Þú ert hér: Forsíða > Almennar upplýsingar >
Almennar Upplýsingar
Ný og sameinuð stofnun Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) varð formlega til 1. september 2004, skv. reglugerð, sem heilbrigðisráðuneytið gaf út. Þjónustusvæði hinnar nýju stofnunar nær til um 20000 íbúa á Suðurlandsundirlendinu. Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, eitt sjúkrahús á Selfossi með 71 sjúkrarúm og heilbrigðisþjónustu við fangelsið á Litla Hrauni
Alls eru um 220 stöðugildi hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Framkvæmdastjóri er Magnús Skúlason.
Framkvæmdir hófust við viðbygging við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi árið 2004. Árið 2008 voru 2. og 3. hæð nýbyggingarinnar teknar í notkun.
Á 2. hæð er hjúkrunardeildin Ljósheimar með 20 rúm og á 3. hæð eru Fossheimar, deild fyrir heilabilaða. Þar eru einnig 20 rúm.
Á 1. hæð nýbyggingarinnar verður heilsugæslustöð og aðstaða fyrir iðju og sjúkraþjálfun. Áætlað er að taka þann hluta í notkun á árinu 2010.