|
Ályktun Starfsmannafélags HSu
Aðalfundur Starfsmannafélags Heilbrigðisstofnunar Suðurlands haldinn á Selfossi þriðjudaginn 23. febrúar s.l. harmar þann niðurskurð sem verið hefur og væntanlegur er á fjárveitingum til stofnunarinnar. Fundurinn lýsir yfir áhyggjum sínum á að stofnunin geti ekki staðið undir starfsemi sinni og komi þá til uppsagna starfsfólks. Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands harmar þann mikla niðurskurð sem stofnuninni hefur verið gert að sæta annað ári í röð. Fundurinn lýsir verulegum áhyggjum yfir starfssemi stofnunarinnar og alveg ljóst að svo gríðarlegur niðurskurður ár eftir ár kemur til með að hafa veruleg áhrif á þjónustu við íbúa á svæðinu og aukið álag á starfsfólk. Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunar Suðurlands skorar á Heilbrigðisráðherra og heilbrigðisyfirvöld að endurskoða ákvörðun sína í ljósi þess að öryggi íbúa á svæðinu skerðist og sú fagþekking sem til staðar er hverfi ekki af svæðinu. Stjórn Starfsmannafélags Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Til baka |