Móttökuritarar taka við tímapöntunum til heilsugæslulækna, hjúkrunarfræðinga og annarra sérfræðinga á heilsugæslustöð og sjúkrahúsi ásamt því að taka við greiðslu komugjalda og gjaldi til sérfræðinga.
Opin móttaka á vakt er alla virka daga frá kl.16:00-18:00 og um helgar frá kl. 10:00-12:00. Á öðrum tímum sinnir vaktlæknir slysa- og bráða-móttöku þjónustunni.
Símanúmer læknavaktar í Árborg, Flóahreppi, Hveragerði, Þorlákshöfn og Ölfusi er 480 5112.