síma 480-1900 eða senda tölvupóst á netfangið arborg@arborg.is og gefa upp símanúmer. Haft verður samband við viðkomandi og viðtalstími tilkynntur.

    Lesa meira

    26. nóvember 2008

    Samþykktir SASS varðandi heilbrigðismál

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands

    Ársþing SASS á Hvolsvelli 2008 skorar á stjórnvöld að ljúka nýbyggingu Heilbrigðisstofnunar eins og til stóð, útboðsgögn eru tilbúin og er beðið eftir að fjármálaráðuneyti gefi leyfi fyrir útboðinu. Sveitarstjórnarmenn og þingmenn Suðurkjördæmis eru hvattir til að fylgja málinu eftir þannig að verkið tefjist ekki frekar.

    Lesa meira

    21. nóvember 2008

    Tillögur um lækkun útgjalda

    Vegna hinna miklu áfalla, sem dunið hafa á fjámálakerfi landsmanna að undanförnu er nú unnið að tillögum um mikla lækkun útgjalda ríkissjóðs. Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað eftir tillögum frá heilbrigðisstofnunum um 10 % lækkun útgjalda á næsta ári. Víð mótun slíkra tillagna hefur framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands haft að leiðarljósi hlutverk stofnunarinnar skv. lögum um heilbrigðisþjónustu og að sem minnst skerðing verði á þjónustunni. Einnig að forðast í lengstu lög uppsagnir starfsfólks. Leitað var eftir þátttöku starfsmanna í gerð tillagnanna. Fjölmargar tillögur bárust frá stjórnendum og öðru starfsfólki stofnunarinnar, sem er verið að vinna úr.

    Lesa meira

    17. nóvember 2008

    Ábyrg sýklalyfjanotkun – vitundarvakning í Evrópu

    Í dag, 18. nóvember 2008, verður haldin í fyrsta sinn vitundarvakning um sýklalyf sem nær til allra Evrópuþjóða. Ætlunin er að halda árlega slíka vitundarvakningu. Vakin er athygli á mikilvægi sýklalyfja þegar þau eru rétt notuð til meðferðar á sýkingum en jafnframt er vakin athygli á áhættu sem fylgir rangri notkun þeirra.

    Lesa meira

    17. nóvember 2008

    Ný kapella vígð á HSu

    Þann 16. nóvember  var vígð ný kapella í Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi.  Hin nýja kapella er í nýbyggingu stofnunarinnar, en 1. áfangi hennar var tekinn í notkun í byrjun þessa árs.
    Fyrir rúmu ári var eldri kapellu stofnunarinnar tekin úr notkun vegna tengingar eldri og nýrri byggingar.  Síðan hefur verið unnið að tengingu gömlu og nýju byggingarinnar, ásamt innréttingu á hinni nýju kapellu.
    Oddfellowreglan á Suðurlandi þ.e. Rebekkustúkan nr.9 Þóra og Oddfellowstúkan Hásteinn nr.17 tók að sér innréttingu kapellunnar. Þetta ákváðu stúkurnar að gera í tilefni af 15 ára afmæli þeirra á síðasta ári.

    Lesa meira

    3. nóvember 2008

    HSu semur við Hveragerðisbæ

    Þann 29. október 2008 var skrifað undir samning milli HSu og Hveragerðisbæjar um heilbrigðisþjónustu við starfsmenn Hveragerðisbæjar.  Felur samningurinn í sér þjónustu trúnaðarlæknis sem og þjónustu hjúkrunarfræðinga frá heilsugæslunni á Selfossi um heilsufarsmælingar á starfsfólki, almenna og sérhæfða fræðslu auk inflúensubólusetninga. Samningurinn gildir frá 1. nóvember og munu hjúkrunarfræðingar hefja bólusetningar í næstu viku. Er það von okkar á HSu að fleiri sveitarfélög komi til með að nýta sér þessa þjónustu. Lesa meira

    28. október 2008

    Um starfsemi HSu árið 2007

    Samantekt úr ársskýrslu 2007 – skýrslan upplýsir starfsemi, umfang og rekstur stofnunarinnar.
    Þjónustusvæði stofnunarinnar nær til um 20 þúsund íbúa á Suðurlandi.
    Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, 31 rúma sjúkrahús, 24 rúma hjúkrunardeild – Réttargeildeildin að Sogni með 7 vistrými og heilbrigðisþjónusta við Litla Hraun, en þar eru að jafnaði 80 fangar.

    Lesa meira

    28. október 2008

    Hlé á stuðningsviðtölum vegna efnahagsmála


    Hlé verður gert á stuðningsviðtölum sem íbúum hefur staðið til boða vegna stöðu efnahagsmála á Íslandi. Um er að ræða samstarfsverkefni Fjölskyldumiðstöðvar Árborgar – félagsþjónustu, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands, Vinnumálastofnunar Suðurlandi, presta í Árnesprófastdæmi og Rauða krossins sem starfrækt hefur verið síðustu tvær vikur. Staðan verður endurmetin á næstu vikum. Komi til þess að aftur verði boðið upp á þjónustu af þessu tagi verður það auglýst sérstaklega. Lesa meira

    28. október 2008

    Góð reynsla af iðjuþjálfun barna og ungmenna

    Nú hefur tilraunaverkefni um iðjuþjálfun barna og ungmenna á Suðurlandi staðið í eitt ár.  Verkefnið er til 3ja ára og er samstarfsverkefni Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi.

    Starfið felur í sér iðjuþjálfun barna og ungmenna 0-18 ára, þátttöku í greiningarteymi barna, ráðgjöf í leik- og grunnskólum, fræðslu til starfsfólks, ásamt einstaklingsþjálfun samkv. tilvísunum.  Verkefni eins og mat, ráðgjöf og þjálfun hefur farið fram í nánasta umhverfi barnsins/skjólstæðingsins. Starfssvæðið er Suðurland og vinnur iðjuþjálfinn eftir tilvísunum frá þeim stofnunum, sem að tilraunaverkefninu standa. Verkefni fyrir Svæðisskrifstofu eru ekki bundin við börn, heldur notendur á öllum aldri. Felast flest verkefnin þar í mat og ráðgjöf vegna hjálpartækja, aðstæðna á heimilum og vinnustöðum, úttekta og fræðslu til notanda og starfsfólks.


     

    Lesa meira

    23. október 2008

    Sálfræðiþjónusta barna og ungmenna

    Sálfræðiþjónusta Heilbrigðisstofnunar Suðurlands er ætluð börnum og ungmennum að 16 ára aldri. Þrír sálfræðingar eru starfandi við HSu. Ari Bergsteinsson, Íris Böðvarsdóttir og Þuríður Pétursdóttir. Þjónustan felst einkum í meðferð vegna vandamála eins og kvíða/fælni, depurð og hegðunarerfðileika, auk uppeldis- og hegðunarráðgjafar fyrir foreldra. Þeir aðilar sem geta vísað málum til sálfræðinga HSu eru starfandi heilsugæslulæknar á Suðurlandi og sálfræðingar Skólaskrifstofu Suðurlands.
    Lesa meira

    22. október 2008

    Ársfundur HSu 2008

    Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands árið 2008 verður haldinn miðvikudaginn 22. október  kl. 14 – 16.  Fundurinn verður haldinn á Hótel Selfossi, í fundarsal á 2. hæð, suðursalur.  Fundurinn er opinn fyrir starfsfólk HSu, alþingismenn Suðurkjördæmis og fulltrúa sveitarfélaga.  

    Dagskrá:
    1. Ávarp.  Magnús Skúlason, forstjóri.
    2. Ársskýrsla 2007, kynning á starfsemi.  Esther Óskarsdóttir, skrifstofustjóri.
    3. Ný löggjöf um heilbrigðisþjónstu.  Sigurður Guðmundsson, landlæknir.
    4. Jarðskjálftarnir 29. maí. Hlutverk HSu, áfallahjálp ofl.   Íris Böðvarsdóttir, sálfræðingur.
    5. Ávörp.

    Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands árið 2008 verður haldinn miðvikudaginn 22. október  kl. 14 – 16.  Fundurinn verður haldinn á Hótel Selfossi, í fundarsal á 2. hæð, suðursalur.  Fundurinn er opinn fyrir starfsfólk HSu, alþingismenn Suðurkjördæmis og fulltrúa sveitarfélaga.  

     

    Lesa meira

    20. október 2008

    Fékk prinsessuköku frá Guðnabakaríi

    Erla Leifsdóttir, íbúi á Sólheimum í  Grímsnesi dvaldi á HSu á fimmtugsafmælinu sínu þann 2. september sl. Eigandi Guðnabakarís á Selfossi  frétti af þessu merkisafmæli og bakaði prinsessuköku fyrir afmælisbarnið og sendi henni á sjúkrahúsið.
    Lesa meira

    20. október 2008

    Kveðjuhóf fyrir starfsmenn

    Þriðjudaginn 14.okt. var haldið kveðjuhóf á stofnuninni fyrir
    3 starfsmenn sem hætt hafa störfum vegna aldurs. Um er að ræða 3 konur sem allar eru fæddar árið 1941 og urðu því 67 ára á árinu.

    Lesa meira

    13. október 2008

    Aðstandendadagur 19. október

    Aðstandendadagur  verður haldinn 19. okt. 2008 nk. Á  Fossheimum  kl. 14:00  og á Ljósheimum kl. 15:00.

    Á dagskránni verður erindi frá deildarstjórum hjúkrunardeildanna, tónlistarflutningur o.fl. og að sjálfsögðu boðið upp á kaffi og gott meðlæti.


     

    Lesa meira

    13. október 2008

    Stuðningsviðtöl vegna erfiðleika í íslensku þjóðfélagi

    Vegna stöðu efnahagsmála á Íslandi þessa dagana og í kjölfar þeirra erfiðleika sem nú ríða yfir íslenskt þjóðfélag hafa aðilar sem vinna að velferðarþjónustu, undir forystu Fjölskyldumiðstöðvar Árborgar,  ákveðið að bjóða þeim stuðningsviðtöl sem á því þurfa að halda. Að verkefninu koma  Fjölskyldumiðstöð Árborgar – félagsþjónusta, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Skólaskrifstofa Suðurlands, Vinnumálastofnun Suðurlandi, prestar og Rauði krossinn.

    Lesa meira

    8. október 2008

    Inflúensubólusetningar haustið 2008

    Inflúensubólusetningar  verða 13. – 17. október 2008 á milli kl. 8:00 – 9:00 og 13:00 -14:00 á Heilsugæslustöð Selfoss.
    Sóttvarnalæknir mælir með árlegri bólusetningu áhættuhópa sem eru meðal annars eftirfarandi:
    - Allir einstaklingar eldri en 60 ára.
    - Allir einstaklingar undir 60 ára sem þjást af langvinnum hjarta-,  lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. 

     

    Lesa meira

    30. september 2008

    Málþing Fræðslunefndar HSu

    Málþing Fræðslunefndar HSu  “Næring og heilsa” var haldið  25. sept. sl. á Hótel Selfossi.
    Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri og formaður fræðslunefndar setti málþingið. Fundarstjóri var Svanborg Egilsdóttir, yfirljósmóðir.
    Lesa meira

    25. september 2008

    Ársfundur HSu verður haldinn 22. okt. nk.

    Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands árið 2008 verður haldinn miðvikudaginn 22. október  kl. 14 – 16.  Fundurinn verður haldinn á Hótel Selfossi, í fundarsal á 2. hæð, suðursalur.  Fundurinn er opinn fyrir starfsfólk HSu, alþingismenn Suðurkjördæmis og fulltrúa sveitarfélaga.  

    Starfsmenn er hvattir til að mæta og kynna sér það sem efst er á baugi í málefnum HSu.  Vakin er athygli á, að ársskýrsluna verður að finna á heimasíðu HSu fyrir fundinn, www.hsu.is

     

    Lesa meira

    15. september 2008

    Iðjuþjálfi ráðinn á HSu

    Fanney B. Karlsdóttir iðjuþjálfi hóf störf við Heilbrigðisstofnun Suðurlands 1. september s.l.
    Lesa meira

    15. september 2008

    Geðheilbrigðisþjónusta fyrir almenning

    Í framhaldi af samningi um tilflutning verkefna var ákveðið að efla og bæta geðþjónustu við almenning á Suðurlandi. Þann 1. september sl. hófst þessi starfsemi og hefur
    Dröfn Kristmundsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin til starfa við HSu. Lesa meira

    15. september 2008

    Aldraðir íbúar á jarðskjálftasvæðinu fá aukna áfallahjálp.

    Styrkur frá LCIF – Alþjóðahjálparsjóði Lions
    Neyðaraðstoð vegna náttúruhamfara

    Lionshreyfingin á Íslandi fékk í ágúst s.l. afhentan 10.000 US$ (810.000 kr.) neyðarstyrk “Emergency Grant” frá Alþjóðahjálparsjóði Lions LCIF, vegna jarðskjálftanna á Suðurlandi 28. maí 2008.

    Lesa meira

    4. september 2008

    Deildarlæknir ráðinn á sjúkrasvið

    Mikil og vaxandi starfsemi á sjúkrasviði hefur kallað á aukningu í læknisþjónnustu. Á undanförnum árum hefur starfsemi sjúkrasviðs aukist með hverju árinu. Komum til sérfræðilækna hefur fjölgað, skurðaðgerðum hefur fjölgað sem og speglunum og rannsóknum eins og hjartaómskoðunum og áreynsluprófum.
    Mikilvægt er því að styrkja starfsemi sjúkrasviðs og að ráði Hjúkrunar og ljósmæðraraðs og Læknaráðs hefur framkvæmdastjórn ráðið deildarlækni til starfa. Um er að ræða tímabundna stöðu læknis. Fyrst til að hefja þessi störf er Dögg Hauksdóttir en hún er í sérnámi í fæðingar og kvennsjúkdómum og verður hjá okkur fyrst í 4 mánuði. Reiknað er með að ráðið verði í stöðu deildarlæknis í 4-12 mánuði í einu. Deildarlæknir starfar við hlið sérfræðilækna sjúkrahúss Lesa meira

    1. september 2008

    Aukin sálfræðiþjónusta á Suðurlandi

    Móttökuritarar á Hsu Selfossi taka við beiðnum um áfallahjálp, einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið afallahjalp@hsu.is. Tilvísun vegna barna, annarra en þeirra sem þurfa á áfallahjálp að halda, skal senda bréflega til heilsugæslunnar merkt Sálfræðingar Heilsugæslu, Heilbrigðisstofnun Suðurlands v/Árveg, 800 Selfoss. Í tilvísun þarf að koma fram nafn, kennitala og heimilisfang barnsins, skóli/leikskóli, ástæða tilvísunar, nöfn foreldra og símanúmer (bæði heimasími og vinnusími/gsm). Það skal tekið fram að sálfræðingar Hsu sinna ekki meðferð fyrir fullorðna einstaklinga, þeir sem á slíku þurfa að halda verða að leita sér aðstoðar hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum á stofu. Hins vegar geta nemendur við Menntaskólann á Laugarvatni og Framhaldsskóla Suðurlands leitað til námsráðgjafa í sínum skóla, en þessir skólar hafa greitt fyrstu þrjá tímana fyrir þá nemendur sem að mati námsráðgjafa þurfa á sálfræðimeðferð að halda.


     

    Lesa meira

    1. september 2008

    Starfsemi á HSu í verkfalli ljósmæðra 4. og 5. september n.k.

    Í boðuðu verkfalli ljósmæðra 4.og 5. september nk. verður reynt að tryggja, að nauðsynlegasta heilbrigðisþjónusta verði í veitt í samræmi við ákvæði um verkföll í lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Fæðingarhjálp telst til nauðsynlegustu heilbrigðisþjónustu og verður því sótt um heimild hjá undanþágunefnd um að ávallt sé ljósmóðir á vakt á fæðingardeildinni á Selfossi.

    Mæðravernd á heilsugæslustöðinni í Laugarási fellur hins vegar niður þann 4. september.

    Lesa meira

    31. júlí 2008

    Sjúkraflutningamenn vinna að auglýsingu

    Sjúkraflutningamenn í Árnessýslu settu upp slysavettvang í samstarfi við lögreglu og Brunavarnir Árnessýslu s.l. föstudagskvöld. Tilgangurinn var myndataka í tengslum við auglýsingar sem Félag sjúkraflutningamanna stefnir á að birta á næstu vikum vegna þeirra alvarlegu slysa sem orðið hafa í umferðinni undanfarna mánuði. Útkoma er eitthvað á þá leið sem sjá má á meðfylgjandi mynd.

    Lesa meira

    28. júlí 2008

    Gáfu fæðingadeildinni nýja myndavél

    Sigrún Kristjánsdóttir, ljósmóðir og Valdimar Hafsteinsson, forstjóri Kjöríss í Hveragerði hafa gefið fæðingadeildinni nýja digital myndavél. Þau hjónin hafa áður gefið deildinni myndavél og nú var komið að því að endurnýja þá vél með tilkomu nýrrar heimasíðu. Myndavélin er af gerðinni Canon Digital Ixus 7,5 og hana nota ljósmæður til að taka myndir af öllum börnum sem fæðast á sjúkrahúsinu og einnig af börnum sem liggja sængurlegu með mæðrum sínum eftir að hafa fæðst t.d. á Fæðingadeild LSH í Reykjavík.  Myndbirtingin er þó háð leyfi foreldra.
    Það sem af er árinu hafa fæðist yfir 100 börn á sjúkrahúsinu svo það lítur út fyrir að árið í ár verði nýtt metár í fæðingum.

    Lesa meira

    24. júlí 2008

    Eðlileg fæðing og aðdragandi hennar:

    Hver vika meðgöngunnar og jafnvel hver dagur skiptir máli fyrir lungnaþroskann hjá barninu og því ákjósanlegast að barnið ljúki sínum 40 vikum af meðgöngunni.
    Meðgöngulengd er eðlileg frá 38 vikum og til 42 vikna. Að meðaltali er meðgöngulengd nær 41 viku en 40 vikum og því ekki rétt að tala um að kona sé komin yfir tímann ef hún gengur með barn sitt lengur en 40 vikur.

    Gangsetning fæðingar er því aðeins gerð ef fæðing hefur ekki byrjað eftir 42 vikna meðgöngu, nema í brýna nauðsyn krefji.Hvers vegna er fagfólk sparsamt á gangsetningu?Ýmis einkenni eru örugg merki um byrjandi fæðingu en önnur eru óljósari.

    Lesa meira

    24. júlí 2008

    Áhugaverðar heimasíður fyrir verðandi mæður/foreldra

    Það er viðurkennt að þekking á gangi fæðingarinnar minnkar til muna kvíða hjá verðandi foreldrum, og veitir þeim þannig tækifæri til þess að hafa áhrif á gang hennar.
    Frá náttúrunnar hendi hefur líkaminn sjálfur þá þekkingu sem þarf til þess að ala barn og brjóstfæða það. Nútímamaðurinn er þó í mun minni tengslum við náttúruna en forfeður hans voru og vill stundum ráðskast með eðlilega líkamsstarfssemi sína. Þetta kemur stundum niður á fæðingum og brjóstagjöf, þegar við gleymum að treysta líkamanum fyrir því sem hann kann.

    Hér er hægt að nálgast fræðslu um barneignarferlið (meðgöngu, fæðingu, sængurlegu) frá ýmsum leiðum.


    Lesa meira

    24. júlí 2008

    Útvíkkunarstig

    Rólegt stig útvíkkunar:
    Útvíkkun legháls frá 0sm til 5sm. Útvíkkun er hæg, hríðir u.þ.b. 1 mín. langar og geta verið nokkuð óreglulegar en styttist jafnt og þétt á milli.Þetta er tíminn til að slaka á, hvílast ef konan er þreytt, því svefnlaus nótt kann að vera framundan. Gott er að borða á meðan konan hefur lyst, því fæðing útheimtir heilmikla orku. T.d. væri vel til fundið að leiða hugann frá hríðunum yfir videói og pizzu, áður en hríðirnar verða of sterkar. Pabbarnir mega heldur ekki gleyma að hugsa um sig, því þeir eiga líka mikið verk fyrir höndum.Rétti tíminn til að fara upp á sjúkrahús ( ef fæðingin á að verða á sjúkrahúsi) er þegar þið haldið að ykkur líði betur með að vera þar. Hægt er að fara og hitta ljósmóður til að meta hvort fæðing sé hafin og hversu langt á veg hún er komin og fara svo heim aftur ef þið viljið. Tíminn er lengi að líða meðan maður bíður á sjúkrahúsi, svo verið heima eins lengi og þið treystið ykkur til.

    Lesa meira

    24. júlí 2008

    Vatn sem verkjameðferð í fæðingu

    Bað hefur verkjastillandi áhrif á flestar fæðandi konur, vegna þeirrar slökunar sem vatn veitir.  Þegar við leggjumst í bað fyllumst við vellíðan, hreyfingar okkar verða léttari, og streita minnkar.Þegar við finnum til sársauka, losar líkaminn efni ( t.d. endorfín ) sem eru verkjadeyfandi.   Streituhormónar hamla hins vegar losun þessara efna, þannig að áhyggjur og hræðsla auka sársauka, en sátt við ástandið minnkar hann.  Þannig virkar baðið, okkar eigin verkjadeyfing nær að virka.  Lesa meira

    24. júlí 2008

    Kostir uppréttra stellinga

    Hríðir verða kröftugri og reglulegri og slökun meiri í leginu á milli hríða

    · Opnun leghálsins (útvíkkun) gengur hraðar
    · Þrýstingur frá kolli barnsins á leghálsinn verður meiri milli hríða
    · Fyrsta og annað stig fæðingar styttist um allt að 40%
    · Betra blóðflæði er um líkamann og þar af leiðandi betri súrefnisflutningur til barnsins
    · Færri aðþrengd börn og börn sprækari við fæðingu (hærri apgar)
    · Meiri þægindi fyrir konuna, minni streita, minni sársauki og þar af leiðandi minni verkjalyf
    · konum finnst þær vera meiri þátttakendur í fæðingunni

    (Janet Balaskas — New Active Birth)

    Lesa meira

    24. júlí 2008

    Fæðing í vatni

    Í flestum tilfellum fer konan upp úr vatninu áður en hún fæðir. En stundum vill hún það ekki, og stundum nær hún því ekki. Er þá barninu óhætt að fæðast undir vatnsyfirborðinu?Já, oftast. Barnið fær súrefni gegnum naflastrenginn þar til fylgjan losnar eftir fæðinguna. Barnið fær síðan súrefni úr loftinu þegar það andar því að sér, þegar þar að kemur.Það sem fær barn til að anda er að fá kalt andrúmsloftið á kinnarnar. Það andar því ekki fyrr en það kemur upp úr vatninu.

    Lesa meira

    24. júlí 2008

    Inngrip í fæðingar eiga að vera í lágmarki á HSu

    Þau inngrip í fæðingar sem skráð eru markvisst á HSu og hvers vegna við viljum hafa þau í lágmarki

    Pethidin er sterkt verkjalyf, sem stundum er notað við fæðingar.  Það hefur slævandi áhrif á bæði móður og barn og í sumum tilfellum getur það haft öndunarletjandi áhrif á barnið og valdið erfiðleikum við brjóstagjöf.  Það var notað í þeim tilgangi að minnka sársauka í hríðunum en þykir ekki bera mikinn árangur sem verkjastilling.  Það virkar hins vegar mjög slakandi og hefur því góð áhrif á kvíða og spennu og er nú mest notað í þeim tilvikum þar sem konan er mjög spennt, hrædd eða þreytt.

    Lesa meira

    24. júlí 2008

    Hormónaflæði í fæðingu

    Oxitocin sem er öðru nafni kallað ástarhormónið, gegnir miklu hlutverki í kynferðislegri örfun og fullnægingu kvenna. Þetta hormón veldur samdrætti í leginu, þ.e. hríðunum. Oxitocin veldur líka mjólkurlosun úr brjóstunum við brjóstagjöf. Lesa meira

    24. júlí 2008

    Fræðsla og umræður um barneignir

    Vorið 2001 ákváðum við að hætta með hefðbundin foreldrafræðslunámskeið í því formi sem áður var. Í stað þeirra skipulögðum við svokallað Opið hús.

    Opið hús er þannig uppbyggt að í stað þess að hafa fræðsluna á fyrirlestraformi þá er fræðslan á Opnu húsi einstaklingshæfð þannig að konunum/pörunum er skipt í hópa niður á ljósmæðurnar þannig að reynt er að hafa ekki fleiri en 2 pör á hverja ljósmóðir. Fræðslan fer þannig fram að pörin stjórna því hvað þau vilja fræðast um og verður megináherslan á það. Afhentir eru minnispunktar til þess að koma með hugmyndir að fræðsluefnum.

    Lesa meira

    24. júní 2008

    Áfallahjálp fyrir íbúa á skjálftasvæðum

    Þann 30. júní nk. verður áfallahjálp og eftirfylgd flutt frá Þjónustumiðstöðvum og inn á heilsugæslustöðvarnar í Hveragerði og á Selfossi. Þar verður boðið upp á frekari sálræna úrvinnslu fyrir þá sem þess þurfa.

    Ítrekað er að þjónustan er í boði fyrir íbúa á öllu skjálftasvæðinu, og þar með talið þá sem enn stríða við eftirköst vegna skjálftanna árið 2000. Þeir sem óska eftir viðtali við sálfræðing er bent á að hringja í síma 480-5114 á milli kl. 8:00 og 18:00 á virkum dögum. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið afallahjalp@hsu.is  og gefa upp símanúmer og haft verður samband við viðkomandi.

    Lesa meira

    12. júní 2008

    Húsnæði leigt vegna sjúkraflutninga í Árnessýslu

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Björgunarmiðstöð Árborgar hafa gert samning um leigu húsnæðis, sem er í eigu Björgunarmiðstöðvarinnar á Selfossi.

    Í húsnæðinu verður aðstaða fyrir sjúkrabifreiðar þær, sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands rekur vegna sjúkraflutninga í Árnessýslu og öll aðstaða sem tengist þeirri starfsemi, en heilbrigðisstofnunin tók í ársbyrjun 2006 við sjúkraflutningum í Árnessýslu. Hafa flutningarnir aukist verulega undanfarin misseri.

    Um er að ræða rúmlega 360 fermetra húsnæðisins og aðgang að sameign. Gildistími samningsins er 25 ár, eða frá 17. júní 2008 til 17. júní 2033.

    Samningurinn var staðfestur var staðfestur með undirskrift Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, og Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra, í hinni nýju Björgunarmiðstöð á Selfossi fimmtudaginn 12. júní.Vonast er til þess að húsnæðið verði tekið í notkun í lok mánaðarins.

    Lesa meira

    11. júní 2008

    Fjárlaganefnd heimsækir HSu

    Fjárlaganefnd hefur verið að kynna sér aðstæður á Suðurlandi undanfarna daga.  Á miðvikudag kom nefndin í heimsókn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og kynnti sér málefni stofnunarinnar.  Nefndin skoðaði húsnæði stofnunarinnar, m.a. þær lítilsháttar skemmdir, sem urðu á eldri hluta byggingarinnar, auk þess að skoða hina nýju og glæsilegu viðbyggingu.  Stefnt er að því að bjóða út innréttingu 1. hæðar og kjallara nýbyggingarinnar í þessum mánuði.  Þá var fjárlaganefnd kynnt starfsemi stofnunarinnar, en mikil aukning hefur verið í þjónustu stofnuarinnar undanfarin misseri, hvort sem er í heilsugæslu eða á sjúkrahúsi.  Fyrstu fjóra mánuði þessa árs hefur fæðingum t.d. fjölgað um 55 % frá sama tíma árið 2007.  Ennfremur var farið yfir starfsemi Réttargeðdeildarinnar á Sogni og hina brýnu þörf á að bæta húsnæðisaðstoðu þar.  Loks var farið yfir þær tillögur, sem stofnunin hefur lagt fram vegna fjárlagagerðar fyrri árið 2009.

    Lesa meira

    10. júní 2008

    Tilkynning um áfallahjálp í Þjónustumiðstöðvum fyrir skjálftasvæðin

    Boðið verður upp á aukinn opnunartíma í áfallahjálp.
    Fagfólk á vegum Landspítala og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands veitir stuðning og áfallahjálp.

    Viðtalsþjónustan verður áfram í Þjónustumiðstöðvum á Selfossi og í Hveragerði,
    mánudag 9. júní – föstudags 13. júní kl. 15 – 18.

    Bent er á upplýsingasíðu Rauða krossins varðandi leiðbeiningabæklinga um sálrænan stuðning. www.redcross.is smella á Suðurlandsskjálftar.

    Lesa meira

    4. júní 2008

    Aukið aðgengi að áfallahjálp

    Tilkynning vegna aðgengis að áfallahjálp í Þjónustumiðstöðvum fyrir skjálftasvæðin.

    Boðið verður upp á aukinn opnunartíma í áfallahjálp.
    Fagfólk á vegum Landspítala hefur bæst í hóp þeirra presta og sjálfboðaliða Rauða krossins sem veitt hafa stuðning og áfallahjálp hingað til.

    Viðtalsþjónustan verður áfram í Þjónustumiðstöðvum á Selfossi og í Hveragerði,
    miðvikudag 4. júní og fimmtudag 5. júní kl. 14 – 20.

    Bent er á upplýsingasíðu Rauða krossins varðandi leiðbeiningabæklinga um sálrænan stuðning. www.redcross.is smella á Suðurlandsskjálftar.

    Lesa meira

    4. júní 2008

    Réttargeðdeildin á Sogni

    Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu um málefni Réttargeðdeildarinnar á Sogni vill undirritaður vekja athygli á, að Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur haft umsjón með rekstri deildarinnar. Hefur stofnunin átt náið samstarf við Heilbrigðisráðuneyti og embætti Landlæknis um rekstur og starfsemi deildarinnar.

    Síðustu ár hefur verið lögð mikil áhersla á að styrkja starfsemi deildarinnar með bættri þjónustu, ráðningu starfsfólk og gerð tillagna um bætta aðstöðu og stærra húsnæði. Geðlæknir og iðjuþjálfi voru ráðnir til starfa, hjúkrunarþjónusta elfd og gæslumenn hafa sótt viðbótarnám sem félagsliðar.

    Síðustu 3 – 4 ár hefur ítrekað verið auglýst eftir geðlæknum til starfa. Þeir virðast hafa haft öðrum merkilegri störfum að sinna. Síðla vetrar varð loks ljóst, að frá og með 1. september nk. verður hægt að hefja uppbyggingarstarf í geðheilbrigðisþjónustu á Suðurlandi. Yfirlæknir geðlækninga á Suðurlandi kemur til starfa, nýr iðjuþjálfi með mikla reynslu af þvi sviði kemur til starfa á sama tíma. Umsóknarfrestur er að líða varðandí ráðningu geðhjúkrunarfræðings, sem gert er ráð fyrir að komi til starfa 1. september. Með ráðningum framangreindra sérfræðinga er gert ráð fyrir, að loks verði hægt að veita Sunnlendingum geðheilbrigðisþjónustu í heimabyggð.

    Ómaklegar og órökstuddar árásir á þjónustu Réttargeðdeildarinnar og starfsmanna hennar vegna meints misferlis fyrrverandi yfirlæknis deildarinnar eru með öllu tilhæfulausar. Skv. upplýsingum frá Landlækni hefur enginn af starfsmönnum Réttargeðdeildarinnar eða Heilbrigðisstofnunar Suðurlands verið grunaður um aðild að meintu misferli. Það hefur átt sér stað utan deildarinnar og er deildinni með öllu óviðkomandi.

    Varðandi gagnrýni fyrrverandi skjólstæðins deildarinnar, sem ákveðnir fjölmiðlar hafa hampað gagnrýnislaust, þá er vert að vekja athygli á, að frá opnun deildarinnar fyrir 15 árum hafa á fimmta tug sjúklinga innritast á réttargeðdeildina, þar af um helmingur ósakhæfur. Núna eru 6 sjúklingar á deildinni. Aðrir hafa útskrifast og enginn þeirra framið afbrot aftur. Verður það að teljast afar góður árangur við meðferð mjög veikra einstaklinga, oft við erfiðar aðstæður. Á starfsfólk deildarinnar heiður skilinn fyrir slíka þjónustu.

    Skjólstæðingar deildarinnar eru mjög veikt fólk með alvarlega geðsjúkdóma, sem hafa valdið alvarlegum einkennum og afbrotum. Málefni hvers og eins er mjög viðkvæmt og margir eiga um sárt að binda, bæði fjölskyldur sjúklings og fórnarlamba. Meðferðin er því mjög erfið, viðkvæm og tekur langan tíma. Ásakanir um illa meðferð eru því í engu samræmi við framangreindan árangur við að koma þessum einstaklingum út í þjóðfélagið á ný

    Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

    Lesa meira

    30. maí 2008

    Byggingar HSu við Árveg óskemmdar

    Burðarþolssérfræðingar hafa tekið út byggingu HSu við Árveg.
    Engar skemmdir eru á burðarmannvirki hússins en smávægilegar sprungur eru í múrhúð.
    Ragnar Sigbjörnsson, prófessor og forstöðumaður Jarðskjálftastofnunar HÍ kom á fund starfsfólksins og lýsti því sem gerist í jarðskjálfta af þessum styrkleika.
    Starfsfólk var fullvissað um að óhætt væri að halda uppi eðlilegri starfsemi í húsinu.
    Trausti Traustason, umsjónarmaður fasteinga HSu útskýrði byggingarlag hússins á myndrænan hátt og Magnús Skúlason, forstjóri HSu sagði frá því að Almannavarnir hefðu fyrirskipað flutning allra sjúklinga úr húsinu í gær en eftir að Guðjón Sigfússon, verkfræðingur og sérfræðingur í burðarþoli, hafði skoðað bygginguna og ljóst var að engar skemmdur voru á burðarþoli hennar, var leyft að flytja fólkið aftur á sjúkrahúsið. Lesa meira

    23. maí 2008

    Nýir fæðinga- og kvensjúkdómalæknar til starfa á HSu

    Tveir fæðinga- og kvensjúkdómalæknar verða að störfum á HSu í júní nk. Þetta eru þau Brynhildur Eyjólfsdóttir og Radoslaw Szelc.
    Brynhildur kemur frá Svíþjóð og leysir af í 4 vikur frá 9. júní. Radoslaw verður hér í 2 vikur til að byrja með frá 29/5. Hann kemur frá Póllandi en talar ensku líka.

    Þau verða bæði með móttöku á sjúkrahúsinu og er hægt að panta tíma hjá þeim í afgreiðslu HSu í síma 480 5100.

    Lesa meira

    8. maí 2008

    Vor í Árborg á HSu

    Nú stendur yfir sýning á myndlist barna á leikskólum í Árborg. Um margskonar myndlist er að ræða og svo eru einnig skúlptúrar. Þessi verk hafa börnin unnið á þemadögum í skólunum. Lesa meira

    8. maí 2008

    Aukning í starfsemi sjúkrasviðs

    Mikil aukning er á nánast öllum sviðum sjúkrahússins fyrstu 4 mánuði ársins 2008.
    Sjúklingum fjölgar og legudögum einnig. Sjúklingar sem lagðir eru inn á sjúkradeildir eru mun fleiri og í aprílmánuði var aukningin 23% miðað við sama mánuð í fyrra. Ferlisjúklingar eru einnig mun fleiri flesta mánuðina og voru 44% fleiri núna en á sama tíma í fyrra.
    Eins og áður hefur komið fram hefur speglunum á meltingarfærum fjölgað mjög mikið og enn fjölgar fæðingum, þær voru 66% fleiri nú í apríl en í fyrra.
    Þetta hlýtur að spegla þá miklu fjólksfjölgun sem orðið hefur á svæðinu.
    Lesa meira

    2. maí 2008

    Hættir á HSu eftir 37 ára starf

    Viktoría Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður á myndgreiningardeild (röntgen) HSu lét af störfum nú um mánaðamótin eftir 37 ára starf. Hún byrjaði sem gangastúlka á Sjúkrahúsi Selfoss en síðustu 25 árin vann hún á myndgreiningardeildinni. Af þessu tilefni efndu stjórnendur til kaffisamsætis og færðu Viktoríu gjöf og þökkuðu henni störfin í þágu stofnunarinnar.

    Viktoría rifjaði upp hvernig var að vinna á “gamla sjúkrahúsinu” eins og það er oft nefnt, en þá var hún t.d. ein á næturvakt þó húsið væri fullt af sjúklingum. Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður voru þá á bakvakt og sváfu heima hjá sér og það gerði læknirinn að sjálfsögðu einnig.
    Algengt var í þá daga að gangastúlkur /starfsfólk í aðhlynningu aðstoðaði á skurðstofu og við fæðingar ef þörf var.  Þá dvöldu sængurkonur og aðgerðasjúklingar mun lengur á sjúkrahúsinu en tíðkast í dag. Oft voru 4 – 6 sængurkonur inni í einu en þær voru ekki útskrifaðar fyrr en á 6. eða 7. degi. Á  árunum 1965 – 1975 var ekki óalgengt að fæðingar á sjúkrahúsinu væru 180 á ári.

    Á meðfylgjandi mynd er Viktoría (í miðið) ásamt samstarfskonum sínum á deildinni þeim Sigríði Bergsteinsdóttur og Guðrúnu Hálfdánardóttur, geislafræðingum, Esther Óskarsdóttur, skrifstofustjóra og Magnúsi Skúlasyni, forstjóra HSu.

    Lesa meira

    29. apríl 2008

    Hafsteinn Þorvaldsson og börn gefa 1 milljón til HSu

    Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands færði Fossheimum, hinni nýju hjúkrunardeild á HSu, eina milljóna króna að gjöf við opnun deildarinnar í dag.
    Gjöfin er minningargjöf um eiginkonu hans Ragnhildi Ingvarsdóttur og er frá Hafsteini og börnum þeirra hjóna. Ragnhildur sem var starfsmaður sjúkrahússins í 30 ár var fædd 13.08.1929 og lést þann 16.12.2006.

     

    Lesa meira

    28. apríl 2008

    Ný hjúkrunardeild á 3ju hæð

    Þann  28. apríl n.k. mun starfsemi hefjast á nýrri hjúkrunardeild fyrir aldraða á 3ju hæð HSu á Selfossi. 
    Forstjóri HSu, heilbrigðisráðherra og þingmenn við athöfnina.

    Deildin var vígð við formlega athöfn í dag 25. arpíl að viðstöddum Heilbrigðisráðherra Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmönnunum Kjartani Ólafssyni og Guðna Ágústssyni, sveitarstjórnarmönnum, starfsfólki o.fl.  Magnús Skúlason forstjóri HSu og Anna María Snorradóttir, hjúkrunarforstjóri lýstu þeirri starfsemi sem fyrirhuguð er og Magnús sagði frá þeirri uppbyggingu sem á sér stað á vegum stofnunarinnar.
    Hörpukórinn, kór aldraðra söng við athöfnina.  Samkeppni um nafn fór fram meðal starfsfólks og hlaut hún nafnið Fossheimar en það var tillaga starfsstúlkna í eldhúsi HSu.
    Deildin skiptist í tvær einingar, annars vegar 8 rúma einingu og hins vegar 12 rúma einingu.  Til að byrja með verður tekin í notkun minni einingin, en hún er ætluð fólki með heilabilun. Stærri einingin, sem verður almenn hjúkrunardeild, verður opnuð með haustinu.

    Minni einingin er sérstaklega skipulögð með tilliti til fólks með heilabilun.  Hún er lítil í sniðum og reynt verður eftir fremsta megni að skapa heimilislegt umhverfi.  Áhersla verður lögð á rólegt og gott viðmót, virðingu, alúð og jafnræði. Við leggjum áherslu á gott samstarf við aðstandendur og  fræðslu  fyrir starfsfólk. 

     

    Lesa meira

    21. apríl 2008

    Mikil aukning í fæðingum á HSu

    Það sem af er árinu 2008 hefur orðið mikil aukning í fæðingum miðað við árið 2007 sem var þó metár í fæðingum í lengri tíma en þá fæddust 177 börn.
    Í janúar hafa fæðist 15 börn sem er 7% aukning frá síðasta ári. Í febrúar fæddust 15 börn en 8 á sama tíma í fyrra sem er nær 100% aukning, í mars fæddust 16 börn en 10 árið áður sem er 60% aukning. Apríl lofar góðu því nú þegar eru fædd 16 börn.
    Fæðingar í ár því eru orðnar 28 fleiri en á sama tíma í fyrra.

    Lesa meira

    18. apríl 2008

    18.04.08: Ný tækni á skurðstofu HSu

    Nýlega var tekið í notkun á skurðstofu HSu svokallað Coblations tæki sem notað er til háls- og nefkirtlatöku, aðgerða vegna kæfisvefnsvandamála og aðgerða í nefholi t.d. hrotuaðgerðir.
    Notkun þessa tækis við fyrrgreindar aðgerðir hefur þá kosti að minni blæðingar verða í aðgerð og eftirblæðingum eftir aðgerð fækkar. Þá fá sjúklingar minni verki og/eða sársauka eftir aðgerð og þeir eru fljótari að jafna sig og komast fyrr á fætur eftir.

    Þessi aðgerðatækni er í dag talin kjöraðferð til að gera fyrrgreindar aðgerðir og er t.d. notuð á Háls-, nef- og eyrnadeild á Landspítala háskólasjúkrahúsi og einnig á Læknastöðinni í Glæsibæ.

    Þá hefur einnig verið tekið í notkun Fiber rhino-laryngoscope sem er speglunartæki til skoðunar á efri öndunarvegi, koki og hálsi. 

    Lesa meira

    17. apríl 2008

    17.04.08: Heilbrigðisumdæmi Suðurlands

    Skv. nýjum lögum um heilbrigðisþjónstu, sem tóku gildi 1.september sl., var landinu skipt í 7 heilbrigðisumdæmi.  Heilbrigðisumdæmi Suðurlands nær yfir þjónustusvæði heilbrigðisstofnana Suðurlands, Suðausturlands og Vestmannaeyja.  Jafnframt tók gildi á sama tíma ný reglugerð um heilbrigðisumdæmi.  Skv. hinum nýju lögum og reglugerð skal í hverju heilbrigðisumdæmi starfa samráðsnefnd, sem skipuð er forstjórum heilbrigðisstofnana í umdæminu.

    Nefndina skipa því Magnús Skúlason, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Gunnar K. Gunnarsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja og Guðrún Júlía Jónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.

    Hlutverk samráðsnefnda hvers umdæmis er að hafa samráð um:

    1. Skipulag heilsugæslu í umdæminu.
    2. Skipulag hjúkrunarþjónustu í heimahúsum, hjúkrunarrýmum stofnana og á hjúkrunarheimilum í umdæminu.
    3. Skipulag almennrar sjúkrahúsþjónustu í umdæminu.

     

    Lesa meira

    16. apríl 2008

    16.04.08: Kvenfélag Eyrarbakka gefur á fæðingadeild HSu

    Kvenfélag Eyrarbakka er 120 ára á þessu ári. Af því tilefni færðu kvenfélagskonur fæðingadeild HSu súrefnismettunar-, blóðþrýstings og hitamæli að gjöf. Um er að ræða tæki af gerðinni Distica og er verðmæti gjafarinnar um 1/2 milljón krónur.
    Stofnunin þakkar þessa höfðinglegu gjöf og enn einu sinni sýna konur á Suðurlandi þann góða hug sem þær bera til HSu og er það stofnuninni ómetanlegt.

    Lesa meira

    14. apríl 2008

    14.04.08: Sáramóttaka Heilsugæslustöðvar Selfoss

    Í október á síðasta ári kom dr. Theis Huldt-Nystrøm norskur sérfræðingur í húðlækningum, sem rekur sáramóttöku í Noregi, í heimsókn á sáramóttöku heilsugæslustöðvar Selfoss.  Unnur Þormóðsdóttir hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar og Jónína Kristjánsdóttir heilsugæsluhjúkrunarfræðingur, sem jafnframt sjá um sáramóttökuna, stóðu fyrir heimsókninni.  Í maí 2007 fóru Unnur og Jónína á evrópska sáraráðstefnu til Glasgow til að kynna sér nýjungar innan fagsins.  Kynntust þær Theis Huldt á ráðstefnunni en hann hafði byrjað í sínu læknanámi hér á Íslandi.  Ákveðið var að Theis Huldt kæmi í heimsókn til Íslands með haustinu.  Í október 2007 kom hann til Íslands ásamt Runbjørg og Kirsti, norskum hjúkrunarfræðingum.  Lesa meira

    14. apríl 2008

    14.04.08: Yfirlýsing um samstarf

    Yfirlýsing
    um samstarf milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og Svæðisstjórnar Björgunarsveita í Árnessýslu (Svæðisstjórn ).

    Svæðisstjórn Björgunarsveita í Árnessýslu:

    Hefur í sínum röðum 9 Björgunarsveitir sem hafa á að skipa þaulþjálfuðum björgunarsveitarmönnum.  Þessi mannskapur er ávallt reiðubúinn til aðstoðar við sjúkraflutningamenn HSu þegar þörf er á.  Innan Björgunarsveitanna er mikil þekking og reynsla í skyndihjálp, aðhlynningu slasaðra og vinnu á slysavettvangi.

    Björgunarsveitirnar eru vel búnar tækjum og búnaði sem geta nýst vel til aðstoðar við sjúkraflutninga. Björgunarsveitir hafa t.d. til umráða sérútbúnar fjallabifreiðar útbúnar til sjúkraflutninga. Svæðisstjórn sér til að HSu hafi ávallt uppfærðar upplýsingar um búnað björgunarsveita.

     

    Lesa meira

    4. apríl 2008

    Gunnar Örn myndlistarmaður látinn

    Gunnnar Örn Gunnarsson, myndlistarmaður á Kambi er látinn. Hann sýndi okkur á HSu þann heiður að lána listaverk í nýtt anddyri HSu við vígslu nýbyggingarinnar í janúar sl. Hann var þannig fyrstur til þess að sýna verk sín þar.
    Eftirlifandi eiginkona hans er Þórdís Ingólfsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslustöðinni á Hellu.
    Lesa meira

    4. apríl 2008

    Sumarstarfsemi 2008

    Sjúkrahús á suðvesturhorni landsins

    Sjúkrahúsin á Suð-Vesturhorni landsins, þ.e. Heilbrigðisstofnun Suðurlands, heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Landspítali, sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin Akranesi og St. Jósefsspítali – Sólvangur hafa yfirfarið og samræmt sumarstarfsemi sína, sbr. samninga sem undirritaðir voru fyrr á árinu. Meðfylgjandi er yfirlit yfir sumarstarfsemi hverrar stofnunar fyrir sig.

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands

    Hand- og lyflæknisdeild dregur úr starfsemi og verður með 15 rúm opin. Skurðstofa lokar í 7 vikur, frá 23. júní – 11. ágúst, og dregið verður úr skurðaðgerðum aðrar vikur sumarsins. Fæðingum fækkar á sama tíma og skurðstofu lokar, vegna skorts á skurðstofuaðgengi, en sængurlegurými verða opin.

    Hjúkrunardeild á 3. hæð opnar 10 rúm í vor eða 6 viðbótarrými. Þau skiptast í 8 rými fyrir heilabilaða og 2 hvíldarrými. Önnur starfsemi verður óbreytt.


     

    Lesa meira

    28. mars 2008

    Steindór Zóphóníasson gaf HSu 1 milljón kr

    Steindór Zóphóníasson gaf HSu 1 milljón kr. og Dagdvöl aldraðra í Árborg 1 milljón kr.


    Þann 12. febr. 2008 barst tilkynning til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands frá útibúi LÍ á Selfossi um peningagjöf að upphæð kr. 1 millj. frá  Steindóri Zóphóníassyni.
    Einnig gaf Steindór 1 millj. kr. til Dagdvalar aldraðra í Árborg.
    Steindór lést 17. mars sl. á dvalarheimilinu Kumbaravogi.
    Steindór bjó lengst af í Ásbrekku í Gnúpverjahreppi, en fluttist á Selfoss árið 1992. Árið 2007 vistaðist Steindór á hjúkrunar- og dvalarheimilið Kumbaravog á Stokkseyri.
    Dóttir Steindórs og Bjarneyjar G. Björgvinsdóttur er Ingveldur Sigrún Steindórsdóttir og býr í Reykjavík.

     

    Lesa meira

    25. janúar 2008

    Nýbygging vígð

    Fyrsti hluti nýrrar 5.256 fermetra viðbyggingar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) á Selfossi var formlega tekin í notkun í dag. Nýbyggingin er þrjár hæðir auk kjallara. Áætlaður heildarkostnaður við bygginguna er 1,5 milljarðar króna. Framkvæmdir við bygginguna hófust síðla árs 2004. Núverandi húsnæði sjúkrahússins er um 4.500 fermetrar, þannig að um tvöföldun er að ræða með tilkomu nýju byggingarinnar.

    Lesa meira

    22. janúar 2008

    Fimm sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir gera með sér samkomulag

    Í dag var undirritað víðtækt samkomulag milli Landspítala – háskólasjúkrahúss og fjögurra sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana um tilfærslu verkefna frá Landspítala til viðkomandi stofnana. Forstjórar stofnananna undirrituðu samkomulagið sem Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, staðfesti að lokinni undirritun.

    Lesa meira

    21. janúar 2008

    1. áfangi nýbyggingar formlega opnaður

    Fyrsti áfangi nýbyggingar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi verður formlega opnaður fimmtudaginn 24. janúar n.k. Starfsmönnum stofnunarinnar er boðin þátttaka í formlegri athöfn opnunarinnar sem hefst kl. 15:30 í anddyri nýbyggingarinnar.

    Lesa meira

    16. janúar 2008

    Nýjung í endurnýjun lyfseðla

    Tilkynning frá framkvæmdastjóra lækninga HSu, Óskari S. Reykdalssyni. Lesa meira

    3. janúar 2008

    Héldu tombólu til styrktar HSu

    Tvær ungar blómarósir komu færandi hendi til Estherar Óskarsdóttur, skrifstofustjóra HSu í gær þann 3.janúar. Þetta voru þær Esther Ýr Óskarsdóttir og Harpa Hlíf Guðjónsdóttir og 
    afhentu þær sjúkrahúsinu peningagjöf að upphæð kr. 1.584 sem þær höfðu safnað með því að halda tombólu. Lesa meira

    2. janúar 2008

    Breyting á komugjöldum

    Frá og með 1. janúar 2008 falla niður komugjöld barna-og ungmenna yngri en 18 ára á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum. Lesa meira

    28. desember 2007

    Kristjana Stefánsdóttir söng fyrir sjúklinga

    Föstudaginn 21.des.sl. kom Kristjana Stefánsdóttir með tríó sitt og skemmti sjúklingum og starfsfólki sjúkrahússins. Lesa meira

    21. desember 2007

    Góður árangur af meðferð á Sogni

    Fréttatilkynning frá Óskari S. Reykdalssyni, framkvæmdastjóra lækninga
    Á Sogni er starfrækt réttargeðdeild, sú eina sinnar tegundar á Íslandi. Markmið réttargeðdeildarstarfsins er að undirbúa þá sjúklinga sem þar vistast fyrir brottför og að gera hana framkvæmanlega innan eðlilegs tíma. Lesa meira

    21. desember 2007

    Jósef Geir færði starfsfólki geislaspilara

    Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað á HSu undanfarið og mikið um iðnaðarmenn í húsinu. Einn starfsmanna JÁ verktaka, Jósef Geir Guðmundsson, trésmiður sem unnið hefur í húsinu í nokkra mánuði kom einn daginn með geisladiska með jólalögum og færði starfsfólkinu á sjúkrahúsinu. Lesa meira

    21. desember 2007

    Starfsemi Heilsugæslustöðvar Selfoss um jólin

    Bráðamóttaka heilsugæslulækna er opin alla jóladagana kl. 10 – 12.  Fyrir utan þennan tíma er hægt að ná í lækni í neyðarsíma 480-5112.

    Lesa meira

    20. desember 2007

    Uppbygging og aukin starfsemi á HSu

    Þann 18. des. bauðst starfsfólki HSu að skoða þann hluta nýbyggingarinnar við HSu á Selfossi sem tekinn verður í notkun í upphafi næsta árs. En þann 18. des. 1981 flutti sjúkrahúsið á Selfossi starfsemi sína í núverandi húsnæði, þ.e. fyrir 26 árum. Lesa meira

    18. desember 2007

    Fæðingamet slegið á HSu ?

    Á fæðingadeild HSu stefnir í nýtt fæðingamet.Til og með 18. desember hafa fæðst 167 börn, 80 strákar og 87 stúlkur. Svanborg Egilsdóttir, yfirljósmóðir reiknar með að fæðingarnar verði 175-180 í ár. Lesa meira

    17. desember 2007

    Viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu æfð á Suðurlandi

    Unnið hefur verið að gerð viðbragðsáætlunar vegna heimsfaraldurs inflúensu frá því haustið 2005. Þann 10. febr.´06 ákvað ríkisstjórnin að fela ríkislögreglustjóra og sóttvarnalækni að skilgreina verkefni og hlutverk samstarfsaðila viðbúnaðar við heimsfaraldri sem byggja á opinberum sóttvarnaráðstöfunum og almannavarnastarfi. Stýrihópur, verkefnastjórn og verkefnahópar hafa unnið að verkefninu undanfarið rúmt ár.

    Lesa meira

    6. desember 2007

    Kiwanismenn í Ölfusi gefa Heilsugæslu Þorlákshafnar

    Sl. föstudag afhentu Kiwanismenn í Ölfusi Heilsugæslu Þorlákshafnar skoðunarbekk og tilheyrandi búnað. Kiwanisklúbburinn Ölver hefur lengi staðið við bakið á heilsugæslunni og skemmst er að minnast röntgenbúnaðar sem klúbburinn gaf á síðasta ári. Lesa meira

    21. nóvember 2007

    Umferðaslysaæfing hjá sjúkraflutningamönnum HSu

    Í síðustu viku var haldin bílslysaæfing sem var samæfing sjúkraflutingamanna og Brunavarna Árnessýslu í viðbrögðum við umferðarslysi þar sem beita þarf klippum til þess að ná slösuðum úr bílflökum. Báðir þessir aðlilar hafa mjög mikilvægu hlutverki að gegna í björgun slasaðra úr bílflökum, þótt hlutverkin séu ólík og er nauðsynlegt að samhæfa allt björgunarlið til þess að hlutirnir gangi sem best fyrir sig. Lesa meira

    19. nóvember 2007

    Skoskir hjúkrunarfræðingar í heimsókn á HSu

    Nýlega komu skoskir hjúkrunarfræðingar í heimsókn á HSu. Tilefni heimsóknarinnar var m.a. að kynna sér starfsemi heilsugæslustöðva á landsbyggðinni. Lesa meira

    12. nóvember 2007

    Nýir sóttvarnarlæknar á Suðurlandi

    Guðlaugur Þór Þórðarsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóra lækninga við HSu sem nýjan sóttvarnarlækni í umdæmi Suðurlands. Þetta er gert eftir að ný reglugerð tók gildi 4.9.2007. Lesa meira

    8. nóvember 2007

    Körfuboltaakademia FSu, Actavis og Krabbameinsfélag Árnessýslu gefa HSu

    Í gær fór fram formleg afhending gjafar sem  Körfuboltaakademia FSu og  Actavis gáfu Krabbameinsfélagi Árnessýslu sem síðan afhenti HSu gjöfina.
    Um er að ræða eina milljón króna sem er ágóði af aðgangseyri á heimaleiki Körfuboltaliðs FSu veturinn 2006-2007 og Actavis tvöfaldaði þá upphæð. Lesa meira

    7. nóvember 2007

    Málþing um líkn og verki

    Fræðsluráð HSu stendur fyrir málþingi fyrir starfsmenn HSu um líkn og verki á Hótel Geysi 16. nóvember 2007. Lesa meira

    1. nóvember 2007

    Deildarstjóri á sjúkrasviði

    Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin sem deildarstjóri á hand – og lyflæknissvið HSu frá 1. nóvember 2007. Lesa meira

    30. október 2007

    Heimsókn þingmanna

    Þingmenn Suðurkjördæmis voru á ferð um kjördæmið í síðustu viku.  Á fundi með stjórn SASS fimmtudaginn 25. október greindu forráðamenn HSu  þingmönnum og stjórn SASS frá stöðu mála varðandi nýbyggingu við HSu á Selfossi,  rekstrarstöðu og fjárveitingum skv. frumvarpi til fjárlaga 2008. Lesa meira

    23. október 2007

    Mikil hollusta starfsfólks HSu við vinnustað sinn

    Könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna  fór fram í nóv. og des. á sl. ári. Kannað var viðhorf  ríkisstarfsmanna til eigin starfsumhverfis. Rúmlega 16 000 starfsmenn í 150 stofnunum og öllum ráðuneytum var boðið að taka þátt í rannsókninni. Svarhlutfall starfsmanna HSu var 42,2%. Lesa meira

    19. október 2007

    Ánægður kvensjúkdómalæknir á Selfossi

    Robert Gardocki pólski fæðinga- og kvensjúkdómalæknirinn sem var í vinnu á fæðinga- og kvensjúkdómadeild HSu nú í október segir í viðtali við Fréttablaðið í gær að það sem hann hafi helst veitt athygli á Íslandi sé heilbrigt samfélag, hér séu ekki eins margir sjúkdómar og í Póllandi. Hann telur að hlutur fisks í fæðu okkar sé lykilatriði en einnig lífsstíllinn og umhverfið.  Hann telur að fólk vinni ekki eins langan vinnudag hér og venjan er í Póllandi.
    New Cell New Cell
    Lesa meira

    18. október 2007

    Mæðravernd í “Hvíta húsinu” á HSu

    Tekið hefur verið í notkun nýtt húsnæði fyrir mæðravernd HSu á Selfossi. Lesa meira

    14. október 2007

    Læknar á Selfossi skrifa lítið af ávana- og fíknilyfjum

    Í samvinnu við Landlæknisembættið var gerð úttekt á ávísanavenjum lækna á Selfossi varðandi ávana- og fíknilyf og borið saman við landið í heild. Úttektin miðaðist við lyfjaávísanir lækna fyrir árið 2006 og miðast við þann fjölda sem tilheyrir heilsugæslunni á Selfossi. Um er að ræða ítarlegar upplýsingar og komu fram margar gagnlegar upplýsingar og eru þær hluti af gæðaþróun stofnunarinnar. Lesa meira

    8. október 2007

    Pólskur fæðinga- og kvensjúkdómalæknir á HSu

    Kominn er til starfa á HSu pólskur fæðinga- og kvensjúkdómalæknir, Robert W. Gardocki. Lesa meira

    4. október 2007

    Samningur um iðjuþjálfun

    Þann 27. september sl. var undirritaður samningur um samstarfsverkefni um starf iðjuþjálfa á Suðurlandi.  Samninginn undirrituðu Magnús Skúlason framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Laufey Jónsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Suðurlandi. Lesa meira

    2. október 2007

    Edda Laufey Pálsdóttir lætur af störfum

    Edda Laufey Pálsdóttir, lækna- og móttökuritari á Heilsugæslustöðinni í Þorlákshöfn lét nýlega af störfum við stofnunina eftir 20 ára starf. Lesa meira

    28. september 2007

    Samningur um endurmenntun starfsmanna

    Þann 26. sept. 2007 var undirritaður samningur milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Fræðslunets Suðurlands um fræðslu, sí- og endurmenntun, fyrir starfsmenn HSu á Suðurlandi.
    Samningurinn tók gildi við undirskrift aðila og skal endurskoðast í janúar ár hvert. Lesa meira

    27. september 2007

    Fræðslunefnd HSu

    Stjórn HSu hefur sett á fót fræðslunefnd og tilnefnt eftirtalda einstaklinga í nefndina:
    Baldvinu Ýr Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, Jórunni V. Valgarðsdóttur, heilsugæslulækni og Esther Óskarsdóttur, skrifstofustjóra. Lesa meira

    27. september 2007

    Fjölmennt á Kynningarfundi HSu

    Fjölmennt var á kynningarfundi HSu sem haldinn var í gær. Á fundinn mætti m.a. Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra, Kjartan Ólafsson, alþingismaður, Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, Þorvaldur Guðmundsson, forseti Bæjarstjórnar Árborgar, Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri SASS, Pálína Reynisdóttir, deildarstjóri HTR og Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri HTR auk fjölda starfsmanna stofnunarinnar.

    Lesa meira

    26. september 2007

    Kynningarfundur um starfsemi HSu

    Í dag 26. september 2007 kl. 14 – 16 er haldinn fundur um starfsemi HSu. Fundurinn er haldinn í fundarsal þjónustumiðstöðvar aldraðra að Grænumörk 5 á Selfossi. Fundurinn er opinn fyrir starfsfólk HSu, alþingismenn Suðurkjördæmis og fulltrúa sveitarfélaga. Lesa meira

    20. september 2007

    Augnlæknar og háls-, nef- og eyrnalæknir flytjast tímabundið á heilsugæsluna í Hvergerði

    Frá og með 24. september nk. verða augnlæknar og háls-, nef- og eyrnalæknirinn með sjúklingamóttöku á heilsugæslustöðinni í Hveragerði, Breiðumörk 25b. Lesa meira

    13. september 2007

    Skipulag sjúkraflutninga til endurskoðunar

    Skipaður hefur verið vinnuhópur sem gera á tillögur til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um endurskipulag sjúkraflutninga í landinu. Vinnuhópurinn fær aðeins um tvo mánuði til að vinna verkefnið og er gert að skila tillögum sínum til ráðherra eigi síðar en 15. nóvember nk. Hópurinn skal styðjast við fyrirliggjandi úttektir, en einnig afla gagna sem hann telur nauðsynlegar. Lesa meira

    7. september 2007

    Álag á læknavakt vegna kvefpestar

    Tilkynning frá lækningaforstjóra HSu. Lesa meira

    5. september 2007

    Nýjar reglugerðir um heilbrigðisþjónustu og landlækni

    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út þrjár nýjar reglugerðir sem kveða nánar á um framkvæmd nýrra laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu og laga nr.41/2007 um landlækni, en þessi lög tóku gildi þann 1. september síðast liðinn. Lesa meira

    4. september 2007

    Rafrænir lyfseðlar á Selfossi

    Innleiðing rafrænna lyfseðla hafin:
    Stefnt að rafrænni sendingu lyfseðla um allt land um næstu áramót Lesa meira

    3. september 2007

    Ný lög um heilbrigðisþjónustu taka gildi

    Þann 1. september sl. tóku gildi ný lög um heilbrigðisþjónustu sem samþykkt voru á Alþingi síðast liðið vor. Eldri lög um heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990 eru að stofni til frá árinu 1973 og voru orðin úrelt og óskýr í ýmsum atriðum. Nýju lögin eru afrakstur viðamikils nefndastarfs þar sem þátt tóku m.a. fulltrúar stjórnmálaflokka, landlæknis, Læknafélags Íslands, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sjúklingasamtaka og aðila vinnumarkaðarins.

    Lesa meira

    31. ágúst 2007

    Breyting hjá heilsugæslulæknum í Hveragerði og á Selfossi

    Frá 1.september hættir Björg Magnúsdóttir að starfa á HSu. Við hennar samlagi taka Óskar Reykdalsson og Sturla Johnsen. Óskar byrjar strax en Sturla 6. október nk. Lesa meira

    23. ágúst 2007

    Sniff ungmenna

    Borist hafa fréttir af því að hópur ungmenna hér á svæðinu fikti við að sniffa kveikjaragas.  Því vilja hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöð Selfoss vekja athygli á hættunni sem stafar af slíku.  Lesa meira

    21. ágúst 2007

    Röskun vegna framkvæmda

    Næstu tvær til þrjár vikur verður talsverð röskun á þjónustu og starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi vegna framkvæmda. Lesa meira

    27. júní 2007

    Gengið gegn slysum

    Þann 26. júní nk. kl 17:00 stóð starfsfólk HSu Selfossi fyrir göngu gegn umferðarslysum. Forsagan að göngunni var að hjúkrunarfræðingar á LSH skipulögðu slíka göngu í Reykjavík og vildum við sýna samstöðu með því að ganga hér fyrir austan. Lesa meira

    26. júní 2007

    Börn gefa á barnadeild HSu

    Í dag afhentu þessir krakkar stofnuninni kr. 6.040,oo – en þau efndu til flóamarkaðs og gefa barnadeild sjúkrahússins þennan ágóða.  Lesa meira

    20. júní 2007

    Hjúkrunarfræðingar á HSu ljúka diplómanámi frá HÍ

    Þann 16. júní s.l. útskrifuðust frá Háskóla Íslands sex hjúkrunarfræðingar héðan af svæðinu úr diplómanámi í heilsugæsluhjúkrun. Þessir hjúkrunarfræðingar eru allir starfandi á Heilsugæslustöð Selfoss. Lesa meira

    20. júní 2007

    Samstarf HSu og Fræðslunets Suðurlands

    Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing varðandi gerð samnings á sviði endur- og símenntunar starfsmanna HSu. Gert er ráð fyrir að gildistími samningsins sé frá 1. jan. 2008 og nái til 31. des. 2010. Lesa meira

    18. júní 2007

    Þing norrænna meltingarlækna á Íslandi

    28. þing Norrænna meltingarlækna var haldið á Nordica Hóteli. 6-8. júní sl. Lesa meira

    14. júní 2007

    Stórgjöf til HSu

    Í dag var Heilbrigðisstofnun Suðurlands færð stórgjöf. Það var Líknarsjóður hjónanna Harðar Þorgeirssonar og Unnar Guðmundsdóttur, sem færði stofnuninni 80 milljónir króna að gjöf til að efla og styrkja sjúkrahúsið á Selfossi. Lesa meira

    4. júní 2007

    Læknir á HSu ver doktorsritgerð í Svíþjóð

    Kristinn P. Benediktsson, læknir á Kirkjubæjarklaustri, varði 23.05. sl. doktorsritgerð sína, sem ber heitið “Nipple-sparing mastectomy and immediate reconstruction with implants in breast cancer”. Kristinn er skurðlæknir og starfaði í rúman áratug við brjóstaskurðlækningar í Svíþjóð og Noregi. Lesa meira

    21. maí 2007

    Samstarf HSu og BFÁ

    Í dag var undirritað samkomulag um samstarf milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og Björgunarfélags Árborgar (BFÁ) um aðkomu BFÁ að sjúkraflutningum í Árnessýslu. Lesa meira

    21. maí 2007

    Samtengingu sjúkraskrárkerfis HSu lokið

    Lokið er við að sameina sjúkraskrárkerfi (Sögu kerfi) fyrir allar heilsugæslustöðvar innan Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.  Allar heilsugæslustöðvarnar eru nú tengdar við einn gagnagrunn fyrir sjúkraskrárkerfi stöðvanna. Lesa meira

    16. maí 2007

    Stjórn LHH fundar á Selfossi

    Stjórn Landssamtaka heilsugæslustöðva og heilbriðigsstofnana hélt nýlega vorfund sinn á Selfossi. Flutt voru fjölmörg erindi og m.a. kynnt reiknilíkan Heilbrigðis- og tryggingastofnunar (en það er notað til þess að reikna út fjárþörf stofnana). Lesa meira

    15. maí 2007

    Gagnkvæm aðstoð í neyðarþjónustu á Þingvöllum, Hellisheiði og í Þrengslum

    Fjórir lykilaðilar í viðbrögðum við slysum, eldsvoðum og fleiri bráðatilvikum á suðvesturhorninu hafa gert með sér samkomulag um gagnkvæma aðstoð og sameiginleg viðbrögð þar sem þjónustusvæði þeirra liggja saman. Um er að ræða Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Brunavarnir Árnessýslu, Slökkvilið Hveragerðis og Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Samkomulagið nær meðal annars til virkjana Orkuveitu Reykjavíkur á Nesjavöllum og Hellisheiði, Þingvalla, Hellisheiðar og Þrengslavegar.

    Lesa meira

    25. apríl 2007

    Starfsdagur á HSu

    Starfsfólk HSu fyllti sali Hótel Selfoss í gær og hlýddi á Eyþór Eðvarðsson, M.A. í vinnusálfræði ræða um starfsánægju, samskipti og hvatningu. Lesa meira

    17. apríl 2007

    Kærleikssjóður Sogns eitt af “góðu málefnum” Landsbankans

    Menningarsjóður Landsbankans ákvað nýlega að styrkja 75 góð málefni um eina milljón króna hvert. Lesa meira

    29. mars 2007

    Konur gefa tæki á HSu

    Í gær fór fram á HSu  Selfossi formleg afhending gjafa frá tveimur kvenfélögum á Suðurlandi.
    Annars vegar gjöf  Kvenfélagi Selfoss á  hjartastuðtæki “Samaritan AED m/EKG skjá”  fyrir hand- og lyflækningadeildina, að verðmæti kr. 210 þúsund – ásamt barnahúsgögnum og leikföngum fyrir heilsugæslustöðina á Selfossi, að verðmæti kr. 100 þúsund og  hins vegar gjöf
    frá Kvenfélagi Biskupstungna,  Medela Symphony brjóstadæla og hjólastell fyrir fæðingadeildina, að verðmæti kr. 226 þúsund.

    Lesa meira

    20. mars 2007

    Ráðstefna um málefni fanga

    Nýjar leiðir við afplánun – ÖNNUR ÚRRÆÐI EN FANGELSI

    Hótel Örk í Hveragerði föstudaginn 4. maí 2007 frá kl. 9:00-15:00

    Lesa meira

    14. febrúar 2007

    Nýr sjúkrabíll

    Nýlega afhenti Rauði kross Íslands Heilbrigðisstofnun Suðurlands nýjan sjúkrabíl til afnota. Bíllinn er af gerðinni Mercedes Bens Sprinter. Bíllinn er sjálfskiptur með 186 hö og fjórhjólabúnað frá Iglhaut GmbH í Þýskalandi.  Einnig sá Iglhaut um aflaukningu á mótor. Lesa meira

    12. febrúar 2007

    Landbúnaðarráðherra skoðar framkvæmdir á HSu

    Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, og Bjarni Harðarson, sem náði 2. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi í prófkjöri flokksins nýlega, komu fyrir prófkjörið í heimsókn á heilbrigðisstofnunina á Selfossi og kynntu sér m.a. byggingaframkvæmdir við heilbrigðisstofnunina. Lesa meira

    12. febrúar 2007

    Kvensjúkdómalæknir aftur til starfa á HSu

    Jón B. Stefánsson, fæðinga – og kvensjúkdómalæknir er kominn aftur til starfa en hann hefur verið í veikindaleyfi frá því í júní á sl. ári.  Tímapantanir í síma 480 5100. Lesa meira

    19. janúar 2007

    Málverk af Magnúsi Ágústssyni fyrsta héraðslækni í Hveragerði og Ölfus

    Í gær fór fram í heilsugæslustöðinni í Hveragerði afhending á málverki af  Magnúsi Ágústssyni fyrsta héraðslækni  Hveragerðis-, Þorlákshafnar- og Ölfuslæknishéraðs. Lesa meira

    12. janúar 2007

    Heilbrigðisráðherra í heimsókn

    Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra var á yfirreið um Suðurkjördæmi sl. miðvikudag. Lesa meira

    2. janúar 2007

    Aukning í sjúkraflutningum

    Heildarfjöldi útkalla sjúkraflutningamanna í Árnessýslu árið 2006 var 1391 sem eru að meðaltali 3,81 útköll á sólarhring. Árið 2005 voru 973 útköll sjúkraflutningamanna sem eru að meðaltali 2,66 útköll á sólarhring. Þetta er auking um 30% milli ára. Það skýrist að hluta til með því að 1. júní 2006 tók útkallslið sjúkraflutningamanna við sjúkraflutningum milli stofnana í rannsóknir o.þ.h. og að almenningur er duglegri en áður að nýta sé þjónustu sjúkraflutningamanna en verið hefur.

    Lesa meira

    2. janúar 2007

    Fyrsta barn ársins á HSu

    Fyrsta barn ársins á HSu  fæddist á nýársdagsmorgun kl.09:12. Lesa meira

    29. desember 2006

    Starfsmenn kvaddir og tónlist á Sogni

    Nýlega voru kvaddir þeir starfsmenn á  HSu sem eru að ljúka störfum eftir áralangt starf. Lesa meira

    27. desember 2006

    Toyota gefur flatskjá á sjúkradeild HSu

    Þann 21. desember sl. kom fulltrúi frá Toyota umboðið í Reykjavík færandi hendi á sjúkradeild HSu og afhenti deildinni  “flatskjá Panasonic TH-37 PA50E og tengingar” að verðmæti kr. 200.000. Lesa meira

    11. desember 2006

    Leikföngin stytta biðina

    Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá eru leikföngin sem Kvenfélag Selfoss gaf heilsugæslustöðinni á Selfossi nýlega, vinsæl og þau stytta óneitanlega biðina – og ekki má á milli sjá hvor skemmta sér betur Unnur hjúkrunarstjóri eða börnin. Lesa meira

    8. desember 2006

    Kvenfélag Selfoss gefur HSu hjartastuðtæki og barnahúsgögn

    Kvenfélag Selfoss hefur ávallt borið hag Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fyrir brjósti. Þann 7. des. sl. afhenti KS sjúkradeild HSu Samaritan AED hálfsjálfvirkt hjartastuðtæki að verðmæti 209 þúsund króna og Heilsugæslustöð Selfoss barnahúsgögn og leikföng frá Barnasmiðjunni að upphæð 100 þús. króna.

    Lesa meira

    2. nóvember 2006

    Björg Þ. Magnúsdóttir, heilsugæslulæknir hlýtur viðurkenningu fyrir rannsókn

    Á þingi heimilislækna sem haldið var á Selfossi 17. – 19. nóv. sl. hlaut Björg Þ. Magnúsdóttir, heilsugæslulæknir á Selfoss viðurkenningu fyrir rannsókn sem hún gerði á grunnskólabörnum í Garðabæ. Lesa meira

    30. október 2006

    Bifhjólasamtök Suðurlands gefa á barnadeild HSu

    Bifhjólasamtök Suðurlands, Postularnir, komu færandi hendi á barnadeild HSu þann 28. okt. sl. en þá færðu þeir deildinni sjónvarp með DVD spilara, PSP leikjatölvur, DVD myndir, tölvuleiki og ýmis leikföng fyrir yngstu börnin. Verðmæti gjafanna er um 100 þúsund krónur. Lesa meira

    27. október 2006

    Fjármálaráðherra í heimsókn á HSu

    Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra heimsótti HSu þ. 25. okt.sl.  Með í för var Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður hans.  Ráðherrann átti fund með framkvæmdastjórn HSu þar sem farið var yfir starfsemi og rekstur stofnunarinnar. Lesa meira

    24. október 2006

    Heimsókn heilbrigðisráðherra á Sogn

    Nýlega heimsótti  Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra Réttargeðdeildina á Sogni. Með ráðherra í för voru einnig Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri og Leifur Benediktsson, deildarstjóri í ráðuneytinu. Lesa meira

    20. október 2006

    Námskeið í meðferð og flutningi slasaðra á Selfossi

    Námskeið í meðhöndlun og flutningi slasaðra (BTLS) var haldið á Selfossi í 4.; 5.; 9. og 13. október  s.l.
    Námskeiðið var haldið á vegum Sjúkraflutningaskólans. Umsjónarkennari námskeiðsins var Kristján Sigfússon, bráðatæknir hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Lesa meira

    5. október 2006

    Kristján Oddsson ráðinn aðstoðarlandlæknir

    Kristján Oddsson, heilsugæslulæknir á Kirkjubæjarklaustri, hefur verið ráðinn aðstoðarlandlæknir í eitt ár frá og með 15. október nk. Svo sem fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Sigurður Guðmundsson landlæknir ráðið sig til starfa í Malaví á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Snæbjörnsdóttur, hjúkrunarfræðingi og framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Lesa meira

    3. október 2006

    Framkvæmdir við nýbyggingu hefjast að nýju

    Framkvæmdir við nýbyggingu HSu á Selfossi munu hefjast að nýju á næstu dögum.  Sú ákvörðun, sem teknin var fyrr á þessu ári að bæta 3. hæðinni á nýbygginguna, olli því að leggja þurfti talsverða vinnu í hönnun í tengslum við þær breytingar, sem fylgja þessari hækkun á byggingunni.  Samningar við verktaka vegna þessarar stækkunar munu nánast vera í höfn og hefur verktaki fengið heimild til að halda áfram með framkvæmdir.  Lesa meira

    22. september 2006

    Ársskýrsla HSu 2005

    Stjórnendur HSu ásamt fulltrúum þingmanna Suðurkjördæmis og SASS á kynningarfundi vegna útgáfu Ársskýrslu HSu fyrir árið 2005. Lesa meira

    22. september 2006

    Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn 10. október 2006

    Ný hugsun í geðheilbrigðismálum. Lesa meira

    19. september 2006

    Torfæruhjólastóll fyrir hreyfihamlaða

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur fengið til afnota torfæruhjólastól sem ætlaður er hreyfihömluðum á öllu Suðurlandi. Stóllinn var keyptur fyrir fé sem safnaðist í fjársöfnun Íþróttasambands fatlaðra og 365 ljósvakamiðla en Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Suðurlandi hefur umsjón með útlánum á stólnum. Lesa meira

    14. september 2006

    Geðlæknir til starfa á HSu

    John Donne de Niet, hollenskur geðlæknir hefur hafið störf á HSu. Hann mun starfa í fangelsinu á Litla Hrauni og á Réttargeðdeildinni á Sogni. Lesa meira

    1. september 2006

    Nýr myndfundarbúnaður

    Nýr fullkominn myndfundarbúnaður hefur verið tekinn í notkun á HSu. Hann er af gerðinni Polycom VSX 7000 og voru kaupin fjármögnuð úr gjafasjóði stofnunarinnar. Af þessu tilefni var haldinn fundur á HSu og Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri í Heilbrigðisráðuneytinu ávarpaði fundinn gegnum fjarfundabúnað. Lesa meira

    28. ágúst 2006

    Ósmekklegt athæfi

    Læknaritarar á HSu urðu fyrir heldur óskemmtilegri uppákomu á vinnustað sínum í dag. Mikil reykingalykt gaus upp um miðjan dag á vinnustað þeirra og héldu þær að einhver væri að reykja fyrir utan glugga sem reyndist ekki vera. Lesa meira

    22. ágúst 2006

    Aukning á sjúkraflutningum

    Að sögn Ármanns Höskuldssonar umsjónarmanns sjúkraflutninga Árnessýslu hefur mikil aukning  verið á sjúkraflutningum það sem af er árinu. Lesa meira

    17. ágúst 2006

    Tónleikar á Réttargeðdeildinni á Sogni

    Í blíðviðrinu sl. þriðjudag (15/8) heimsóttu Sogn tveir þekktir tónlistarmenn og léku fyrir vistmenn og starfsfólk. Þarna voru á ferðinni trúbadorinn JoJo sem leikur á gítar og munnhörpu auk þess að syngja og Guðmundur Steingrímsson “Papa jazz” sem leikur á trommur. Lesa meira

    24. júlí 2006

    Nýtt símanúmer læknavaktar HSu

    Læknavaktin í Árborg, Flóahreppi, Hveragerði, Þorlákshöfn og Ölfusi hefur fengið nýtt símanúmer.  Símanúmerið er  480 5112. Lesa meira

    23. júní 2006

    Gjöf til Sjúkrahúss Suðurlands

    Gabríel Werner Guðmundsson Miðengi 18 Selfossi og Arnar Már Guðmundsson Álftarima 4 Selfossi gáfu til Sjúkrahús Suðurlands 760 kr sem safnaðist með sölu járnlistaverka. Heilbrigðisstofnun Suðurlands þakkar þessum duglegu drengjum fyrir framlag þeirra.

    Lesa meira

    20. júní 2006

    Nýr barnalæknir til starfa

    Eygló Aradóttir barnalæknir hefur tekið til starfa við Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Hún mun sinna móttöku barna með ungbarnavernd á Selfossi og í Hveragerði og er hægt að panta tíma hjá henni fyrir börn til skoðunar í afgreiðslu Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi í síma 480-5100 og í Hveragerði í síma 480-5250.

    Lesa meira

    15. maí 2006

    Frétt tekin af heimasíðu Heilbrigðisráðuneytisins

    Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að fjölgað verði hjúkrunarrýmum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Lesa meira

    12. maí 2006

    Pistill lækningaforstjóra HSu

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands er stofnun sem tók til starfa 1.september árið 2004 og stendur fyrir sameinaðar heilsugæslur og sjúkrahús á Suðurlandi.  Um er að ræða Sjúkrahúsið á Selfossi, heilsugæslustöðvarnar á Selfossi, Þorlákshöfn, Hveragerði, Vík, Kirkjubæjarklaustri, Rangárþingi og Laugarási ásamt því að Heilbrigðisstofnun sér um rekstur á Réttargeðdeildinni á Sogni, hjúkrunarheimilinu Ljósheimum og annast heilbrigðisþjónustu við fanga á Litla Hrauni.

    Lesa meira

    10. maí 2006

    Útifundur í blíðunni

    Starfsfólk HSu fundaði úti á svölum í góða veðrinu í gær. Þarna voru fulltrúar í rýnihóp í tengslum við verkefnið „Ráðgjafi að láni“ á vegum Fræðslusetursins Starfsmennt þar sem m.a. er unnin greining á fræðsluþörfum fyrir 5 heilbrigðisstofnanir með áherslu á ófaglærða starfsmenn. Lesa meira

    10. maí 2006

    3. hæðinni bætt við nýbyggingu HSu

    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur samþykkt, að 3. hæðinni verði bætt við á nýbyggingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Lesa meira

    2. maí 2006

    Kynningarfyrirlestur um intervision í boði HSu

    Intervision – a powerful tool for learning  -Gagnkvæmur skilningur milli samstarfsaðila.

    Fyrirlesturinn verður haldinn í húsnæði Svæðisvinnumiðlunar Suðurlands, Austurvegi 56 – 3. hæð Selfossi föstudaginn 5. maí 2006 kl. 14.00.

    Lesa meira

    25. apríl 2006

    Ný Björgunarmiðstöð í Árborg

    Í gær var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri byggingu Björgunarmiðstöðvar Árborgar ehf., sem mun rísa á lóð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands við Árveg á Selfossi,  vestan við nýbyggingu HSu sem nú er í byggingu. Ennfremur var undirrituð viljayfirlýsing um samstarf Björgunarmiðstöðvarinnar og HSu vegna byggingarinnar. Lesa meira

    24. apríl 2006

    nfélag Selfoss gefur sjúkralyftu á hjúkrunardeild

    Nýlega færði Kvenfélag Selfoss (KS) hjúkrunardeild HSu Ljósheimum að gjöf Marisa sjúkralyftu að verðmæti rúmlega 400 þús. krónur. Sjúkralyfta sem þessi er nauðsynlegt hjálpartæki við flutning einstaklinga sem geta ekki stigið í fæturna eða hjálpað til við að flytja sig á annan hátt s.s.úr/í rúmi/stól eða í bað. Lesa meira

    4. apríl 2006

    Uppbygging heildrænnar öldrunarþjónustu á Suðurlandi

    Nú er að störfum nefnd sem skipuð er af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og var falið að koma með tillögur um uppbyggingu heildrænnar öldrunarþjónustu á Suðurlandi, einkum þeim hluta sem tengist þjónustusvæði Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, í samvinnu við heimamenn. Lesa meira

    31. mars 2006

    Stækkun Réttargeðdeildarinnar á Sogni

    Vinnuhópur um uppbyggingu réttargeðdeildarinnar á Sogni, sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skipaði í lok október sl.,  hélt fund með starfsmönnum deildarinnar  nýlega til að kynna starf vinnuhópsins og leita eftir hugmyndum starfsmanna varðandi uppbyggingu deildarinnar. Lesa meira

    30. mars 2006

    Bergrisinn – viðbúnaður vegna Kötlugoss

    Helgina 25-26 mars sl. voru æfð viðbrögð við eldgosi undir Mýrdalsjökli, þ.e. Kötlugosi. Líkt var eftir atburðarás sem menn töldu líklega ef til alvörunnar kæmi. Íbúar í sýslunni þurftu sumir að yfirgefa heimili sín vegna hættu á flóði og voru misfúsir til þess. Bjarga þurfti ferðamönnum sem alltaf eru úti um allar “koppagrundir” og voru nú í hættu vegna gossins, rafmagns og símasambandslaust var um tíma, öskufall í þorpinu sem hreinsa þurfti o.s.frv. Ímyndaðar uppákomur voru margvíslegar en ekki var sérstaklega látið reyna á heilsugæsluna sem slíka, áherslan var á aðra þætti að þessu sinni. Lesa meira

    30. mars 2006

    Fræðslufundur um inflúensufaraldur

    Í gær fjölmennti starfsfólk HSu á fræðslufund um inflúensu (fuglaflensu) og varnir gegn henni. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir og Ása St. Atladóttir, hjúkrunarfræðingur, bæði starfsmenn Landlæknisembættisins fræddu starfsfólk HSu um þær ógnir sem stafa af heimsfaraldri inflúensu. Haraldur lýsti áhrifum sem svokölluð spánskaveiki hafði hér á landi árið 1918 og bar saman einkenni hennar og einkenni inflúensu (fuglaflensu H5N1). Lesa meira

    23. febrúar 2006

    Nýtt augnskoðunartæki á Heilsugæslustöðinni í Hveragerði

    Heilsugæslustöðin í Hveragerði hefur yfir að ráða gjafasjóði, eins og aðrar Heilsugæslustöðvar innan umdæmis HSu. 
    Gjafasjóðurinn er tilkominn vegna styrkja sem velunnarar heilsugæslustöðvarinnar hafa gefið og er nýttur til að auka á öryggi íbúa bæjarfélagsins. Lesa meira

    23. febrúar 2006

    Frétt vegna inflúensu frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands

    Undanfarið hefur borið mikið á sýkingum á upptökusvæði HSu. Bæði er um að ræða dæmigerð inflúensueinkenni en einnig kvefpestir. Munur er á þessum sýkingum og gott fyrir fólk að muna eftirfarandi: Lesa meira

    2. febrúar 2006

    Sjúkraflutningamenn á námskeiði

    Nýlega voru sjúkraflutningamenn í Árnessýslu á námskeið í endurlífgun, öndunaraðstoð, uppsetningu æðaleggja, vökvagjöf o.fl.

    Lesa meira

    27. janúar 2006

    Heilsueflandi heimsóknir til aldraðra

    Á vegum Heilsugæslustöðvar Selfoss eru að hefja heilsueflandi heimsóknir til aldraðra.
    Í þessu felst að íbúum 80 ára og eldri sem ekki njóta heimahjúkrunar er boðið upp á heimsókn hjúkrunarfræðings.  Í heimsókninni verður rætt um heilsufar og heilbrigði, vellíðan, öryggi,lífsgæði, samvistir við aðra, tómstundir, o.fl.

    Lesa meira

    19. janúar 2006

    Nýr lífsstíll – meðferð fyrir ofþunga

    Á heilsugæslustöðinni á Selfossi er boðið upp á stuðning og meðferð fyrir ofþunga einstaklinga sem eru með líkamsþyngdarstuðul yfir 40. Hjúkrunarfræðingarnir Unnur Þormóðsdóttir og Jónína Kristjánsdóttir sem sjá um meðferðina, og með þeim starfar Víiðr Óskarsson, heilsugæslulæknir. Lesa meira

    9. janúar 2006

    Sýn sjúklings á lækninn sinn

    Starf heilsugæslulæknisins er erilsamt og oft erfitt en það eru persónulegu tengslin sem eru svo hrífandi og gera starfið skemmtilegt segir Marianne Brandsson Nielsen heilsugæslulæknir á Selfossi. Lesa meira

    9. janúar 2006

    Nýr lífsstíll – Stuðnings- og viðtalsmeðferð fyrir ofþunga

    Á heilsugæslustöðinni á Selfossi er boðið upp á stuðning og meðferð fyrir ofþunga einstaklinga sem eru með líkamsþyngdarstuðul yfir 40. Hjúkrunarfræðingarnir Unnur Þormóðsdóttir og Jónína Kristjánsdóttir sem sjá um meðferðina, og með þeim starfar Víiðr Óskarsson, heilsugæslulæknir. Lesa meira

    5. janúar 2006

    Meltingarfærasérfræðingur á HSu

    Sigurjón Vilbergsson, sérfræðingur í lyf- og meltingarfærasjúkdómum hefur hafið störf á HSu á Selfossi. Sigurjón er með móttöku á föstudögum og hægt er að bóka tíma í síma 480 5100. Lesa meira

    2. janúar 2006

    Hildur Thors, heilsugæslulæknir hættir á HSu

    Hildur Thors er hætt störfum á Heilsugæslustöð Selfoss frá og með 1. janúar 2006. Hildur hverfur nú til annarra starfa og eru henni hér með færðar þakkir fyrir gott samstarf á undanförnum árum. Lesa meira

    30. desember 2005

    Starfslok á HSu

    Þessar 4 heiðurskonur eru allar að hætta störfum á HSu eftir margra ára starf. Lesa meira

    29. desember 2005

    Litlir jólasveinar á HSu

    Sú hefð hefur skapast hér að börn sem fæðast um og eftir jól fá teknar af sér myndir með jólasveinahúfur -og svona líta þau út litlu krílin. Lesa meira

    22. desember 2005

    Stafræn myndgreining tekin í notkun á HSu

    Samkomulag hefur tekist milli Landspítala – háskólasjúkrahúss og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands um myndgreiningarþjónustu og um aukið samstarf á sviði heilbrigðisþjónustu, kennslu og rannsóknum og styrkja þannig heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi. Lesa meira

    20. desember 2005

    Heimahjúkrun –tilraunaverkefni í Hveragerði, á Selfossi og í Þorlákshöfn

    Að sögn Önnu Maríu Snorradóttur, hjúkrunarforstjóra HSu hefur náðst hefur samkomulag við Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið um tilraunaverkefni til tveggja ára um aukna heimahjúkrunarþjónustu á Selfossi, í Hveragerði og Þorlákshöfn. Lesa meira

    20. desember 2005

    HSu tekur við sjúkraflutningum 1. jan. nk.

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) tekur við sjúkraflutningum í Árnessýslu 1. janúar nk.  Síðustu mánuðina hefur verið unnið að undirbúningi þessara breytinga.  Sjúkraflutingamenn hafa verið ráðnir til starfa og hafa þeir verið í starfskynningu og þjálfun að undanförnu. Lesa meira

    19. desember 2005

    Sjúkraflutningar til HSu um áramótin

    Um áramótin mun Lögreglan í Árnessýslu láta af sjúkraflutningum í Árnessýslu og Heilbrigðisstofnun Suðurlands taka við. Á sama tíma mun Neyðarlínan, 112 taka við símsvörun og beiðnum um sjúkraflutninga ásamt því að sjá um allar skráningar á sjúkraflutningum inn í sérstakt landskerfi sjúkraflutninga.

    Lesa meira

    19. desember 2005

    Bólusetning gegn hettusótt

    Eins og fram hefur komið í farsóttafréttum hafa 73 einstaklingar fengið hettusótt á tímabilinu frá og með maí til og með nóvember 2005.  Einkum eru þetta einstaklingar á aldrinum 20 – 24 ára sem eru að sýkjast en það eru þeir einstaklingar sem misstu af bólusetningu við hettusótt á árunum 1989-1994. Lesa meira

    1. desember 2005

    Ár frá því framkvæmdir hófust við nýbygginguna

    Nú er rúmlega 1 ár liðið síðan framkvæmdir hófust við nýbyggingu HSu á Selfossi. Að sögn Erlings Ingvarssonar, verkfræðings hjá Verkfræðistofu Suðurlands, þá er uppsteypa hússins í fullum gangi en er talsvert á eftir verkáætlun (ca 2-3 mánuðir). Lesa meira

    28. nóvember 2005

    Vinateppi á sjúkrahúsinu v/Árveg

    Starfsmenn sjúkrasviðs HSu v/Árveg gáfu stofnuninni nýlega 3 vinateppi sem komið hefur verið fyrir á gangi sjúkrahússins á 2. hæð. Teppin saumuðu starfsmenn þegar svokölluð vinavika stóð yfir fyrr á árinu. Lesa meira

    25. nóvember 2005

    Helga Guðmundsdóttir, listakona gefur engla

    Helga Guðmundsdóttir, listakona á Selfossi hefur fært sjúkradeildinni v/Árveg að gjöf kertaengla. Lesa meira

    24. nóvember 2005

    Breytt lyfjastefna í fangelsinu á Litla Hrauni

    Samráðsnefnd um málefni fanga hélt nýlega morgunverðarfund þar sem rædd var áfengis- og vímuefnameðferð í fangelsum. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá HSu, HTR, Fangelsismálastofnun ríkisins, Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Þjónustumiðstöð Breiðholts, Landlæknisembættinu, Rauða Krossi Íslands, Lögreglunni í Reykjavík, Fangavarðarfélaginu, Geðvernd, Fangaprestur o.fl. Lesa meira

    17. nóvember 2005

    Rannsókn Hildar Thors, heilsugæslulæknis um hreyfingu

    Breytingar í hreyfingarmynstri yfir ævina og áhrif á líkur á að fá hjartaáfall.

    Lesa meira

    16. nóvember 2005

    Kvenfélag Selfoss gefur loftdýnur

    Í gær fór fram formleg afhending á tveimur loftdýnum, af gerðinni Paralogis, sem Kvenfélag Selfoss (KS) hefur gefið stofnuninni. Önnur dýnan fór á hjúkrunardeildina á Ljósheimum og hin á legudeild sjúkrahússins v/Árveg. Lesa meira

    11. nóvember 2005

    SSK gefur gjörgæslutæki á fæðingadeildina

    Nýlega færði Samband sunnlenskra kvenna fæðingadeild HSu nýtt gjörgæslutæki fyrir nýbura. Tækið er af gerðinni Propaq og er keypt hjá A. Karlssyni. Verðmæti gjafarinnar er kr. 722.903,oo m.vsk. Lesa meira

    4. nóvember 2005

    Trúnaðarlæknir ráðinn á HSu

    Jan Triebel hefur hafið störf sem trúnaðarlæknir fyrir HSu. Jan er sérfræðingur í endurhæfingarlækningum. Lesa meira

    3. nóvember 2005

    Þingmenn í heimsókn á HSu Selfossi

    Þingmenn Suðurkjördæmis voru á ferð á Selfossi í gær, en svokölluð kjördæmavika þingmanna var sl. viku. Lesa meira

    31. október 2005

    Fræðslustarf á HSu

    Á HSu fer fram mikið fræðslustarf. Í nokkur ár hefur verið samstarf við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri um fræðslu í gegnum fjarfundabúnað. Frá Landspítala háskólasjúkrahúsi hefur einnig verið miðlað fræðsluerindum frá bæði barna- og öldrunarlækningadeild. Lesa meira

    28. október 2005

    Uppbygging á Réttargeðdeildinni á Sogni

    Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra heimsótti Sogn nýlega og var viðstaddur er fram fór afhending gjafar úr Kærleikssjóði Sogns. Þá tilkynnti hann að skipaður verði starfshópur til að huga að frekari uppbyggingu á réttargeðdeildinni. Lesa meira

    28. október 2005

    Endurbætur á húsnæði Réttargeðdeildarinnar á Sogni

    Nýlega var lokið við að setja utanhússklæðningu á húsnæði réttargeðdeildarinnar en mikil vandamál höfðu verið undanfarin ár vegna leka, auk þess sem húsið leit mjög illa út. Lesa meira

    28. október 2005

    Rósuskjól á Sogni

    Þann 26. okt. sl. afhenti Rósa Aðalheiður Georgsdóttir Réttargeðdeildinni að Sogni gróðurhús að gjöf frá Kærleikssjóði Sogns. Rósa beitti sér á sínum tíma fyrir stofnun sjóðsins og er hann í vörslu Landsbanka Íslands sem stutt hefur sjóðinn myndarlega. Lesa meira

    26. október 2005

    Stofnun hjúkrunar-og ljósmæðraráðs á HSu

    Þann 19. okt. sl. var stofnað hjúkrunar- og ljósmæðraráð HSu. Lesa meira

    26. október 2005

    Kynning á rafrænni sjúkraskrá

    Þann 19. okt. sl. komu fulltrúar frá Heilbrigðisráðuneytinu (HTR) og kynntu rafræna sjúkraskrá fyrir stjórnendum á HSu. Lesa meira

    18. október 2005

    Heimsókn frá heilbrigðisráðuneytinu

    Heilbrigðisráðherra Jón Kristjánsson heimsótti HSu Selfossi laugardaginn 15. okt. sl. ásamt fríðu föruneyti. Lesa meira

    17. október 2005

    Ársskýrsla HSS 2004

    Síðasta Ársskýrsla Heilbrigðisstofnunarinnar Selfossi er komin út. Framvegis verður skýrslan undir merkjum HSu. Hér eru nokkrir fróðleiksmolar úr starfseminni en skýrsluna er hægt að nálgast hér á vefnum (Sjá:Um HSu – Ársskýrslur). Lesa meira

    17. október 2005

    Heimsókn frá Svíþjóð

    Starfsmenn heilsugæslustöðvarinnar í Södertelje í Stokkhólmi heimsóttu HSu á Selfossi þann 15. okt. sl. Lesa meira

    13. október 2005

    Námskeið í bráðalækningum á HSu

    Þann 12. okt. sl. voru læknar og hjúkrunarlið heilsugæslustöðvarinnar á Selfossi á upprifjunarnámskeiði í bráðalækningum. Lesa meira

    12. október 2005

    Fjölgun heilsugæslulækna á Selfossi

    Nýlega bættust 3 nýir læknar í lið heimilislækna á heilsugæslustöðinni á Selfossi. Lesa meira

    10. október 2005

    Bólusetning gegn inflúensu

    Nú eru að hefjast inflúensubólusetningar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

    Lesa meira

    7. október 2005

    Fjölgun sérfræðinga á HSu

    Þann 1.okt sl. hófu störf á HSu tveir nýir sérfræðilæknar. Aðalsteinn Guðmundsson sérfræðingur í lyflækningum með öldrun sem undirsérgrein og Sigurjón Vilbergsson sérfræðingur í lyflækningum með meltingarsjúkdóma sem undirsérgrein. Lesa meira

    6. október 2005

    Aukin vaktþjónusta á sjúkrasviði HSu

    Frá 1 okt sl. er vaktþjónusta sjúkrasviðs aukin. Lesa meira

    29. september 2005

    Umsjónarmaður sjúkraflutninga

    Ármann Höskuldsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður sjúkraflutninga við HSu.frá 1. janúar 2006. Ármann er reyndur sjúkraflutningamaður og með mikla reynslu við björgunarstörf almennt. Lesa meira

    22. september 2005

    Umsóknir um stöður sjúkraflutningsmanna

    Umsóknarfrestur um stöður sjúkraflutningamanna og umsjónarmanns sjúkraflutninga rann út þann 16. september sl. Lesa meira

    12. september 2005

    Heimsókn frá Réttargeðdeildinni í Álaborg í Danmörku

    Réttargeðdeildin á Sogni fékk góða heimsókn þann 8. sept. sl. en þá kom 6 manna hópur frá Réttargeðdeildinni í Álaborg á Danmörku. Lesa meira

    5. september 2005

    Sjúkraflutningar til HSu

    Heilbrigðisstofnunin hefur auglýst lausar stöður sjúkraflutningamanna og umsjónarmanns sjúkraflutninga vegna sjúkraflutninga í Árnessýslu frá og með 1. janúar 2006. HSu mun annast sjúkraflutninga í Árnessýslu frá og með næstu áramótum skv. ákvörðun Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis.

    Lesa meira

    5. september 2005

    Nýr fæðinga- og kvensjúkdómalæknir á HSu

    Kristján Oddsson, sérfræðingur í fæðingahjálp og kvensjúkdómalækningum verður með móttöku á HSu Selfossi 2 daga í mánuði frá og með september 2005. Lesa meira

    5. september 2005

    Heimsókn landlæknis

    Þann 1. september sl. kom Sigurður Guðmundsson, landlæknir ásamt Sigríði Haraldsdóttir, framkvæmdastjóra heilbrigðistölfræðisviðs og Önnu Björgu Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingi embættisins í heimsókn á HSu. Lesa meira

    25. júlí 2005

    Skipulagsbreytingar á heilsugæslustöð Selfoss

    Nú standa yfir skipulagsbreytingar á Heilsugæslustöð Selfoss í tengslum við fjölgun heimilislækna.
    Óskar Reykdalsson sem ráðinn hefur verið lækningaforstjóri við HSu mun jafnframt starfa sem heimilislæknir í Hveragerði og hefur öllum hans skjólstæðingum verið úthlutað nýjum heimilislækni. Lesa meira

    25. júlí 2005

    Heimsókn frá Bretlandi

    Sharon Rowe, ljósmæðranemi frá Háskólasjúkrahúsi í London heimsótti fæðingadeild HSu nýlega. Lesa meira

    18. júlí 2005

    Nýbygging HSu

    Framkvæmdir við nýbyggingu HSu ganga almennt séð vel að sögn Guðmundar Hjaltasonar á Verkfræðistofu Suðurlands. Í byrjun verks þegar unnið var við jarðvegsframkvæmdir reyndust aðstæður aðrar en gert hafði verið ráð fyrir. Lesa meira

    15. júlí 2005

    Sjúkraflutningar í Árnessýslu flytjast til HSu

    Sýslumannsembættið í Árnessýslu hefur sagt upp samkomulagi við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið um sjúkraflutninga í Árnessýslu frá og með 31. desember nk. Lesa meira

    15. júlí 2005

    Þjónusta lyfjafræðings við HSu

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur gert samkomulag við Stefán Jóhannsson, lyfjafræðing, um lyfjafræðilega þjónustu við stofnunina. Lesa meira

    13. júlí 2005

    TRS gefur tölvu í setustofu

    Tölvu- og rafeindaþjónusta Suðurlands, Selfossi hefur fært sjúkrasviði HSu tölvu að gjöf. Tölvan verður staðsett í setustofu sjúkrahússins á II. hæð. Lesa meira

    16. júní 2005

    Aðstandendadagur á Ljósheimum

    Vinafélag Ljósheima – hjúkrunardeildar HSu á Selfossi, gekkst fyrir aðstandendadegi þann 11. júní sl. Mikil og góð þáttaka var því um 60 manns mættu. Lesa meira

    13. júní 2005

    Heilsa kvenna á Suðurlandi

    Þann 11. júní sl. buðu starfskonur í heilsugæslustöð Selfoss konum á Suðurlandi í blóðþrýstings-, blóðsykur-, blóðfitu- og beinþéttnimælingu. Alls nýttu 50 konur sér þetta tækifæri og af þeim var 35 konum vísað áfram til læknis. Það má því með sanni segja að framtakið hafi skilað árangri. Lesa meira

    9. júní 2005

    Heilsa kvenna

    Laugardaginn 11. júní í tilefni að kvennadeginum og kvennahlaupi ÍSÍ ætla hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á heilsugæslustöð Selfoss, í samvinnu við lækni, að bjóða konum á Suðurlandi að koma á stöðina og láta mæla blóðþrýsting, blóðsykur, blóðfitu og beinþéttni.

    Lesa meira

    8. júní 2005

    Barnalæknir hættir störfum

    Björn Hjálmarsson barnalæknir lét af störfum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands þann 1. júní 2005. Lesa meira

    6. júní 2005

    Dregið úr starfsemi sjúkrahússins yfir sumarmánuðina

    Eins og undanfarin ár verður að draga úr starfsemi á sjúkrahúsinu yfir sumarmánuðina. Er þetta m.a. gert vegna skorts á hjúkrunarfræðingum til afleysinga. Fjárveitingar til stofnunarinnar hafa einnig áhrif á þess ákvörðun.

    Lesa meira

    24. maí 2005

    Þórusystur gáfu loftskipta dýnu

    Systur í Rebekkustúkunni nr. 9 Þóru á Selfossi gáfu nýlega hjúkrunardeild HSu Ljósheimum loftskipta dýnu. Dýnur þessar eru mjög góðar til varnar legusárum og fyrir fólk sem á erfitt með að hreyfa sig í rúmi eða snúa sér. Lesa meira

    20. maí 2005

    Útboð á gagnaflutningi á víðneti

    Ríkiskaup, fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins, Vegagerðarinnar og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands hefur auglýst eftir tilboðum í gagnaflutning á víðneti. Lesa meira

    20. maí 2005

    Nýtt skrifstofuhús

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur fengið færanlegt hús í eigu ríkissjóðs til afnota fyrir skrifstofur á Selfossi. Húsið hefur verið staðsett austan við núverandi skrifstofuhús stofnunarinnar. Ætlunin er að færa eldra húsið til og tengja húsin saman. Aðkoma verður bætt svo hreyfihamlaðir eigi góða aðkomu að skrifstofum stofnunarinnar. Þá verður betri aðstaða fyrir stjórnsýslu stofnunarinnar í kjölfar aukinna verkefna í framhaldi af sameiningu heilbrigðisstofnana á Suðurlandi.

    Lesa meira

    20. maí 2005

    Fjölgun sérfræðinga í heimilislækningum á Selfossi

    Til að bæta þjónustu Heilsugæslustöðvarinnar á Selfossi hafa verið ráðnir 3 sérfræðingar í heimilislækningum. Þau eru Arnar Guðmundsson, Jórunn Viðar Valgarðsdóttir og Björg Þ. Magnúsdóttir. Þar að auki mun kandidat hefja störf hér þann 1. júní og vera í starfsþjálfun á heilsugæslustöðinni. Lesa meira

    12. maí 2005

    Nýtt merki HSu

    HSu hefur fengið nýtt merki. Merkið skírskotar til heilsugæslu og spítala með krossinum og hjartað undirstrikar þá mannlegu hlýju og væntumþykju, sem einkennir starfsemina. Bláu táknin stefna öll inn að miðju – kjarnanum, sem myndar Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
    Höfundar eru PR almannatengsl og útlitshönnun ehf, Reykjavík.

    Lesa meira

    12. maí 2005

    Aukin sóknarfæri HSu

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) héldu þann 29, apríl sl. málþing um heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi.  Á þinginu voru haldin fjölmörg erindi um heilbrigðisþjónustu og samstarf ríkis og sveitarfélaga á því sviði. Lesa meira

    10. maí 2005

    Ráðning hjúkrunarstjóra og deildarstjóra

    Unnur Þormóðsdóttir, hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin hjúkrunarstjóri á Heilsugæslustöð Selfoss en hún hefur gegnt því starfi tímabundið frá 1. apríl sl. Lesa meira

    3. maí 2005

    Samvinna fæðingadeilda LSH og HSu

    Töluvert hefur verið í umræðum undanfarið hvernig samstarfi þessara stofnana er háttað. Í tilefni af því og til að skerpa á vinnufyrirkomulagi var haldinn fundur með lækningaforstjórum og yfirlæknum nefndrar fæðingasviða ásamt yfirljósmóður HSu. Lesa meira

    28. apríl 2005

    Málþing um heilbrigðisþjónustu

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) halda í dag málþing um heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi á Hótel Selfossi.
    Markmið málþingsins er að leiða fram skoðanir og upplýsingar um stöðu og framtíð heilbrigðisþjónustunnar á Suðurlandi, sem gætu nýst við stefnumörkun heimamanna og stjórnvalda.

    Lesa meira

    27. apríl 2005

    Lífeindafræðingar – breyting á nafni meinatækna

    Þann 26. apríl sl. voru samþykktar á Alþingi breytingar á lögum um meinatækna. Með þessum lögum taka meinatæknar upp nýtt nafna og heita nú lífeindafræðingar. Lífeindafræðingar munu bera fulla ábyrgð á sínum störfum og geta fengið viðurkennda sérfræðinþekkingu á hinum ýmsu sviðum. Lesa meira

    15. apríl 2005

    Ráðstefna um þjónustu við fanga

    15.apríl sl. var haldin á Hótel Örk í Hveragerði fjölmenn ráðstefna um málefni fanga. Að ráðstefnunni stóðu Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneytið, Fangelsismálastofnun, Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Landlæknisembættið. Lesa meira

    Hella Hveragerði Hvolsvöllur Kirkjubæjarklaustur Laugarás Selfoss Vík í Mýrdal Þorlákshöfn Sjúkraflutningar Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Símaskrá Starfsmenn Swedish English Polish Thai