Þú ert hér:
Forsíða » Almennar upplýsingar


Almennar Upplýsingar

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) var stofnuð 1. september 2004 með sameiningu átta heilsugæslustöðva og eins sjúkrahúss á Suðurlandi.  Þjónustusvæði stofnunarinnar er Árnes-, Rangárvalla- og V – Skaftafellssýsla.  Fjöldi íbúa á svæðinu er um 20.000, auk þess eru um 15.000 frístundahús á svæðinu og nokkrir af fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins.  Mikil umferð ferðafólks er því um svæðið stóran hluta ársins.

Árlegur reksturskostnaður stofnunarinnar er um 2 milljarðar króna.  Um 53 % reksturskostnaðar er vegna heilsugæslu, um 30 % vegna sjúkrahúss og um 17 % vegna hjúkrunardeilda.

Um 200 stöðugildi eru við stofnunina, en fjöldi starfsmanna á hverju ári er yfir 400.

Forstjóri HSu er Magnús Skúlason, framkvæmdastjóri hjúkrunar er Anna María Snorradóttir, framkvæmdastjóri lækninga er Óskar Reykdalsson og Esther Óskarsdóttir er skrifstofustjóri.

Hella Hveragerði Hvolsvöllur Kirkjubæjarklaustur Laugarás Selfoss Vík í Mýrdal Þorlákshöfn Sjúkraflutningar Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Símaskrá Starfsmenn Swedish English Polish Thai