Þú ert hér:
Forsíða » Fræðsla » Áreynslupróf

Áreynslupróf


Tilgangur áreynsluprófs er að láta reyna á hjarta, lungu og æðakerfi.  Einnig er prófið gott til að meta útihald og þol.
Læknirinn þinn gæti hafa mælt með áreynsluprófi af ýmsum ástæðum en oftast er spurningin um hvort þrenging sé á kransæðum vegna æðakölkunar.Áreynslupróf er einnig gott til að meta hvort óhætt sé að hefja líkamsrækt og hversu kröftug hún skal vera.
Hvernig fer prófið fram ?
Á brjóstkassa og axlir eru fest rafskaut sem tengd eru við hjartaafrita sem nemur rafvirkni hjartans meðan á prófinu stendur. Blóðþrýstingsmæli er komið fyrir á hægri handlegg svo hægt sé að fylgjast með blóðþrýstingi meðan á prófinu stendur.
Á HSu er notað göngubretti í áreynsluprófinu. Þyngdin er aukin lítillega á nokkurra mínútna millibili með því að auka gönguhraða og hallann á brettinu. Þannig er álag á hjarta– og æðakerfi smám saman aukið.
Áreynsluprófið sjálft tekur venjulega um
10-15 mín. Að prófinu loknu er fylgst með starfsemi hjartans á hjartaafrita og fylgst með blóðþrýstingi. Þetta er allt og sumt.
Það er eðlilegt að þreytast þegar maður reynir á sig. Þú verður sjálfsagt móð/ur og svitnar líka svolítið.  Ekki er að búast við öðru. En hættu strax ef þú verður var/vör við svima eða óeðlilega þreytu, ef þú færð brjóstverk, yfirliðakennd eða finnur fyrir þungum hjartslætti.
Það er fylgst með þér á hjartarafrita allan tímann meðan á prófinu stendur og læknirinn getur gripið inní og stöðvað hvenær sem er ef vandamál koma upp.
Mikilvægt !
Áður en áreynsluprófið hefst er mjög áríðandi að þú upplýsir lækninn ef þú ert á einhverri lyfjameðferð, sérstaklega er það mikilvægt ef þú ert á lyfjum vegna hjartans eða vegna blóðþrýstings.

Blóðþrýstingslyf skal ekki taka rannsóknardag.


Ekki má reykja, drekka áfengi eða kaffi rannsóknardaginn.

Hella Hveragerði Hvolsvöllur Kirkjubæjarklaustur Laugarás Selfoss Vík í Mýrdal Þorlákshöfn Sjúkraflutningar Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Símaskrá Starfsmenn Swedish English Polish Thai